Fréttablaðið - 19.04.2008, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 19.04.2008, Blaðsíða 18
 19. apríl 2008 LAUGARDAGUR H öfðingleg gjöf þeirra Lilju Sigurlínu Pálmadóttur, listamanns og hrossa- bónda, og Steinunnar Jónsdóttur innanhússarkitekts hefur vakið mikla athygli en þær byggja sundlaug á Hofsósi og gefa íbúum þar. Fyrst skóflustungan var tekin í vikunni. Báðar eiga þær Lilja og Steinunn rætur að rekja norður, Lilja er ættuð frá Hofi í föðurættina og Steinunn er ættuð úr Fljótum. Lilja rekur hrossabú og leggur stund á nám í hrossarækt á Hólum. Steinunn á hins vegar jörðina Bæ á Höfðaströnd og rekur þar listasetur og hrossabú. Rætur Lilju Pálmadóttur á Hofi liggja djúpt. Faðir hennar, Pálmi Jónsson sem oft hefur verið kenndur við Hagkaup, var alinn upp á Hofi. Hún var hjá ömmu sinni á Hofi á sumrin en afi Lilju ræktaði hross. Jörðin hafði verið í eigu fjölskyld- unnar frá 1911 þegar Pálmi og tvíburasystir hans seldu Hof 1982. Lilja og Baltasar, eiginmaður hennar, keyptu Hof aftur árið 2002 og hafa nú haft þar fasta búsetu í tvö ár. Lilju Pálmadóttur hafði lengi langað til að gera eitthvað sem skipti máli fyrir Hofsós og nágrenni. Á sama tíma og hún velti vöngum langaði hana alltaf í sund. Fyrir nokkrum árum fannst heitt vatn á svæðinu og þá datt henni í hug að hafa samband við Steinunni og athuga hvort hún væri til í að vera með í að byggja sundlaug fyrir Hofsósinga. Lilja og Steinunn höfðu aldrei hist eða talað saman áður en Steinunn var strax til í framkvæmdina og þurfti ekki einu sinni að hugsa sig um. Lilja er mikill dugnaðarforkur sem sést ekki síst á því uppbyggingarstarfi sem hún hefur unnið á Hofi undanfarin ár ásamt því að ala upp stóra, kraftmikla fjölskyldu. Hún gefur sig alla í það sem hún gerir, hvort sem það er myndlistarnám í New York og Barcelona eða hrossarækt í Hóla- skóla, og þessar tvær persónur þykja sitja vel saman, heimsborgarinn Lilja og Sigurlína hrossabóndi á Hofi. „Lilja hefur einstaka tilfinningu fyrir fagur- fræði og það sem kannski lýsir henni best er húsið sem hún hefur byggt á Hofi, sem er sennilega eitt besta hús sem hefur verið byggt á Íslandi síðari ár, vegna þess að það er hannað og byggt af einstakri næmni fyrir náttúrunni, staðháttum og fegurð,“ segir Halldór Lárusson, vinur hennar. Steinunn Jónsdóttir er dóttir hjónanna Jóns Helga Guðmundssonar, sem kenndur er við Byko, og Bertu Bragadóttur kennara. Steinunn á ættir að rekja í Fljótin en afi hennar Guðmundur Jónsson, faðir Jóns Helga í Byko, er frá Molastöð- um í Fljótum. Pabbi hennar var í sveit á Molastöð- um á yngri árum en sjálf var Steinunn hjá Hermanni Jónssyni, afabróður sínum í Lamba- nesi, og öðru skyldfólki sínu öll sumur í æsku. Steinunn hefur lengi átt sér þann draum að koma á fót listasetri þar sem listamönnum gefst færi á að dvelja um tíma og sinna list sinni. Í þessu augnamiði keypti hún jörðina Bæ á Höfða- strönd fyrir þremur árum. Steinunn féll fyrir útsýninu og hefur nú gert upp húsin á jörðinni, vinnustofur listamanna og hús fyrir fjölskylduna auk þess sem þar er stórt eldhús þar sem kokkur matreiðir fyrir listamennina og setustofa. Þá er hún með 23ja hesta