Fréttablaðið - 16.12.2006, Blaðsíða 2
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
SAAB 93 LINEAR
Nýskr. 01.06 - Beinskiptur - Ekinn 14 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
2.380
.000.
-
Maður á þrítugsaldri
var í gær ákærður fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur fyrir að berja
annan mann til óbóta með strau-
bolta. Það var embætti ríkissak-
sóknara sem ákærði manninn,
enda um stórfellda líkamsárás að
ræða.
Atburðurinn átti sér stað 8.
mars á þessu ári í íbúð í Reykja-
vík. Hinn ákærði veittist þar að
öðrum manni og sló hann ítrekað í
höfuðið og líkama með strau-
boltanum og fleiri hlutum. Sá sem
fyrir árásinni varð stórskaðaðist
og voru afleiðingar barsmíðanna
þær að hann hlaut mar á heila,
heilahristing, tvo skurði á höfði,
sjö til átta stórar markúlur á
höfði, bólgur og mar á hægra
auga, brot á þremur tönnum, los á
sex tönnum og þreifieymsli í mjó-
baki og spjaldhrygg.
Af hálfu hans er þess krafist
að árásarmaðurinn verði dæmdur
til að greiða honum bætur upp á
ríflega 530 þúsund krónur, auk
kostnaðar vegna lögmannsaðstoð-
ar.
Þá krefst ríkissaksóknari þess
að hinn ákærði verði dæmdur til
refsingar.
Stórskaðaði mann með straubolta
Flugstoðir
ohf. framlengdu í gær frestinn
sem flugumferðarstjórum var
gefinn til að ráða sig í starf hjá
félaginu fram til klukkan tvö á
mánudaginn. Ólafur Sveinsson,
stjórnarformaður Flugstoða, segir
að í næstu viku verði ekki vikist
undan því að tilkynna til Alþjóða
flugmálastofnunarinnar og ná-
grannaflugstjórnarmiðstöðva að
ástand geti
breyst hér um
áramótin og
þjónustustigið
minnkað.
„Sá tíma-
punktur er runn-
inn upp að við
getum ekki vik-
ist undan því að
tilkynna að hér
getur orðið
breytt ástand og
breytt þjónustu-
stig. Ég lít fyrst og fremst svo á að
það ógni starfsöryggi fólks, því
miður. Nágrannaflugstjórnarsvæði
eins og Kanada, Bretar og Írar
hafa falast eftir því að þjóna þessu
svæði með hagkvæmari hætti en
við gerum og það er bein sam-
keppni í þessu. Við erum að kalla
yfir okkur ógnina,“ segir hann.
Ólafur segir að flugumferðar-
stjórar hafi lýst því yfir að þeir séu
tilbúnir til að gera skriflegan ráðn-
ingarsamning þegar Flugstoðir
hafi gert kjarasamning við Félag
íslenskra flugumferðarstjóra.
„Skoðun okkar er sú að kjarasamn-
ingur sé ekki laus. Við sjáum okkur
ekki fært að fara í kjaraviðræður
við þá miðað við þær kröfur sem
þeir hafa sett fram.“
Loftur Jóhannsson, formaður
Félags íslenskra flugumferðar-
stjóra, segir að flugumferðarstjór-
ar hafi almennt látið það berast til
Flugstoða að þeir hefðu áhuga á
starfi hjá Flugstoðum „en ekki
hvað sem það kostar“. Hann taldi
frestinn óheppilegan og ekki til
þess fallinn að auka líkur á lausn
vandans.
Hann sagði engan samninga-
fund boðaðan um helgina. Spurður
um hvort Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra ætti að skerast í
leikinn sagði hann: „Okkur er
sama, bara ef þetta leysist. Þetta
er allt á ábyrgð ráðherra en við
gerum ekki neina kröfu á hann.“
Ráðherrann sagði hins vegar að
þetta væri „stöðugt áhyggjuefni“
en vildi ekki tjá sig um málið á
þessu stigi.
Forstjórar Iceland Express og
Icelandair voru sammála um að
deiluaðilar hlytu að finna lausn.
Matthías Imsland hjá Iceland
Express sagði að annað fyndist
ekki í sinni orðabók og Jón Karl
Ólafsson hjá Icelandair sagði málið
með ólíkindum.
Starfsöryggi ógnað
vegna flugdeilu
Allt bendir til að flug lamist hér á landi um áramótin. Deila Flugstoða ohf. og
flugumferðarstjóra er í hnút en forstjórar stóru flugfélaganna tveggja trúa ekki
öðru en að lausn finnist. Stjórnarformaður Flugstoða segir starfsöryggi ógnað.
