Fréttablaðið - 16.12.2006, Blaðsíða 57
Svart hefur verið áberandi
bæði í húsbúnaði og nýjum
línum tískuhúsanna. Leður er
algjörlega það sem koma skal.
Bæði svart og litað. Helstu
ofurfyrirsæturnar ásamt stór-
stjörnum Hollywood keppast
nú við að klæðast leðri, jökk-
um, frökkum, buxum, pilsum
og kjólum.
Í vorlínu Karl Lagerfeld mátti sjá
buxnadragtir úr þunnu leðri, með
stórum hnöppum. Einnig er að sjá
pils og kjóla þar sem leðrið fær að
leika lausum hala formað eftir
kúnstarinnar reglum.
Litavalið er bæði dökkt og sígilt
en einnig er að sjá rautt, ljósbrúnt
og jafnvel hvítt. Mittisjakkar í
leðri með mótorhjólaáhrifum er á
leið inn fyrir vorið, með kósum, og
spennum en það ber þó að varast
langt kögur. Jakkarnir í vetur eru
svartir og brúnir en taka gjarnan á
sig ljósari og skærari lit með vor-
inu.
Frú Beckham hefur sést spranga
um í rykfrakka úr ljósbrúnu leðri á
meðan Kate Moss sýnir sig í leður-
buxum og Uma Thurman leikur
eftir Matrix og mætti í síðum leð-
urfrakka á dögunum. Tískuhús
Issey Miyakes var með glæsilegan
síðan leðurfrakka, ljósbrúnan með
hermannabrag á sinni vorsýningu.
Línan er úr smiðju hönnuðarins
Naoki Takizawa sem vert er að
fylgjast með í ár.
Sveipað leðri
Tískutímarit og -bækur þykja í
síauknum mæli ögra siðferðis-
kennd almennings.
Sumum þykir sem útgefendur
nokkura tískutímarita og -bóka
séu farnir að fikra sig inn á
heldur grátt svæði, með vafa-
sömum myndbirtingum.
Franska bæklingnum
Paradis hefur til að mynda
verið fundið það til forráttu
að helga hverja blaðsíðuna
á fætur annarri grófum
nektarmyndum. Þá fóru
myndir af tveimur nökt-
um konum í innilegum
stellingum, sem birtust
í tískubókinni S, fyrir
brjóstið á mörgum.
Segja sumir þetta
einfaldlega sýna
hversu óljós mörkin
á milli tísku og kláms
eru að verða. Aðrir benda á að öll
þessi nekt sé þróun á vinsældum
tískuþátta á HBO þar sem fyrir-
sætur sjást spranga um hálf-
naktar. Allt sé þetta síðan í takt
við aukið umburðarlyndi í sið-
ferðismálum, meðal annars
hvað nekt varði.
Röksemdarfærslan sem
útgefendurnir hafa beitt
sér til varnar þykir vafa-
söm í meira lagi. Þannig
lét ritsjóri Paradis hafa
eftir sér að markmið
bæklingsins væri að
upphefja hið forboðna.
Þá sagðist ljósmyndar-
inn sem á heiðurinn að
nöktu konunum í S, ein-
faldlega vera áhugsam-
ari um nekt en Gucci.
Talið vera á mörk-
um kláms og tísku
Smáralind, sími 528 8800
www.drangey.is
Uppháir
leðurhanskar
frá Ítalíu
svartir, brúnir, rauðir
Mjúki pakkinn býður þín hjá okkur...
Kringlunni
sími: 553 3536
Jólagjöfin hennar í ár
Jólakjóll með húfu fylgrir frítt með kaupum yfir 7000,-