hesthús, reiðaðstöðu og er byrjuð með hrossarækt. Steinunn er elst þriggja systkina, og fór gjarnan fyrir systkinum sínum í æsku, var full ábyrgðar gagnvart þeim, eins og títt er um elstu systkini. Hún var samviskusöm sem barn, raunsæ og jarðbundin og sinnti skólagöngu af alúð. Það orð fer af Steinunni að hún sé einstaklega traustur og góður vinur. Hún lifir heilbrigðu lífi og hugsar vel um líkama og sál. Hún æfði sund og var góður sundmaður en eitt af hennar helstu áhugamálum á fullorðinsárum er langhlaup og hefur hún hlaupið nokkur maraþon um ævina. Til að ná árangri í hlaupum þarf aga og skipulag og það hefur Steinunn Jónsdóttir. Steinunn anar aldrei út í neitt heldur fram- kvæmir hlutina að vel athuguðu máli. Hún þykir alvörugefin og er laus við galgopahátt, sver sig þannig í föðurættina. Hún þykir mjög traust manneskja og vinur vina sinna fram í fingurgóma, heiðarleg prinsippmanneskja. Hún er lítið fyrir sviðsljósið og kann betur við sig innan um fáa vini og kannski fyrst og fremst fjölskylduna. Steinunn er kát og hress í hópi vina sinna en gefur lítið færi á sér gagnvart þeim sem hún þekkir ekki. Hún er athafnamanneskja sem hefur gaman af að takast á við verkefni á borð við listasetrið auk þess sem það er henni hugsjón að auðvelda listamönnum um allan heim að vera í skemmtilegu umhverfi og fá hugmyndir. Hún hefur alltaf haft áhuga á listum og arkitektúr og listasetrið veitir henni tækifæri til þess að blanda þessu tvennu saman. MENN VIKUNNAR Miðlun Skeifa n söluskr ifstofur16 www.r emax. is Einn ö flugas ti faste ignave fur lan dsins Allar fastei gnasö lur eru sjálfst ætt re knar o g í ein kaeign Fasteig nablað 161. T ölublað - 6. ár gangur - 13. a príl 200 8 bls. 12 HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sí i Ráðningarþjónusta Leitar þú að starfsmanni? Hulda Helgadóttir SigurborgÞórarinsdóttir KristínHallgrimsdóttir JónRagnarsson HH Ráðgjöf er alhliða ráðningarþjónusta og við státum okkur af því að veita framúrskarandi þjónustu hvort sem um ræðir ráðningu ófaglærðra, faglærðra eða sérfræðinga. Ráðgjafar okkar veita fúslega frekari upplýsingar í síma 561 5900 eða sendu okkur tölvupóst: hhr@hhr.is Vinnusparnaður Við vinnum úr umsóknum, leitum í gagnagrunni okkar, tökum forviðtöl og öflum umsagna. Markviss leit Nýr hugbúnaður gerir leit afar markvissa og tryggir að við finnum hæfasta einstaklinginn. Þriggja mánaða ábyrgð Ef starfsmaður hættir störfum innan þriggja mánaða er ráðning í hans stað án endurgjalds. Bregðumst fljótt viðOkkar aðalsmerki eru skjót viðbrögð og lögð er áhersla á að flýta ráðningarferlinu eins og unnt er. Fjöldi hæfra umsækjendaFjöldi umsækjenda er á skrá í almennum gagnagrunni okkar sem tryggir að við finnum rétta einstaklinginn fyrir starfið. Reynsla og þekkingHjá HH Ráðgjöf starfa sérfræðingar á sviði starfsmanna- mála sem búa m.a. yfir mikilli reynslu af ráðningum og hagnýtri menntun. Sanngjarnt verðBjóðum mjög hagstætt og samkeppnishæft verð á þjónustu okkar. Gerðu verðsamanburð! HH Ráðgjöf hefur vönduð vinnubrögð og fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum metnað okkar í að veita afburðarþjónustu og finna réttan einstakling fyrir þá aðila