Hæstiréttur staðfesti í
gær gæsluvarðhaldsúrskurð
héraðsdóms yfir Edward Koran-
teng sem hefur verið kærður fyrir
að nauðga þrettán ára stúlku í lok
nóvember. Í vikunni var Koranteng
dæmdur í Héraðsdómi Reykjavík-
ur fyrir að hafa nauðgað fjórtán
ára stúlku í september í fyrra.
Maðurinn skal sæta gæsluvarð-
haldi til 20. desember. Í dómi
Hæstaréttar er staðfesting á
úrskurðinum rökstudd með því að
koma þurfi í veg fyrir að Korant-
eng afmái hugsanleg verksum-
merki eftir glæpinn og að hann
torveldi rannsókn málsins með því
að reyna að hafa áhrif á vitni.
Gæsluvarðhald
staðfest í gær
Kennsl hafa verið
borin á lík fimmtu konunnar sem
fundist hefur myrt í þessum
mánuði í Suffolk í Bretlandi.
Reyndist þar um 29 ára gamla
vændiskonu að ræða, Annette
Nichols, sem saknað hefur verið
síðan 4. desember.
Breska lögreglan telur að um
sé að ræða raðmorðinga sem
leggist á vændiskonur, en allar
störfuðu hinar látnu sem vændis-
konur. Lögreglan hefur lýst eftir
karlmanni á bláum BMW.
Tvær kvennanna voru kyrktar
en ekki hefur tekist að greina
banamein hinna þriggja. Verið er
að rannsaka hvort þeim hafi verið
byrlað eitur.
Eitur hugsan-
legt banamein
Íþróttahús Menntaskól-
ans við Sund og Vogaskóla hefur
verið opnað aftur. Húsinu var
lokað í kjölfar alvarlegra
athugasemda umhverfissviðs
Reykjavíkurborgar um ástand
öryggismála, viðhalds og þrifa í
íþróttahúsinu og taldi það
óhjákvæmilegt að stöðva
starfsemi þar til úrbætur hefðu
verið gerðar.
Heilbrigðisfulltrúar umhverf-
issviðs Reykjavíkurborgar fóru í
eftirlit í húsið í gær og veittu
leyfi til að húsið yrði opnað á ný
þar sem skólayfirvöld hefðu bætt
úr því sem þótti ábótavant.
Íþróttahúsið
opnað aftur
Á föstudag skrifuðu
Magnús Stefánsson félagsmála-
ráðherra og Halldór Halldórsson,
formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga, undir samkomulag
um lengda viðveru fatlaðra grunn-
skólabarna árin 2007 og 2008. 120
millljónum króna verður veitt til
þjónustunnar hvort ár fyrir sig.
Um alllangt skeið hefur verið
unnið að lausn á því hver skuli
greiða fyrir kostnað vegna fatl-
aðra grunnskólabarna á aldrinum
10 til 16 ára sem fá þjónustu í
skólum landsins eftir að skóla-
starfinu lýkur á daginn. Þetta
kallast lengd viðvera, en í henni
felst ýmiss konar dægradvöl og
aðstoð við heimanám sem stendur
fram til klukkan fimm hvern
skóladag.
Magnús Stefánsson lýsti yfir
ánægju sinni að komist hafi verið
að samkomulagi í málinu og vænt-
ir hann þess að sem flest sveitar-
félög veiti góða þjónustu á grund-
velli samkomulagsins, börnunum
og foreldrum þeirra til hagsbóta.
Halldór Halldórsson tekur í
sama streng og segir samkomu-
lagið vera til vitnis um gott sam-
starf á milli ríkis og sveitarfélaga.
Hann undirstrikar þó að sveitarfé-
lögin ákveði sjálf hvort þau bjóði
upp á þjónustuna því aðstæður
séu mismunandi hjá þeim og að
mörg þeirra þurfi ekki að bjóða
upp á þjónustuna.
Stendur kannski til að breyta
nafninu aftur í Samvinnuhá-
skólann, Ágúst?
Starfsmönnum Rauða
krossins stafar meiri hætta af
bandarískum hermönnum í Írak
en átökunum þar í landi. Ástæðan
er sú að fjölmargir þeirra þekkja
enn ekki merki stofnunarinnar,
sem í löndum íslamstrúar er
rauður hálfmáni í staðinn fyrir
kross.
„Við þurfum að eyða miklum
tíma í að útskýra Rauða hálfmán-
ann,“ sagði Jamal Al-Karbouli,
yfirmaður Íraksdeildar Rauða
krossins, á blaðamannafundi í
Genf í gær.
Talsmenn Bandaríkjahers í
Írak sögðu hermenn sína reyna að
sýna virðingu þegar að samskipt-
um þeirra við almenna borgara í
Írak kemur, en höfðu að öðru leyti
ekkert um þetta mál að segja.
Þekkja ekki
merki Rauða
krossins