Fréttablaðið - 29.11.2007, Blaðsíða 74
46 29. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR
Steinunn Helga Sigurðardóttir
opnar sýningu sem kallast „Að
snertast í augnablikinu“ á Café
Karólínu á Akureyri á laugardag
kl. 14.
Steinunn Helga útskrifaðist úr
Myndlista- og handíðaskóla
Íslands árið 1993 og stundaði
framhaldsnám í myndlist hjá
Jannis Kounellis í Listaháskólan-
um í Düsseldorf.
Frá námslokum hefur hún
haldið fjölda sýninga hérlendis
og erlendis.
Á sýningunni á Café Karólínu
reynir Steinunn að setja í form
vangaveltur sínar um drauma,
hugsanir, raunveruleikann og
ímyndunarheiminn.
Verkin veita engin svör en í
þeim birtist leikur á mörkum
tveggja heima. Sýning Steinunn-
ar stendur til 4. janúar næstkom-
andi. - vþ
Sönghópurinn Norðurljós og Húnakórinn halda
saman jólatónleika næstkomandi laugardag í
Breiðholtskirkju kl. 17. Ásamt kórunum kemur
fram einsöngvarinn Gunnhildur Halla Baldursdótt-
ir.
Efnisskrá tónleikanna er fjölskylduvæn í meira
lagi, en á henni má finna bæði jólalög og tónlist í
tilefni af fullveldisdegi Íslendinga. Á meðal þeirra
laga sem flutt verða eru Ísland ögrum skorið, Ísland
er land þitt og Jól, jól skínandi skær.
Stjórnendur á tónleikunum eru þeir Jón Bjarna-
son sem stýrir Húnakórnum og Julian Edward
Isaacs sem stýrir Norðurljósum. Þó er vert að
benda á að kórarnir tveir syngja samsöng ríflega
hálfa tónleikana og skiptast þeir Jón og Julian þá á
að stýra söngnum. Miðaverð á tónleikana er 1.000
krónur en aðgangur er ókeypis fyrir börn undir tólf
ára aldri. - vþ
HVÍT FJÖLL Verk eftir Kristínu Gunnlaugs-
dóttur.
Myndlistarmaðurinn Kristín
Gunnlaugsdóttir opnar sýningu í
Gallery Turpentine, Ingólfsstræti
5, á morgun kl. 17. Yfirskrift
sýningarinnar er Fjallalandið.
Á sýningunni má sjá verk sem
Kristín hefur unnið undanfarin tvö
ár og eru viðfangsefni þeirra fjöll
og grýtt landslag. Ekki er þó allt
sem sýnist þar sem verkin fjalla
um innhverfari viðfangsefni en
hreint og beint landslag. Fjöllin á
sýningunni sýna okkur fjallendi
mannssálarinnar og vegferð
mannsins um hinar grýttu innri
torfærur vitundarinnar.
Til sýnis verða olíumálverk,
eggtemperuverk og teikningar.
Sýningin stendur til 15. desember.
Gallery Turpentine er opið
þriðjudaga til föstudaga frá 12-18
og laugardaga frá 12-17. - vþ
Hin innri
fjallasýn
RAUNVERULEIKI Ljósmynd eftir Stein-
unni Helgu.
Unnið með augnablikið
TÓNLISTARLÍF Í BREIÐHOLTI Æft hefur verið af kappi fyrir tón-
leikana. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
Þjóðleg aðventa
LAUGARDAGUR 1. DES KL. 17
TÍBRÁ: SÖNGTÓNLEIKAR
AUÐUR, BEGGI OG JÓNAS
LÖG JÓNS ÁSGEIRSSONAR
Miðaverð 2000/1600 kr.
MIÐVIKUDAGUR 5. DES KL. 20
PÍANÓTÓNLEIKAR
JÓNAS INGIMUNDARSON
Aðgangur ókeypis.
LAUGARDAGUR 8. DES KL. 13
TKTK: GÍTARTÓNLEIKAR
JÓN GUÐMUNDSSON
Miðaverð 1500/500 kr.
SUNNUDAGUR 9. DES KL. 20
Ó Ó INGIBJÖRG – útg.tónl.
ÓSKAR, ÓMAR OG INGIBJÖRG
GUÐJÓNSBÖRN
Miðaverð 2000/1600 kr.
22. nóvember - uppselt
23. nóvember - uppselt
30. nóvember - uppselt
1. desember - uppselt
7. desember - uppselt
8. desember - uppselt
Þjóðleikhúsið
um helgina
Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00
mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00.
Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Konan áður fös. 30/11, sun. 2/11
Leg allra síðasta sýn. fim. 29/11 uppselt
Óhapp! næstsíðasta sýn. fös. 30/11
örfá sæti laus
Leitin að jólunum lau. 1/12 (frumsýn.),
sun. 2/12 uppselt
Skilaboðaskjóðan sun. 2/11 uppselt
Hjónabandsglæpir fim. 29/11
örfá sæti laus
Hamskiptin síðustu sýn. fös. 30/11, lau. 1/12
örfá sæti laus