Fréttablaðið - 29.11.2007, Blaðsíða 85
FIMMTUDAGUR 29. nóvember 2007 57
Hljómsveit-
irnar Cliff
Clavin, Art-
ika og Thing-
tak eru
komnar í
úrslit hljóm-
sveitar-
keppninnar
Global Batt-
le of the
Bands sem
verður hald-
in á Gauki á
Stöng á
föstudags-
kvöld.
Fleiri hljómsveitir bætast við í
kvöld þegar síðara undanúrslita-
kvöldið verður háð á Gauknum.
Etja þá kappi Endless Dark, Ask
the Slave,
My Cryptic
Project,
Narfur, Tab
22 og Stor-
yteller. Sig-
urvegarinn
á föstudags-
kvöld kepp-
ir fyrir
Íslands hönd
í lokakeppni
Global Batt-
le of the
Bands í
London 4. til
6. desember.
Í verðlaun eru sex milljónir og
tónleikaferð um heiminn. Gauk-
urinn verður opnaður kl. 20 öll
kvöldin og kostar 500 kr. inn.
Þrjár sveitir áfram
ASK THE SLAVE Hljómsveitin Ask the Slave verður
á meðal keppenda í kvöld.
Plötusnúðurinn Deadmau5 þeytir
skífum á Nasa á föstudagskvöld.
„Hann er nýkominn á danstónlist-
armarkaðinn en er strax búinn að
slá í gegn,“ segir Kiddi hjá Flex
Music sem stendur fyrir tónleik-
unum.
Tónlistarmenn og plötusnúðar á
borð við Tiesto, Carl Cox, Nic
Fanciulli, James Zabiela, Paul
Van Dyke, Sasha, John Digweed,
Sebastien Leger, Chris Lake og
Eddie Halliwell hafa allir verið að
spila tónlist frá Deadmau5.
Sömuleiðis hefur hann verið iðinn
við að endurhljóðblanda hin ýmsu
lög. Forsala á Deadmau5 fer fram
í Mohawks og á Skór.is. Miðaverð
er 2.000 krónur.
Deadmau5
þeytir skífum
DEADMAU5 Plötusnúðurinn Deadmau5
þeytir skífum á Nasa á föstudagskvöld.
Hljómsveitin Thundercats heldur
útgáfutónleika á Organ í kvöld til
að fagna sinni fyrstu plötu, New
Wave. Þýska útgáfufyrirtækið
Nordic notes gefur plötuna út í
Þýskalandi, Austurríki og Sviss
en útgáfa kattanna, Hanndatt,
gefur út hér á landi.
Kjarni sveitarinnar er mannað-
ur af tveimur meðlimum rokk-
sveitarinnar Úlpu en að vanda
mun tónlistarkonan Jara syngja
með þeim á tónleikunum og grípa
í einhver hljóðfæri. Tónleikarnir
hefjast klukkan 23 og er ókeypis
inn. Hægt verður að kaupa
plötuna á góðu verði á tónleikun-
um. Nánari upplýsingar um
Thundercats má finna á www.
myspace.com/hanndatt.
Thundercats
fagna útgáfu
THUNDERCATS Hljómsveitin Thundercats
heldur útgáfutónleika á Organ í kvöld.
Hljómsveitin Hjálmar heldur
tvenna útgáfutónleika fyrir
norðan á næstunni til að kynna
nýjustu plötu sína, Ferðasót.
Fyrri tónleikarnir verða á Græna
hattinum á Akureyri á föstudags-
kvöld og síðari tónleikarnir verða
í Síldarminjasafni Siglufjarðar,
Gránu, á laugardag klukkan 15.
Hjálmar héldu vel heppnaða
útgáfutónleika á Nasa síðastliðinn
laugardag þar sem gestir
skemmtu sér konunglega. Spiluðu
þá þrír nýir liðsmenn sveitarinn-
ar með henni í fyrsta sinn, þeir
Helgi Svavar, Davíð Þór og
Valdimar úr hljómsveitinni Flís.
Tvöfalt hjá
Hjálmum
HJÁLMAR Hljómsveitin Hjálmar heldur
tvenna útgáfutónleika fyrir norðan á
næstunni.
Anarkistahópurinn Andspyrna og
náttúruverndarhreyfingin Saving
Iceland halda andspyrnuhátíð í
Tónlistarþróunarmiðstöðinni á
föstudag. Fram koma sjö hljóm-
sveitir úr pönk- og rokkgeiranum,
þar meðal Reykjavík!, Celestine,
We Made God og Dys.
Skipuleggjandinn Siggi Pönk
segir að hátíðin sé sú sjöunda í röð-
inni. „Markmiðið með þessari
hátíð er að gefa út túristabækling
á ensku og þýsku til að benda þeim
á að það er verið að eyðileggja
landið sem þau eru að skoða,“ segir
Siggi. „Það verður að hafa öll járn
úti til að verja landið fyrir gróða-
pungum. Það er engin hugsjón á
bak við það að virkja enda er ekk-
ert atvinnuleysi eða neitt.“
Á hátíðinni verða hljómsveitir
færðar niður af sviðinu þannig að
skilin milli hljómsveitar og tón-
leikagesta verða engin. Myndvarpi
mun varpa kvikmyndum á veggi
Hellisins auk þess sem geisladisk-
ar, vinylplötur og kassettur verða
seld. Hátíðin hefst klukkan 20 og
ætti að vera lokið um klukkan 23.
Aðgangseyrir er 500 krónur.
Rokk og andspyrna
REYKJAVÍK! Hljómsveitin Reykjavík! spil-
ar á andspyrnutónleikum á föstudag.
NÝDÖNSK
Frábær safnplötupakki
Vinsælustu lögin og DVD mynddiskur
með öllum myndböndunum.
8 geislaplötur
Allar hljóðversplöturnar ásamt aukaplötu.
60 síðna textabók með öllum textunum.
20 ára afmælisútgáfur 1987 - 2007