Fréttablaðið - 16.12.2006, Side 100

Fréttablaðið - 16.12.2006, Side 100
Ég kom hingað til að skipta um eina peru og enda með að skulda 350.000 kr. Já svona er heimurinn skrýtinn! Það er best að ég komi mér heim, hristi koddann og sjái hvað fellur undan. Já gerðu það! En strangt tiltekið ætti ég að taka bílinn sem tryggingu, það er ekki minn höfuðverkur þótt þú eigir ekki fyrir nauðsynlegum viðgerðum. Jájá ég veit ... Þorkell, ætlarðu að koma í mat svo á sunnudaginn? Ég verð bara að sjá til mamma, það er mikið að gera hjá mér eins og þú veist. Kannski er ég bara hálviti! Kannski er greindarvísitalan mín 38. Kannski er ég bara dæmdur til að komast áfram í lífinu á sjarma og góðu útliti! Takk fyrir stuðninginn! Þetta er líka erfitt fyrir mig, ég var að komast að því að besti vinur minn er bara heimsk ljóska! Já hann skal sko bara fá að vinna upp skuldina hjá dýralækninum! Hæ Grjóni, trúir þú á ást við fyrstu sýn? Ást við fyrstu sýn ... Á mánudegi? Nei Hannes, hættu að gera röntgenaugun. Ég vara þig við! Ég sagði hættu þessu! Strákum er ekki treystandi fyrir röntgenaugunum! Í höfðinu á mér hringja jólabjöllur í bland við öskurhljóð. Ég er ekki að hugsa neitt, sit bara hreyfingar- laus og stari út um gluggann án þess að horfa á neitt. Desember er far- inn að segja til sín. Ég tók fyrstu tvær vikurnar í að vera lasin, með alls konar ælu og ýmiss konar hor og hina dagana er ég búin að keyra mig út á vinnu. Þannig að ég er bara orðin kúkú af þreytu. Í vikunni fór ég í Kringluna. Mændi á hillu í einhverri búð og skildi ekki hvaða vara kostaði hvað. Afgreiðslukonan kom mér til bjargar, gaf sér hálftíma í að segja mér hvað einn bolli kostaði. Ég starði bara skilningsvana á hana og sagði ítrekað „Ha?!“ Að lokum gafst stúlkan upp á mér. Ég greip tvo kassa af einhverju dóti sem ég var svo næstum búin að gleyma þegar ég yfirgaf búðina. Á fimmtudaginn fór ég í sauma- klúbb. Keyrði af stað þegar ég loks mundi hvernig starta ætti bíl og þegar ég var að renna í hlað hjá vinkonunni fattaði ég að ég var heima hjá rangri vinkonu. Tók því allsvakalega U-beygju og keyrði stjörf á réttan stað, með rúðu- þurrkurnar á, og það var ekki einu sinni ofankoma. Í saumaklúbbnum dottaði ég svo í sófanum með hök- una ofan í bringu og sagði „aha“ öðru hvoru til að leggja eitthvað til málanna. Þegar ég kom heim í götuna mína góðu stoppaði ég á miðjum krossgötunum með skransi af því hugurinn orkaði ekki að ákveða hvar ég ætti að leggja í stæði. Í gærmorgun hljóp ég svo eins og hauslaus hæna um íbúðina að leita að símanum mínum sem ég var með í hendinni. Svo settist ég undir stýri, startaði, setti í gír, sneri upp á mig og setti hendina á far- þegasætishausinn, tilbúin til að bakka, en bíllinn fór í ranga átt af því ekki bakkar maður í fyrsta gír. Þannig að ef þið sjáið konu bakkandi í öfuga átt um helgina, vinkið, það er örugglega ég. Góða og geðheila helgi. 2.tbl. 2006, verð 950 kr. m. vsk. Hátíðablaðið Sælkerasteikur á stórhátíð & Ný jól, gamlar hefðir Kíkt á kokkinn & Smáréttir í partíið & Jólarjúpan hamflett Sósur fyrir hátíðarnar & Bístró velur besta kampavínið & Til á tíu Uppskriftin að góðum jólum Villibráð á hátíðaborðið Grænmetisjól með Valentínu Þorri velur hátíðavínin *M ið að v ið 1 2 m án að a ás k ri ft ./ E in g re ið sl a Við framlengjum áskriftartilboðið til 19. desember 2006! Áskrift á www.bistro.is eða í síma: 550 5060 Eftirréttirnir Steikurnar Meðlætið Kampavínið Hátíðablað Bístró er komið út! ÓMÓTSTÆÐILEGT ÁSKRIFTARTILBOÐ Fyrsta blaðið frítt og tappatogari fylgir með! 650 KR. Á MÁNUÐI* Uppskriftin að góðum jólum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.