Fréttablaðið - 19.04.2008, Síða 6

Fréttablaðið - 19.04.2008, Síða 6
6 19. apríl 2008 LAUGARDAGUR UMHVERFISMÁL Blaðberanum var vel tekið í gær og góð stemning myndaðist á þeim stöðum sem honum var dreift. Blaðberinn er endurvinnslutaska fyrir dagblöð sem Tinna Gunnarsdóttir hannaði fyrir útgáfufélag Fréttablaðsins, 365 miðla. Útgefendur Fréttablaðsins vilja með dreifingu Blaðberans efla vitund um umhverfisvernd og nýtingu verðmæta og hvetja til þess að dagblöð rati í endurvinnslu í stað þess að vera fleygt með öðru heimilissorpi. Dreifing Blaðberans fer fram milli klukkan 11 og 18 í dag í Kringlunni, Smáralind, Bónus Fiskislóð, Bónus Holtagörðum og Hagkaupum Eiðistorgi. Eftir helgina verður hægt að nálgast Blaðberann í höfuðstöðvum 365 við Skaftahlíð. Þá er ráðgert að dreifa Blaðberum á Akureyri laugardaginn eftir viku, milli klukkan 13 og 17 fyrir utan verslun Vodafone á Glerártorgi. - ovd Fréttablaðið gefur þrjátíu þúsund sérhannaðar endurvinnslutöskur fyrir dagblöð: Blaðberinn ákaflega vinsæll VIÐSKIPTI „Eins og árangurinn hefur verið undanfarin ár er erfitt að fá fjármagn inn í fyrirtækið,“ segir Finnbogi Baldvinsson, forstjóri Icelandic Group. Samþykkt var á átakalausum aðalfundi félagsins síðdegis í gær að taka tæpa fimm milljarða króna að láni, með 23 prósenta vöxtum. Landsbanki veitir lánið eða hefur milligöngu um það. „Lánamarkaðir eru erfiðir, og við erum að greiða næstum tíu prósent yfir íslenska vexti, en við höfum bara ekki fundið aðra leið,“ segir Finnbogi. Unnið er að miklum breytingum á rekstri fyrirtækisins. „Ef þetta fyrirtæki á að lifa þarf að skera burt þær einingar sem ekki eru að skila nægilegri framlegð,“ sagði Magnús Þorsteinsson, fráfarandi stjórnarformaður fyrirtækisins. Samkvæmt samþykktum aðal- fundarins verður hægt að breyta láninu í hlutafé í Icelandic Group. Það kann að þýða að lánveitandinn eignist stóra hluti í félaginu, en hlutir annarra minnki töluvert hlut- fallslega. Ný stjórn var kjörin á aðalfund- inum, en jafnframt var samþykkt samhljóða að veita henni heimild til afskráningar úr Kauphöllinni. - ikh Aðalfundur Icelandic Group ákveður að taka félagið út úr Kauphöllinni: Icelandic Group samþykkir að taka lán með yfirdráttarvöxtum FORSTJÓRI ICELAND- IC GROUP Finnbogi Baldvinsson, forstjóri Icelandic Group, á aðalfundinum í gær. Þar var samþykkt að taka fyrirtækið af markaði og taka millj- arða lán með háum vöxtum. Hefur þú búið annars staðar en á Íslandi? Já 44,3% Nei 55,7% SPURNING DAGSINS Í DAG: Á Orkuveita Reykjavíkur að selja Reykjavik Energy Invest? Segðu þína skoðun á visir.is GJÖRÐU SVO VEL Starfsmenn 365 höfðu í nógu að snúast við að dreifa Blaðberanum í gær enda viðtökur með eindæmum góðar. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA EFNAHAGSMÁL Geir H. Haarde for- sætisráðherra segir að á vegum rík- isstjórnarinnar og Seðlabankans, hafi „að undanförnu verið unnið baki brotnu að því að greiða úr þeim vanda sem hinar alþjóðlegu aðstæð- ur hafa skapað. Slíkar aðgerðir eru þess eðlis að undirbúningur þeirra tekur langan tíma og ekki er hægt að flytja af þeim fréttir frá degi til dags,“ sagði forsætisráðherra. Aðspurður um það á hvaða lund þessar aðgerðir gætu orðið, hvenær þær yrðu kynntar eða hvenær þjóð- in yrði vör við þær sagðist hann ekkert geta sagt um það, hann hefði lýst því yfir í ræðunni hefði það verið hægt. „Mikil opinber umræða getur verið óheppileg, skapað óraunhæfar væntingar og þar með jafnvel haft neikvæð áhrif,“ sagði hann í ávarpi sínu. Geir gagnrýndi framgöngu „ákveðinna stjórnmálamanna og fjölmiðla“ í umræðum um efna- hagsmál og taldi fjallað um málin af „nokkurri léttúð og jafnvel skiln- ingsleysi“. Hann benti á að staða lífeyris- sjóðanna