Fréttablaðið - 29.11.2007, Blaðsíða 84
56 29. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
10
7
12
14
16
16
16
14
12
DAN IN REAL LIFE kl. 8 - 10
RENDITION kl. 8 - 10.10
WEDDING DAZE kl. 6
ROGUE ASSASSIN kl. 6
10
16
12
16
14
DAN IN REAL LIFE kl.5.45- 8 - 10.15
LA VIE EN ROSE/LÍF RÓSARINNAR kl.5.20 - 8 - 10.40
LIONS FOR LAMBS kl.6 - 10.30
THIS IS ENGLAND kl.6 - 8 - 10
DAN IN REAL LIFE kl. 3.40 - 5.45 - 8 - 10.15
DAN IN REAL LIFE LÚXUS kl. 3.40 - 5.45 - 8 - 10.15
WEDDING DAZE kl. 3.40 - 5.50 - 8 -10.10
BALLS OF FURY kl. 4 - 6 - 8
ÆVINTÝRAEYJA IBBA 600 KR. kl. 4 - 6
THE HEARTBREAK KID kl. 8 - 10.30
LIONS FOR LAMBS kl. 10
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
RENDITION kl. 5.30- 8 -10.30
EASTERN PROMISES kl. 8 - 10.40
SYNDIR FEÐRANNA SÍÐUSTU SÝN. kl. 6 - 8 - 10
VEÐRAMÓT SÍÐUSTU SÝN. kl. 5.40 - 8 - 10:20
ELIZABETH kl. 5.30
NÝTT Í BÍÓ!
Eitthvað hefur komið fyrir Dan. Það er flókið. Það
er óvenjulegt. Það er fjölskylduvandamál.
Steve Carell úr 40 year Old Virgin og Evan
Almighty leikur ekkill sem verður ástfanginn af
kærastu bróður síns!
Frábær rómantísk gamanmynd í
eftir handrithöfund About a Boy
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR
ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFSTBRÚÐKAUPSBILUN
DAN Í RAUN OG VERU
LÍF RÓSARINNAR
BORÐTENNISBULL
ÁSTARSORG
LOFORÐ ÚR AUSTRI
ÞETTA ER ENGLAND
LJÓN FYRIR LÖMB
Stórskemmtileg
rómantísk
gamanmynd
- bara lúxus
Sími: 553 2075
RENDITION kl. 5.30, 8 og 10.30 16
AMERICAN GANGSTER kl. 7 og 10 16
MR. WOODCOCK kl. 6 og 8 L
ROGUE ASSASSIN kl. 10 16
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
www.laugarasbio.is - Miðasala á
SV MBLLIB TOPP5.IS
LIB - TOPP5.IS
HJ - MBL
Mr. Silla og Mongoose eru þau Sig-
urlaug Gísladóttir og Magnús B.
Skarphéðinsson. Þau tóku upp sam-
starf eftir að þau komu fram á sama
kvöldinu á Airwaves fyrir tveimur
árum, en Foxbite er fyrsti ávöxtur
þess samstarfs.
Tónlistin á Foxbite er í grunninn
raftónlist, en hefðbundin og óraf-
mögnuð hljóðfæri blandast inn í
mörg laganna. Þetta er frekar róleg
tónlist og á köflum tilraunakennd.
Mr. Silla vakti mikla athygli á fyrr-
nefndri Airwaves-hátíð árið 2005.
Ég var einn af þeim sem kolféll fyrir
söngnum hennar og sviðsnærveru
og hef beðið spenntur eftir að heyra
meira frá henni alla tíð síðan. Tón-
leikar Mr. Sillu & Mongoose á síð-
ustu Airwaves-hátíð voru líka mjög
fínir.
Ég verð hins vegar að viðurkenna
að ég varð fyrir vonbrigðum með
Foxbite. Ekki að þetta sé slæm plata,
en ég bjóst við enn meiru. Það eru
15 lög á plötunni og nokkur þeirra
eru frábær. Ég nefni Ten Foot Bear,
Raggedypack, I Don‘t og Organ
Deviltry. Inn á milli og þá sérstak-
lega á seinni hluta plötunnar eru
hins vegar lög sem eru eins og
ókláraðar skissur og draga heildina
niður. Lagleysur geta alveg verið
skemmtilegar, en stykki eins og I’ve
Been Hit og I Only Want Chicken
hljóma ómarkviss og hreint út sagt
leiðinleg. Mér finnst líka hljómur-
inn á plötunni ekki alveg nógu góður.
Hún hljómar stundum svolítið
„dated“ og þó að það séu flottir takt-
ar og athyglisverðar hljóðpælingar í
mörgum laganna þá finnst mér
vanta dýpt í heildarhljóminn. Platan
hefði ugglaust orðið betri ef lögin
hefðu verið aðeins færri og meira
verið lagt í hvert og eitt.
En eins og áður segir er Foxbite
samt alls ekki slæm plata. Mr. Silla
er frábær söngkona og maður heyr-
ir það vel í nokkrum laganna á plöt-
unni, t.d. Ten Foot Bear og I Don’t. Á
heildina litið er þetta athyglisverð
plata frá mjög efnilegu tvíeyki sem
eflaust á eftir að gera enn betri hluti
í framtíðinni.
