Fréttablaðið - 29.11.2007, Blaðsíða 50
29. NÓVEMBER 2007 FIMMTUDAGUR10 ● fréttablaðið ● íslenskur iðnaður
Petromodel er nýtt sprotafyrirtæki hjá
Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Það hannar
hugbúnað og mælitæki fyrir malariðnað.
Þorgeir Helgason er frum kvöðull þeirrar
tækni sem þar er þróuð en hann segir
markmið fyrirtækisins vera að færa
malar iðnaðinn nær nútímanum.
Petromodel er nýtt sprotafyrirtæki sem
hefur hafið starfsemi hjá Nýsköpunar-
miðstöð Íslands. Fyrirtækið hannar hug-
búnað og mælitæki fyrir malariðnað.
„Við hjá Petromodel hönnum hugbúnað
og mælitæki til þess að prófa framleiðslu
frá jarðefna- og steinefnaiðnaðinum. Um
er að ræða til dæmis möl, sand og grjót-
mulning sem aftur á móti eru hráefni í
steypu, húsgrunna, malbik og stíflur svo
fátt eitt sé nefnt,“ segir Þorgeir Helgason,
frumkvöðull þessarar tækni. „Framleið-
endur eiga að uppfylla viss skilyrði varð-
andi þessi efni en dráttur hefur orðið á
því hér á landi að uppfylla nýlega Evrópu-
staðla.“
Þorgeir starfaði í tíu ár hjá Rannsókna-
stofnun byggingariðnaðarins og í önnur
tíu ár á verkfræðistofu, eftir að hafa lokið
jarðfræðiprófi á Íslandi og meistaraprófi í
jarðverksfræði í Kanada. Hann hefur því
verið viðloðandi jarðefnaiðnaðinn mestalla
sína starfsævi, löngu áður en Petromodel
var sett á laggirnar.
Þorgeir bendir á að í fyrrnefndum
stöðlum sé kveðið á um þá eiginleika sem
framleiðendur eigi að gefa upp um fram-
leiðslu sína við kaupendur efnanna. „Til
dæmis þurfa byggingaverktakar sem kaupa
hráefni í steypu að geta gengið að eigin-
leikum vörunnar sem vísum. Með útbúnaði
frá Petromodel geta kaupendur þessarar
vöru kannað gæði hennar,“ segir hann.
Þorgeir bendir enn fremur á að þótt
jarðefnaiðnaðurinn styðjist við traustar
aðferðir til mælinga og stöðlunar séu
þær gamlar og oft og tíðum úreltar og
seinvirkar.
„Petromodel er að færa þennan iðnað
nær nútímanum, svipað og til dæmis Marel
hefur gert í matvælaiðnaðinum,“ segir
hann og bætir við að fyrirtækið hafi nýlega
gengið til samstarfs við Sigurð Þór Kristj-
ánsson um fjárfestingu í Petromodel.
„Sigurður hefur tæplega þrjátíu ára
reynslu af greininni sem framleiðslustjóri
Björgunar ehf. og hefur fullan skilning á
okkar vinnu. Þetta er stórt skref fram á
við en oft hefur verið erfitt að fjármagna
verkefni okkar.“
Þorgeir bendir á að starf Petromodel
hafi þýðingu fyrir Ísland frá alþjóðlegu
sjónarmiði því að jarðefnaiðnaðurinn sé
gríðarstór í heiminum og vaxi víða mjög
hratt í löndum sem eru í óða önn að tækni-
væðast með tilheyrandi framkvæmdum.
„Því eykst þörfin fyrir mælitækin jafn-
hliða auknum framkvæmdum. Þar sem
Petromodel hefur alþjóðlegt einkaleyfi
á þeirri tækni sem það er að þróa fyrir
greinina leiðir það aftur til þess að staða
fyrirtækisins er einstök í heiminum.“ - þr
Malariðnaður í takt við nútímann
Þorgeir Helgason er frumkvöðull þeirrar tækni sem þróuð er á Petromodel. Fyrir aftan hann situr Þorsteinn
Sigfússon, forstöðumaður Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, sem virðir fyrir sér mælitæki fyrirtækisins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Mælitækið er notað til að prófa framleiðslu frá jarð-
efna- og steinefnaiðnaðinum, til dæmis möl, sand
og grjót sem eru hráefni í steypu og fleira.
Með notkun SuncoolTM HP gæðaglers frá
Glerborg er auðvelt að halda kjörhita
innandyra og hitaútstreymið er lítið.
Dalshrauni 5 220 Hafnarfi rði Sími 555 3333 www.glerborg.is
Gæði glersins
skipta öllu máli