Fréttablaðið - 29.11.2007, Blaðsíða 8
8 29. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR
MENNING Málverkið Hvítasunnumorgunn verður
höfuðverk í sýningu Listasafns Reykjavíkur sem
opnuð verður á sunnudag á Kjarvalsstöðum. Verkið
var selt óþekktum íslenskum kaupanda á uppboði hjá
uppboðshúsi Bruun Rasmussens í Kaupmannahöfn í
febrúar fyrir metupphæð, eða ríflega 25 milljónir
króna með gjöldum. Milligönguaðili var Gallerí Fold
og nú hefur verið upplýst að Landsbankinn var á bak
við kaupin.
Tilvist Hvítasunnumorguns var ókunnug áður en
það birtist í skrám danska uppboðshússins, en það
hafði verið í eigu fjölskyldu sem Kjarval var í tengsl-
um við á öðrum áratug síðustu aldar. Fréttablaðið hefur
heimildir fyrir því að sá sem fann verkið og átti þegar
það var selt á uppboðinu hafi verið Jónas Freydal lista-
verkasali.
Viðskiptaleyndarmál
Aðspurður segist Jónas hvorki vilja neita þessu né játa.
„Það er ekkert meira um það að segja en að þetta er
viðskiptaleyndarmál. Menn á Íslandi verða að fara að
skilja hvað í því orði felst,“ segir Jónas.
Eins og greint var frá í Menningu, fylgiriti Frétta-
blaðsins, hefur Jónas nýverið lagt fram möppu sem
hann fann með áður óþekktum verkum eftir Þorvald
Skúlason frá dvöl listamannsins í Frakklandi á fyrstu
árum stríðsins.
Hefur þeim fundi verið mætt með þögn í öllum
öðrum fjölmiðlum, en Jónas var á sínum tíma
ákærður og sýknaður í svokölluðu stóra málverkaföls-
unarmáli.
Almælt er í hópi þeirra sem höndla
með eldri málverk íslensk að Jónas
standi á bak við fleiri verk sem
komið hafa fram á síðustu misser-
um á uppboðum Bruun, en hann vill
ekki tjá sig um þau mál. Þannig
hefur verulegt magn
smáverka eftir Svavar
Guðnasson selst á uppboðum Bruun undanfarið en
uppboðshúsið neitar að gefa upp eigendasögu í
flestum tilvikum.
Skattalegur trúnaður
Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til breytinga á versl-
unarlögum þar sem harðar er kveðið á um eigenda-
sögu í kaupum og sölu á myndlistarverkum. Er sú
krafa lögð á uppboðsaðila að eigendasaga liggi fyrir
áður en verk er selt. Uppboðshús víða um heim líta á
sölu listaverka sem trúnaðarmál seljanda og þess sem
höndlar með verkið. Er sá trúnaður einkum sprottinn
af skattalegu tilliti. Flest uppboðshús hafa á sínum
vegum sérfræðinga sem meta hvort verkið er ófalsað
áður en til uppboðs kemur. Hér á landi reyndist
þekking á þeim verkum sem talin voru fölsuð bundin
við sérfræðinga safna sem voru hagsmunaaðilar að
málinu.
Með Hvítasunnumorgni verða sýnd önnur verk úr
eigu Landsbankans. Sýningarstjóri er Aðalsteinn
Ingólfsson. pbb@frettabladid.is
Jónas Freydal fann
Hvítasunnumorgun
Átti verkið þegar það var selt fyrir metfé á uppboði í Danmörku fyrr á þessu
ári. Kaupandinn var Landsbankinn fyrir milligöngu Gallerí Foldar.
MYNDLIST Jónas Freydal,
listaverkasali og athafnamaður,
segir það viðskiptaleyndarmál
hvort hann hafi átt verkið.
UPPBOÐIÐ HJÁ BRUUN Hvítasunnumorgunn eftir Jóhannes
Sveinsson Kjarval er einstakt í röð verka málarans.
FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
GIRNILEGIR VEISLUBAKKAR
MEÐ LITLUM FYRIRVARA
554 6999 | www.jumbo.is
BLANDAÐUR
BAKKI 3.580 kr.
SAMLOKU-
BAKKI 2.890 kr.
TORTILLA
& PÓLARBRAUÐ
3.480 kr. FONDU
SÚKKULAÐIBAKKI
2.950 kr.
32
BITAR
10
MANNS
36
BITAR
36
BITAR
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið
VIÐSKIPTI „Síminn hefur ekki
stoppað hjá mér eftir að fréttin
birtist í Fréttablaðinu,“ segir
Gunnar Guðsveinsson hjá Sæl-
keradreifingu. Fyrirtækið er
aðalinnflytjandi á japanska nauta-
kjötinu Wagyu, sem kemur af
nautgripum sem aldir eru á bjór
og úrvalsfæði og fara reglulega í
nudd.
„Fólk hringdi til að forvitnast
um á hvaða veitingahúsum það
gæti fengið svona steik og í hvaða
verslunum kjötið verður til sölu.
Þá var verið að spyrja um hvern-
ig ætti að elda kjötið og af hverju
það væri svona dýrt,“ segir Gunn-
ar, en kíló af kjötinu mun líklega
kosta um sextán þúsund krónur
út úr búð.
Að sögn Gunnars höfðu þó
nokkrar verslanir samband og
vildu kaupa allt það kjöt sem væri
í boði. „Mestur tíminn hjá mér í
gær fór í að reyna að redda meira
kjöti. Ég er búinn að fá pantanir í
næstum þrjú hundruð kíló af kjöt-
inu en ég á eftir að redda því öllu.
Eins og er eru fimm hundruð kíló
á leiðinni til landsins, en ég þyrfti
að fá svona sex til sjö hundruð
kíló. Birgjarnir mínir í Evrópu
anna bara ekki eftirspurninni
eins og er.“
Að sögn Gunnars verður kjötið
til sölu í flestum betri matvöru-
búðum landsins um hátíðirnar, en
framboðið verði takmarkað.
- æþe
Wagyu-nautakjöt rýkur út eins og heitar lummur eftir umfjöllun Fréttablaðsins:
Fimm hundruð kíló á leiðinni
WAGYU NAUT Nautgripirnir eru fóðraðir
á úrvalsfæði sem þeir skola niður með
bjór undir klassískri tónlist.