sem leita okkar aðstoðar við ráðningu starfsfólks. Kostir þess að nýta sér þjónustu HH Ráðgjafar eru m.a.: ER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR? MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINS S. 512 5426 - vip@365.is S. 512 5441 - hrannar@365.is ÁSTRÓS GUNNARSDÓTTIR O G LÁRA STEFÁNSDÓTTIR ■ BIRNA BJARNADÓTTIR ■ ARAM SAR ■ GYRÐIR ELÍASSON ■ ALEXANDER SOLZENITSYN ■ ÓLAFUR ELÍASSON ■ NEON ■ LAUGSDÓTTIR ■ JÓN PÁLL EYJÓLFSSON ■ MARÍA KRISTJÁNSDÓTTIR ■ N ■ KONUNGLEGA LEIKHÚSIÐ Í KAUPMANNAHÖFN ■ HA ■ DMITRI EIPIDES ■SÁLIN HANS JÓNS MÍNS ■ KJA TÓLF TÓNAR Tveir menn eru að horfa á Manchester United á bar og í hálf- leik ákveða þeir að kýla á það og láta gamlan draum rætast: Stofna plötubúð tíu ára Seðlabankinn kominn út í horn Helgarviðtal við Vilhjálm Egilsson, framkvæmda- stjóra Samtaka atvinnulífsins Sumarið 2008 Hvert vilja landskunnir Íslendingar fara, og með hverjum? Íslensk sköpunargleði Lokasýning fatahönnunarnema í Listaháskóla Íslands lofar góðu. Menning fylgir Fréttablaðinu á sunnudag: Tveir menn í hálfl eik – Tólf tónar tíu ára. Tinna Gunnlaugsdóttir svarar gagnrýni Þórhildar Þor- leifsdóttur. Ólafur Elíasson í MOMA. Kvikmyndir um raunverulegar manneskjur. Menning LILJA PÁLMADÓTTIR OG STEINUNN JÓNSDÓTTIR STEINUNN JÓNSDÓTTIR: ÆVIÁGRIP Steinunn Jónsdóttir innanhússarkitekt fæddist 27. maí 1968, dóttir Jóns Helga Guðmundssonar, sem kenndur er við Byko, og Bertu Bragadóttur kennara. Hún er elst þriggja systkina. Steinunn lauk stúdentsprófi frá MR og fór svo til náms í innanhússarkitektúr í Bandaríkjunum. Hún hefur einnig verið í listnámi í Bandaríkjunum og lokið MBA-námi frá Háskólanum í Reykjavík. Steinunn situr í stjórn fyrirtækja sem tengjast fjölskyldunni auk þess sem hún stýrir fjárfestingarfélaginu Arki. Hún hefur byggt upp alþjóðlegt listasetur að Bæ á Höfðaströnd. Steinunn býr með Finni Reyr Stefánssyni hagfræðingi. Steinunn á tvö börn, Nönnu Katrínu og Jón Braga Hannesar- börn, 13 og 10 ára. Hún og Finnur eiga Baldur, 18 mánaða. LILJA PÁLMADÓTTIR: ÆVIÁGRIP Lilja Sigurlína Pálmadóttir hrossabóndi er fædd 10. desember 1967, dóttir hjónanna Pálma Jónssonar, kaupmanns í Hagkaup, og Jónínu Gísladóttur húsmóður. Lilja er alin upp í hópi fjögurra systkina og er yngst. Lilja lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands og fór svo í myndlistarnám í New York og síðar í framhaldsnám í Barcelona. Lilja stundar í dag hrossarækt á Hofi og nám í hrossarækt og reiðmennsku á Hólum í Hjaltadal og hefur losað sig úr stjórn félaga. Hún er gift Baltasar Kormáki kvikmyndaleikstjóra og hafa þau búið á Hofi í tvö ár en eiga líka heimili í Reykjavík. Lilja og Baltasar eiga og reka framleiðslufyrirtækið Sögn ehf. Lilja á Stellu Rín, 15 ára, og svo eiga þau Pálma Kormák, átta ára, og Storm Jón Kormák, sex ára. Stjúpbörn Lilju eru Ingibjörg Sóllilja, 12 ára, og Baltasar Breki, 19 ára. Römm er sú taug FYRSTA SKÓFLUSTUNGAN TEKIN Lilja Pálmadóttir og Steinunn Jónsdóttir (fyrir miðri mynd) tóku í vikunni fyrstu skóflu- stunguna að sundlaug sem þeir færa íbúum Hofsóss að gjöf. Forsetahjónin veittu verkefninu blessun sína. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.