væri sterk og lífeyris- sjóðakerfið sjálfbært. Þetta færi fram hjá erlendum aðilum. Erlend staða þjóðarbúsins væri miklu betri en tölur hefðu sýnt. Samkvæmt nýrri uppgjörsaðferð næmi hrein skuldastaða þjóðarbúsins 27 pró- sentum af landsframleiðslu í lok þriðja ársfjórðungs 2007 í stað 120 prósenta í fyrra uppgjöri. Ingimundur Sigurpálsson, fráfar- andi formaður SA, beindi því til for- sætisráðherra að gefa út yfirlýs- ingu með skýrum og afgerandi hætti um að unnið yrði að því að uppfylla skilyrði um stöðugt verð- lag, jafnvægi í ríkisfjármálum, stöðugleika í gengisskráningu og samhæfingu langtímavaxta sem sett séu fyrir aðild að Myntbanda- laginu. Ingimundur telur að með samningi við Seðlabankann yrði hafinn undirbúningur að nauðsyn- legum aðgerðum til að ná niður verðbólgu, lækka stýrivexti og tryggja aðhald í opinberum rekstri. Kristín Jóhannesdóttir, fram- kvæmdastjóri Gaums, krafðist aðildar Íslands að ESB. Edda Rós Karlsdóttir hagfræðingur sagði að Íslendingar þyrftu að leika eftir alþjóðlegum leikreglum og draga úr „sérkennilegheitahætti“ sínum erlendis. Þeir yrðu að sætta sig við minni hagvöxt um sinn. Stjórnvöld þyrftu að lýsa yfir stuðningi við verðbólgumarkmið Seðlabankans. Seðlabankinn þyrfti að taka þátt í opinberri umræðu frekar en að láta gagnrýnina krauma lengi. Þór Sigfússon var kjörinn nýr formaður SA með 94 prósentum atkvæða. ghs@frettabladid.is Mikil umræða getur haft neikvæð áhrif Geir H. Haarde forsætisráðherra segir unnið að aðgerðum til að taka á þeim efnahagsvanda sem alþjóðlegar aðstæður hafi skapað. Hann vill ekki segja hve- n ær þjóðin fær að vita um þær. „Mikil opinber umræða getur verið óheppileg.“ GETUR SKAPAÐ ÓRAUNHÆFAR VÆNTINGAR „Mikil opinber umræða getur verið óheppileg, skapað óraunhæfar væntingar og þar með jafnvel haft neikvæð áhrif,“ sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA Kveikt í ruslatunnu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að eldi í ruslatunnu í miðborg Reykjavíkur í fyrrinótt. Greiðlega gekk að slökkva eldinn sem greinilega var af mannavöldum. LÖGREGLUFRÉTTIR Niðurgreiðslur í sorpátaki Gámaþjónusta í Mýrdalshreppi verður niðurgreidd um helming út júnímán- uð vegna hreinsunarátaks í sveitarfé- laginu. MÝRDALSHREPPUR Aldraðir fá ókeypis í ræktina Eldri borgarar í Hveragerði fá ókeypis aðgang að tækjasal heilsuræktarinnar Laugasports frá og með sunnudegin- um 20. apríl. Þetta gildir milli klukkan níu og sextán virka daga og milli klukkan tíu og sextán um helgar. HVERAGERÐI NOREGUR, AP Í gær var lagt fram í norska þinginu frumvarp um að kaupendum vændis verði refsað, líkt og tíðkast hefur í Svíþjóð í nærri áratug. „Fólk er ekki sölu- vara,“ sagði Knut Storberg- et dómsmála- ráðherra, þegar frumvarpið var kynnt á þingi. Ef vændiskaup eru gerð ólögleg munu þeir sem stunda mansal síður líta til Noregs.“ Reiknað er með að stjórnar- flokkarnir þrír muni samþykkja lögin og þau taki gildi í byrjun næsta árs. - gb Nýtt frumvarp í Noregi: Vændiskaup gerð ólögleg KNUT STORBERGET BRUSSEL, AP Öll löndin fimmtán sem eru aðilar að evrópska myntbandalaginu stóðu við að hafa fjárlagahalla á síðasta ári innan þeirra marka sem kveðið er á um í stöðugleikasáttmála þess. Þetta kemur fram í nýbirtum gögnum frá hagstofu ESB, Eurostat. Að öllum evruþjóðunum skyldi hafa tekist að ná þessu markmiði er ekki síst rakið til þess að í þeim flestum voru skatttekjur á liðnu ári meiri en búist var við þar sem hagvöxtur jókst umfram spár. Árið áður höfðu bæði Portúgal og Ítalía verið með fjárlagahalla yfir settum mörkum, þremur prósentum af þjóðarframleiðslu. - aa Myntbandalag ESB: Fjárlagahalli innan marka KJÖRKASSINN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.