Fréttablaðið - 16.12.2006, Blaðsíða 102
! Kl. 13.00Nú er kallað til fundar við Huldu
Vilhjálmsdóttur myndlistarmann
og listheim hennar í Nýlistasafninu.
Haraldur Jónsson listamaður og Jón
Proppé gagnrýnandi fjalla um verk
Huldu í kompaníi við áhorfendur.
Söngkonan Lay Low og Sigtryggur
Baldursson flytja tónlist og léttar
veitingar verða í boði.
Karlakór Reykjavíkur heldur
sína árlegu aðventutónleika í
Hallgrímskirkju um helgina,
tvennir tónleikar verða í dag og
einir til á morgun. Kórinn söng á
sínum fyrstu tónleikum á
aðventu árið 1993 og eru þeir
orðnir ómissandi viðburður í
hugum fjölmargra Íslendinga
enda hafa þeir verið haldnir
árlega hin síðari ár.
Einsöngvari með kórnum að
þessu sinni er Gissur Páll Gissurar-
son tenór sem stundað hefur
söngnám á Ítalíu.
Lenka Matéóva mun leika á
orgel auk þess sem trompetleikar-
arnir Ásgeir Steingrímsson og
Eiríkur Örn Pálsson koma fram
með kórnum.
Stjórnandi kórsins er Friðrik
S. Kristinsson. Miðaverð er kr.
2.500 og eru miðar seldir í Penn-
anum í Kringlunni og verslunum
Eymundsson í Austurstræti og í
Smáralind auk þess sem hægt er
að kaupa miða í Hallgrímskirkju
fyrir tónleikana. Fyrri tónleik-
arnir í dag hefjast kl. 16 og hinir
síðari kl. 22.
Unaðstónar á aðventu
Mættir Max og Mórits
Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar
Íslands verða haldnir í Háskóla-
bíói í dag en sveitin hefur í rúman
áratug kappkostað að koma lands-
mönnum í hátíðarskap með aðstoð
góðra gesta. Einleikari á tónleik-
unum nú er ungur fiðluleikari,
Hulda Jónsdóttir, sem stundar
nám við Listaháskóla Íslands
undir leiðsögn Guðnýjar
Guðmundsdóttur, konsertmeistara
Sinfóníunnar. Hulda er aðeins
fimmtán ára gömul og er yngsti
nemandinn sem hefur verið
tekinn inn í Listaháskólann frá
stofnun skólans en hún er á svo-
kallaðri diplómabraut sem stofn-
uð var fyrir unga framúrskar-
andi hljóðfæraleikara. Hulda
leikur í fyrsta sinn með Sinfóníu-
hljómsveitinni.
„Þetta leggst ósköp vel í mig,
þetta er mjög spennandi og mik-
ill heiður fyrir mig,“ segir Hulda.
„Ég leik verk eftir Wieniawski,
Polonaise de concert op. 4. nr. 1 í
D-dúr, sem er svona glansstykki,
virtúósaverk sem sýnir til dæmis
tæknilega getu hljóðfæraleikar-
ans.“ Hulda leikur á fiðlu sem
smíðuð var af Vincenzo Sannino
í kringum árið 1920, en Victor
Fetique gerði bogann. Hvort
tveggja hefur hún að láni frá
Rachel Elizabeth Barton-stofnun-
inni í Chic-ago.
Á jólatónleikunum koma einn-
ig fram nemendur úr Listdans-
skólanum og dansa við Hnotu-
brjót Tsjajkovskíjs. Danshöfundur
og kennari stúlknanna er Sigríður
Guðmundsdóttir, kennari í klass-
ískum listdansi við Listdansskóla
Íslands. Kynnir á tónleikunum er
Margrét Örnólfsdóttir en stjórn-
andi Bernharður Wilkinson.
Fyrri tónleikarnir hefjast kl.
14 en hinir síðari kl. 17. Nánari
upplýsingar er að finna á heima-
síðunni www.sinfonia.is.
Hátíðlegt við Hagatorg
Þórunn Guðmundsdóttir syngur
eigin jólalög undir yfirskriftinni
Það besta við jólin í tónleikaröð-
inni 15:15 í Norræna húsinu á
morgun. Einnig munu félagar úr
leikfélaginu Hugleik flytja leik-
þáttinn Ein lítil jólasaga og
jólasöngleikinn Mikið
fyrir börn eftir Þórunni.
Listakonan fjölhæfa
gaf út jólalagadisk-
inn Það besta við
jólin með lögum
sínum og textum í
fyrra og flytur hún
nokkur þeirra í
bland við nýsmíðar
á tónleikunum.
Mörg lag-
anna eru á létt-
um nótum og
fjalla um allt
það skraut-
lega lið sem
tengist jólun-
um. Ástin
kemur við
sögu, en
þarna birtast einnig dekkri hliðar
jólanna og jafnvel gráglettinn
húmor þar sem frekjudósir fá
makleg málagjöld.
Með Þórunni leika valinkunnir
tónlistarmenn, Þröstur Þorbjörns-
son gítarleikari, Hjörleifur Vals-
son fiðluleikari og Gunnar
Hrafnsson, bassaleikari.
Tónleikarnir hefjast
að sjálfsögðu kl. 15.15.
Lög á léttum nótum