Fréttablaðið - 16.12.2006, Blaðsíða 120
Japanski kastarinn
Daisuke Matsuzaka varð í gær
dýrasti japanski leikmaðurinn í
sögu ameríska hafnaboltans
þegar hann skrifaði undir
risasamning við Boston Red Sox.
Samningurinn er rúmlega 100
milljóna dollara virði og þar af
fær leikmaðurinn 52 milljónir
dollara í eigin vasa.
Það eru miklir peningar í
hafnaboltanum í Bandaríkjunum
og gríðarlegar vonir eru bundnar
við þennan moldríka 26 ára gamla
Japana. Talið er að koma hans til
Boston muni hafa gríðarlega
mikil áhrif á efnahag borgarinnar
og að búist við að minnsta kosti
20 þúsund ferðamönnum sem
komi gagngert til að sjá hann
leika hafnabolta.
Ótrúlegur
samningur
Enskir fjölmiðlar
greindu frá því í gærmorgun að
bandaríska fjárfestingarfyrir-
tækið Polygon og banki í Sviss
hefðu fengið yfirtökutilboð sitt í
Newcastle samþykkt. Var það
talið nema tæpum 31 milljarði
króna.
Skömmu síðar sendi stjórn
Newcastle frá sér tilkynningu þar
sem kom fram að klúbburinn
hefði ekki tekið neinu slíku
tilboði. Ekki væri heldur neinn
væntanlegur tilboðsgjafi að skoða
bókhald félagsins eins og lög
kveða á um.
Yfirtökuboði
ekki tekið
Hinn grjótharði varnarmaður
Chicago Bears, Tank Johnson, var
handtekinn á fimmtudag eftir að
sex byssur fundust á heimili hans
og hafði hann ekki leyfi fyrir
neinni þeirra. Johnson er
lykilmaður í
þeirra liði og
gæti átt yfir
höfði sér eins
árs fangelsi.
Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem
Johnson kemst í
kast við lögin en
Johnson fékk 18
mánaða skilorðs-
bundin dóm í
nóvember árið 2005 eftir að hann
var handtekinn fyrir utan
næturklúbb með skammbyssu í
hendi. Hann var svo aftur
handtekinn í febrúar síðastliðnum
er hann lenti í slagsmálum fyrir
utan næturklúbb.
Handtekinn
með sex byssur
Dregið var í 16 liða úrslit
Meistaradeildar Evrópu í gær og
er stórleikur umferðarinnar án
efa viðureign Evrópumeistara
Barcelona og Liverpool sem vann
sigur í deildinni vorið 2005. Fyrri
leikur liðanna verður á Nou Camp
í febrúar en sá síðari á Anfield í
byrjun mars. Af öðrum spennandi
viðureignum má nefna að Real
Madrid mætir Bayern München
og Celtic gegn AC Milan. Þá fer
Jose Mourinho með Chelsea til
síns gamla félags, Porto, sem varð
Evrópumeistari vorið 2004 undir
stjórn Mourinho.
Þá mætir Manchester United
Lille og Arsenal dróst gegn PSV
Eindhoven.
„Við höfum engu að tapa,“ sagði
Rafael Benitez, knattspyrnustjóri
Liverpool, við fréttunum. „Barce-
lona vann Meistaradeildina í vor
og má því búast við afar erfiðum
leik. Við höfum þó tvo mánuði til
að undirbúa okkur fyrir þessa
leiki. Allir segja að Barcelona sé
með eitt besta liðið í heiminum
þannig að það er undir okkur
komið að framkalla óvænt úrslit.
Við þurfum að búa okkur andlega
undir það að mæta mjög góðum
leikmönnum.“
Rafael Benitez stýrði Valencia
áður en hann tók við Liverpool og
gekk honum vel gegn Barcelona.
„Ég hef reynslu af því að stýra
liðum á Nou Camp og hefur mér
gengið ágætlega. Vonandi breytist
það ekki,“ sagði Benitez sem benti
einnig á að sá stuðningur sem liðið
fær á Anfield hafi einnig mikið að
segja.
„Aðalatriðið fyrir okkur er að
við spilum síðari leikinn á heima-
velli okkar. Það gæti reynst mikil-
vægt atriði fyrir okkur.“
Arjen Robben viðurkenndi að
Chelsea gæti lent í vandræðum
með fyrrum lærisveina Mourinho
í Porto.
„Á þessu stigi keppninnar eru
ekkert nema sterk lið eftir og þarf
því að vinna lið eins og Porto. Það
verður gaman fyrir stjórann að
mæta liðinu sem og Paulo Ferreira
og Ricardo Carvalho.“
Manchester United átti í erfið-
leikum með Lille í fyrra er liðin
léku saman í riðli þar sem United
sat eftir. „Reynslan í fyrra var
slæm en við erum með annað Unit-
ed-lið í dag,“ sagði Alex Ferguson
um andstæðinga liðsins. „Liðið er
á uppleið og sífellt að bæta sig. Við
vitum að þetta verður erfitt en við
höfum bætt okkur mikið frá síð-
asta tímabili.“
Arsene Wenger sagði að lykill-
inn að sigri á þessu stigi keppninn-
ar væri að vinna PSV í fyrsta leik
liðanna í Hollandi.
„Þetta verður mun erfiðara en
margir búast ef til vill við. PSV
er með gott lið sem komast í
útsláttarkeppnina á nánast hverju
ári og eru sífellt í toppbaráttunni
í Hollandi. Við lærðum af viður-
eignum okkar gegn Bayern
München og Real Madrid á síð-
asta tímabili að það ræðst oft af
því hvernig maður spilar í fyrri
leiknum um hvort liðið fari
áfram.“
Eiður Smári Guðjohnsen og félagar hans í Barcelona munu þurfa að kljást við Liverpool í 16 liða úrslitum
Meistaradeildarinnar. Eigast þar við meistarar síðustu tveggja ára. „Höfum engu að tapa,“ segir Benitez.
Ivan Campo, miðjumaður
Bolton, segist dreyma um að fara
aftur til Spánar.
„Ég veit að fólk í Bilbao er að
orða mig við Athletic. Þrátt fyrir
að ég sé mjög ánægður hér þá er
það draumur minn að skrifa undir
hjá Athleti,“ sagði Campo en
Bilbao hefur þá stefnu að hafa
eingöngu Baska innan sinna raða.
Dreymir um
Athletic