Fréttablaðið - 09.06.2006, Side 69
Innritun í
Menntaskólann í
Reykjavík stendur yfir
til 12. júní.
Nemendur sækja raf-
rænt um skólavist.
Á heimasíðu skólans,
www.mr.is, má finna
frekari upplýsingar um
nám og starf í skólan-
um.
Nemendur velja um
tvær meginnáms-
brautir með fjöl-
breyttum kjörsviðum:
Málabraut
2 nýmáladeildir
2 fornmáladeildir
Náttúrufræðibraut
2 eðlisfræðideildir
2 náttúrufræðideildir
Reynslan sýnir að nám í
Menntaskólanum í
Reykjavík er traustur
grunnur fyrir nám á
háskólastigi.
í Menntaskólanum í
Reykjavík fyrir 10. bekkinga
og forráðamenn þeirra
verður sunnudaginn
11. júní kl. 14-17.
Þar kynna kennarar
og nemendur skólann.
Allir eru hjartanlega
velkomnir.
Rektor
Opið hús
Menntaskólinn í Reykjavík, Lækjargötu 7, 101 Reykjavík
Angelina Jolie og Brad Pitt komu
fram opinberlega á miðvikudag, í
fyrsta skipti eftir fæðingu frum-
burðarins, og lýstu því yfir að gift-
ing væri ekki í myndinni í nánustu
framtíð. „Það liggur ekki í loftinu.
Við einbeitum okkur að krökkun-
um, og erum augljóslega bundin
krökkunum og hvort öðru sem for-
eldrar,“ sagði Jolie á blaðamanna-
fundinum, sem haldinn var á hót-
eli í sjávarbænum Swakopmund.
„Það er mikilverðast fyrir okkur,
og að halda einhverja athöfn ofan
á það skiptir engu.“ Hjónakornin
þökkuðu góðar viðtökur í Namibíu
og báru lof á landið. „Landið ykkar
er svo fjölbreytt og sérstakt.
Namibía er besta leyndarmál
Afríku - það er að segja þangað til
við komum hingað,“ sagði Pitt.
„Fólk var hneykslað að við skyld-
um ákveða að koma hingað, og hélt
að við værum að setja líf dóttur
okkar í hættu. En við lásum okkur
til um Namibíu,“ sagði Jolie, og
Pitt bætti við að þau hefðu fengið
fyrsta flokks læknisþjónustu. „Við
hefðum ekki getað fengið betri
þjónustu, jafnvel á sjúkrahúsi í
Bandaríkjunum.“ Fjölskyldan
hyggst fara frá Namibíu innan
nokkurra daga svo Pitt geti hafið
tökur á Ocean‘s Thirteen. ■
Engin gifting í vændum
BRANGELINA Angelina Jolie og Brad Pitt héldu blaðamannafund á miðvikudag ásamt
forsetafrú Namibíu, Penexupifo Pohamba.
Madonna hefur nú samþykkt að
verða hið nýja andlit verslunar-
keðjunar Hennes og Mauritz. Hún
mun hafa skrifað undir samning
þess efnis að hún noti föt frá H&M
á hljómleikaferð sinni um heiminn
þegar hún er ekki á sviðinu en þar
notast hún við fatnað frá Jean Paul
Gaultier. Einnig hefur hún hannað
íþróttagalla sem mun verða til sölu
í búðunum í haust. Hún mun koma
fram í auglýsingum fyrir fyrir-
tækið ásamt dönsurum sínum og
fer sú herferð af stað síðar á þessu
ári. H&M er í mikilli sókn þessa
dagana en nýverið kom fram að
hönnunartvíeykið Victor og Rolf
mun ljá því krafta sína í haust.
Madonna er nýtt
andlit H&M
MADONNA ÁSAMT STELLU MCCARTNEY
Nú hefur Madonna fylgt vinkonu sinni eftir
og mun koma fram fyrir sænsku verslunar-
keðjuna H&M. McCartney hannaði föt fyrir
fyrirtækið á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Tónleikarnir Zappa Plays Zappa
verða haldnir í Hafnarhúsinu í
kvöld. Dweezil Zappa mun heiðra
föður sinn ásamt fríðu föruneyti.
Þar verða fremstir í flokki gítar-
leikarinn snjalli Steve Vai sem
áður var í Whitesnake, trommar-
inn Terry Bozzio og saxófónleikar-
inn Napoleon Murphy Brock. Með
þeim á sviðinu verða sjö aðrir tón-
listarmenn. Miðasala á tónleikana
fer fram í Máli og menningu
Laugavegi, Pennanum á Akureyri,
Hljóðhúsinu á Selfossi, Hljómvali
í Keflavík, Tónspili í Neskaupstað
og á citycentre.is.
Húsið verður opnað kl. 20.00 í
kvöld og tónleikarnir hefjast
20.30.
Erfingi Zappa spilar í kvöld
ZAPPA PLAYS ZAPPA Tónleikarnir
verða í Hafnarhúsinu í kvöld og
hefjast klukkan 20:30.