Fréttablaðið - 19.04.2008, Blaðsíða 48
● heimili&hönnun
„Við fórum út til að læra og höfum
ekki ennþá komið okkur heim,“
segir Halla Harðardóttir, sem er
nú að klára nám í listfræði í Bar-
celona, eftir að hafa lagt þar stund
á ljósmyndun. Sambýlismaður-
inn Arnar lærði forvörslu og hús-
gagnasmíði og hefur unnið við það
síðan hann kláraði námið. Skötu-
hjúin eiga tvö börn, Uglu, 3ja ára,
og Eldar, 3ja mánaða, og kann fjöl-
skyldan vel við sig í Barcelona.
Halla segir þau þó sakna þess að
vaða snjó og hangi pollagallar
barnanna ónotaðir inni í skáp.
„Eftir að hafa alist upp á Íslandi
verður frekar leiðigjarnt til lengd-
ar að sjá bara bláan himin, en það
skemmtilegasta við að búa í Bar-
celona er mannlífið. Hér rekst
maður á ótrúlegustu karaktera
og gotneska hverfið þar sem við
búum hefur upp á mestan fjöl-
breytileika að bjóða,“ segir Halla
og heldur áfram: „Á torginu við
hliðina á okkur býr félagi okkar,
norskur útigangsmaður, sem seldi
systur minni stóran og fallegan
antíkspegil um daginn. Hann fann
hann úti á götu, og þar sem hann á
engan stað til að hengja hann upp
á seldi hann Guðrúnu systur minni
spegilinn á 10 evrur. Hann hangir
nú uppi á vegg hjá okkur þangað
til systir mín sendir eftir honum.“
Íbúðin sem fjölskyldan býr í
er skemmtilega innréttuð og er
forláta leðurstóll sem Arnar gaf
Höllu í þrítugsafmælisgjöf í miklu
uppáhaldi hjá henni. Sjálfur held-
ur Arnar mest upp á smíðabekk,
sem nýtist nú sem hilla í svefn-
herberginu. Halla segir þau hafa
fundið flest húsgögnin á kompu-
dögum í hverfinu og síðast nældu
þau sér í Thonet-ruggustól.
Aðspurð eru þau sammála um
að eldhúsið sé hjarta heimilisins
og eyða mestum tíma þar. „Hér
er mjög gestkvæmt, okkur finnst
gaman að elda og við höldum mörg
matarboð. Hér er eldaður góður
matur af mikilli ást og þó nokk-
ur eldhúspartíin hafa endað með
því að dansað hefur verið fram
undir morgun,“ segir Halla hress
að lokum. - rat
Eldað af ást og dansað
fram undir morgun
● Halla Harðardóttir og Arnar Orri Bjarnason hafa búið í Barcelona undanfarin sjö ár og hafa komið sér
vel fyrir í gotneska hverfinu nálægt höfninni.
Eldhúsið er hjarta heimilisins að mati Höllu og Arnars og hér hefur verið dansað fram
undir morgun í matarboðum.
Í horni stofunnar má sjá uppáhalds stól Höllu sem hún fékk að gjöf frá Arnari. Hátt er
til lofts og fallegar gifsskreytingar í loftunum. Ugla óængð með athyglina.
Þvottur hangir á snúrum nágrannanna í þröngum bakgarðinum.
Ugla dóttir Höllu og Arnars leikur sér í
fallegu heimasmíðuðu eldhúsi.
Póstkort af íslensku kindinni leynist
innan um myndirnar á útidyrahurðinni
til að minna á heimahagana.
Gotneska hverfið hefur upp á mestan fjölbreytileika að bjóða að mati Höllu. MYND/HALLA HARÐARDÓTTIR
Halla, Ugla, Eldar og Arnar heima hjá sér í rólegheitum. Fjölskyldan ætlar að flytja
tímabundið út fyrir borgina og verður íbúðin þá til leigu. Halla bendir áhugasömum
á að hafa samband með því að senda póst á hallaha@gmail.com.
19. APRÍL 2008 LAUGARDAGUR6