Fréttablaðið - 29.11.2007, Blaðsíða 52
29. NÓVEMBER 2007 FIMMTUDAGUR12 ● fréttablaðið ● íslenskur iðnaður
Heimurinn er fullur af ómissandi hlutum
sem hugsuðir hafa fundið upp okkur
hinum til hagleiks. Hér eru fimm
hlutir sem breyttu heiminum til
hins betra.
Fimm frábærar
uppfinningar
KLÓSETTIÐ
Reyndu að
ímynda þér
stórborgir
heimsins án
klósetts. Sú
uppfinning að
fjarlægja skolp
jafnóðum með
hreinu vatni
hefur gert okkur
mögulegt að
búa í þéttbýli
án sjúkdóma
og smithættu
af völdum saur-
gerla og almenns
óþrifnaðar.
SÍMINN Marga hafði reyndar dreymt
um einhvers konar tæki sem gerði fólki
kleift að tala við aðra án þess að fara
að heiman, en loks þegar síminn varð
að veruleika gat hver sem er talað við
hvern sem er á hvaða tíma sem var.
Í kjölfarið minnkaði heimurinn og
tengslanet mannanna þéttist.
P-PILLAN Getnaðarvarnapillan breytti
hlutverki kvenna í samfélaginu og
mannkynssögunni. Loks gátu konur
notið kynlífs á við karla, án þess að eiga
á hættu
á ótíma-
bærri
þungun.
TÖLVAN Einmana fólk eignaðist vini á
endanum. Tölvan spilar leiki við eiganda
sinn, segir honum brandara, leikur tón-
list fyrir hann, fyllir út skattframtalið og
er endalaus uppspretta samræðna við
aðra heimsbúa, og þá er fátt upptalið af
kostum tölvunnar og áhrifum hennar í
veröldinni.
BÍLLINN Eftir að bíllinn var fundinn upp
bötnuðu vegir og þegar vegir skánuðu
byrjuðu borgir að myndast því fólk gat
loks búið í sveitum en unnið í borginni.
Enn fremur blómstraði olíuiðnaður eftir
því sem bílaeign varð algengari og olía
varð lykill að völdum og auðæfum.
Þegar farið er inn á vefsíðu Iðunnar
fræðsluseturs má sjá árganga útskrifast
úr mannvirkjahönnun, en þar er þó
ekki um nýtt eða sérhæft nám í mann-
virkjahönnun að ræða.
„Námskeið í mannvirkjahönnun sækja arki-
tektar, byggingafræðingar, verkfræðingar,
tæknifræðingar og aðrir sem hanna mann-
virki. Á því er aðallega farið yfir reglu-
gerðir og lög sem heyra undir mannvirki,“
segir Birgir Hólm Ólafsson, fræðslufull-
trúi bygginga- og mannvirkjasviðs á Iðunni
fræðslusetri.
„Námskeiðið heitir Löggilding mann-
virkjahönnuða og var sett á laggirnar í
kjölfar nýrrar reglugerðar sem iðnaðar-
ráðuneytið setti árið 2002. Þetta er 48 tíma
námskeið á þremur helgum sem endar með
prófi sem veitir þeim sem standast það lög-
gildingu til að skila inn teikningum til sam-
þykktar hjá byggingarnefnd og byggingar-
fulltrúa,“ segir Birgir, en allir sem útskrif-
ast hafa í ofantöldum starfsgreinum frá
árinu 1998 þurfa að fara í gegnum nám-
skeiðið til að öðlast löggildingu.
„Þessu námskeiði ljúka um sextíu manns
á ári, en til þess að mega sækja það þurfa
menn að hafa á bilinu tuttugu mánaða til
þriggja ára starfsreynslu. Það á þó ekki við
um arkitektinn,“ segir Birgir. - þlg
Hvað er mannvirkjahönnun?
Þótt vatnstankarnir í Öskjuhlíð myndi góða stólpa
undir Perlunni þarf meiri tækniútfærslu til að halda
svo flókinni byggingu uppi og til þess þarf löggild-
ingu í mannvirkjahönnun.
VIÐ FJÁRMÖGNUM
ÞAÐ SEM UPP Á VANTAR!
Ertu að spá í atvinnutæki?
Nýttu þér upplýsingar og reiknivélar á
www.gf.is eða hafðu samband við ráðgjafa
okkar í síma 440 4400.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
7
2
3
5