Trausti Júlíusson
Efnilegt tvíeyki
TÓNLIST
Foxbite
Mr. Silla & Mongoose
★★★
Þrátt fyrir að vera of löng og á köflum
ómarkviss er Foxbite athyglisverð
plata frá efnilegu tvíeyki. Mr. Silla
sýnir að hún er eina af bestu söng-
konum landsins.
Danssveitirnar Bloodgroup,
Sometime og Sven Bit, sem áður
hét Hermigervill, spila í kvöld á
íslensku menningarhátíðinni
ICE07 sem verður haldin í Liver-
pool um helgina í tilefni af 800
ára afmæli borgarinnar. Tónleik-
arnir verða jafnframt hluti af
tónleikaröðinni Reykjavik Nights
sem er haldin á vegum fyrirtæk-
isins Two Little Dogs.
„Þetta er frábær kynning og
þessi tónleikaröð hefur komið
ótrúlega vel út. Við höfum fengið
ótrúlega góða kynningu enda er
ég með gott fólk með mér að
kynna þetta,“ segir Kolbrún
Karlsdóttir, stofnandi Two Little
Dogs.
„Þessi tónleikaröð er gott tæki-
færi fyrir listamenn til að fara út
fyrir landsteinana og spila fyrir
annan áheyrendahóp.“ Dans-
sveitirnar þrjár spiluðu á staðn-
um The Luminaire í London í
gærkvöldi og annað kvöld spila
þær síðan á hátíðinni Sci-Fi Mini-
fest í Nottingham.
Sex Reykjavik Nights-tónleik-
ar verða haldnir í London á næsta
ári. Auk þess flytur Two Little
Dogs hingað til lands breska tón-
listarmanninn Tim Ten Yen í
næsta mánuði og í mars á næsta
ári kemur hingað bandaríska
rokksveitin The Pains Of Being
Pure At Heart.
Viðræður eru í gangi við fleiri
sveitir um tónleikahald hérlend-
is.
- fb
Þrjár danssveitir í Liverpool
Trommuleikarinn Einar
Scheving hefur gefið út sína
fyrstu sólóplötu, Cycles.
Var hún tekin upp á að-
eins tveimur dögum í einu
þekktasta og besta hljóð-
veri New York.
Trommuleikarinn Einar Scheving
hefur í nógu að snúast. Hann spil-
ar með fönksveitinni Jagúar, spil-
ar á sýningu í Þjóðleikhúsinu og er
að undirbúa sig fyrir þrenna jóla-
tónleika Björgvins Halldórssonar
í Laugardalshöll. Þar fyrir utan
gaf hann fyrir skömmu út sína
fyrstu sólóplötu, hina lágstemmdu
og þægilegu Cycles. Honum til
halds og trausts eru nokkrir af
fremstu hljóðfæraleikunum þjóð-
arinnar, þeir Eyþór Gunnarsson,
Skúli Sverrisson og Óskar Guð-
jónsson.
Snillingar til hjálpar
„Frá því að ég fór að semja músík
fyrir alvöru er ég búinn að stefna
að þessu,“ segir Einar um plötuna.
„Fyrst ætlaði ég að gera meiri
ekta djassplötu og fá erlenda spil-
ara með mér. Eftir því sem ég fór
að þróa þessi lög meira sá ég að
það var svo mikið íslenskt sánd í
þeim. Þá datt mér í hug að fá þessa
félaga mína með mér. Þetta eru
náttúrlega bara snillingar, engum
líkir,“ segir hann.
Spjallaði við Donald Fagen
Platan var tekin upp á aðeins
tveimur dögum í einu þekktasta
og besta hljóðverinu í New York,
Avator. „Vikuna sem við vorum
þarna rakst maður á Donald Fagen
(úr Steely Dan) og John Mayer og
ég spjallaði aðeins við Fagen. Ef
þú ert kominn í „professional stúd-
íó“ þá rekast menn á einhver nöfn.
Það þykir í sjálfu sér ekki merki-
legt,“ segir Einar, sem flutti heim
frá Bandaríkjunum fyrir einu og
hálfu ári eftir tæplega tíu ára dvöl
þar í landi. Stundaði hann nám við
háskóla í Miami og ílengdist síðan
þar. Bauðst honum staða við skól-
ann auk þess sem hann spilaði
víða, meðal annars í R&B-hljóm-
sveit. Eftir það bjó hann í tæpt ár í
New York áður en hann dreif sig á
endanum heim.
Einar, sem hlaut Íslensku tón-
listarverðlaunin í fyrra fyrir besta
djasslagið, stefnir á að halda
útgáfutónleika snemma á næsta
ári til að kynna Cycles enn frekar.
freyr@frettabladid.is
Íslenskur hljómur Einars
EINAR SCHEVING Trommuleikarinn Einar Scheving hefur gefið út sína fyrstu sólóplötu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BLOODGROUP Hljómsveitin Blood-
group spilar í Liverpool í kvöld ásamt
Sometime og Sven Bit.