Fréttablaðið - 19.04.2008, Blaðsíða 39
LAUGARDAGUR 19. apríl 2008 5
Fjallaleiðsögumaðurinn Jökull
Bergmann heldur námskeið í
fjallaskíðamennsku í Skíðadal
á Tröllaskaga, norðan Akureyr-
ar, í samstarfi við Ferðafélag
Íslands síðustu helgi aprílmán-
aðar.
Undanfarin átta ár hefur Jökull
Bergmann staðið að uppbyggingu
og markaðssetningu Tröllaskagans
sem heimsklassasvæðis fyrir
fjallaskíðamennsku. Hann hefur
mikla reynslu af sportinu og hefur
leiðbeint ferðafólki víða um heim.
„Fjallaskíðamennska hefur verið
stunduð áratugum saman í Ölpun-
um og Klettafjöllum Norður-Amer-
íku á veturna og vorin. Sá hópur er
nú að uppgötva töfra Tröllaskag-
ans,“ segir Jökull og heldur áfram:
„Hvar annars staðar í heiminum er
hægt að skíða niður hæstu tinda og
alla leið niður í fjöru með svörtum
sandi?“
Jökull segir aðstæður á Íslandi
til fjallaskíðaiðkunar einstakar.
„Nálægðin við hafið er það sem
heillar erlenda gesti mest sem
koma á Tröllaskagann. Einnig lang-
ir dagar, nægur snjór til fjalla, milt
veður og auðvelt aðgengi.“ Hann
nefnir þætti sem nauðsynlegt er að
tileinka sér. „Grunnþættir ferða-
mennsku á borð við skyndihjálp og
að rata er nauðsynlegt fyrir þá sem
hafa hug á fjallaskíðamennsku,“
segir Jökull og viðurkennir að
fjallaskíðaleiðsögn sé óneitanlega
nokkuð sérstakur starfsvettvang-
ur enda snýst starfið um að vera á
fjöllum nær alla daga! „Starfið er
sannkölluð ástríða. Þetta er krefj-
andi íþrótt bæði líkamlega og and-
lega og snýst um að sameina göngu-
ferðir og skíðamennsku,“ segir
hann og gefur örlítið betri mynd af
hvernig skíði þetta eru. „Fjalla-
skíði eru í raun eins og venjuleg
svigskíði. Hins vegar eru binding-
arnar þeim kostum búnar að hæl-
stykkið er hægt að losa frá skíðun-
um eins og á gönguskíðum,“ segir
Jökull sem getur gengið upp fjöll
og rennt sér niður á sömu skíðun-
um.
Fram undan er námskeið fyrir
byrjendur í samstarfi við Ferðafé-
lag Íslands. Námskeiðið fer fram í
Skíðadal á Tröllaskaga þar sem
þátttakendur fá tækifæri til að
prófa sig áfram í undirstöðuþátt-
um fjallaskíðamennsku. „Við
förum meðal annars í gegnum
leiðarval og mat á snjóflóðahættu.
Á síðari hluta námskeiðsins er
markmiðið að skíða á nokkra af
fjölmörgum tindum Tröllaskag-
ans,“ segir Jökull sem ber sterkar
taugar til Tröllaskagans. „Gistiað-
staðan er á bænum Klængshóli
sem er síðasta byggða ból í Skíða-
dal. Þar er yfirleitt hægt að komast
á snjó nánast við bæjardyrnar
fram á fyrri part sumars,“ segir
Jökull og heldur áfram: „Húsfreyj-
an á Klængshóli, Anna Dóra Her-
mannsdóttir, hefur sérhæft sig í
þjónustu við fjallaskíðahópa. Þar
býður hún upp á hlaðborð á hverju
kvöldi þá fjóra daga sem námskeið-
ið stendur þar sem lífrænn matur
og hollusta er í fyrirrúmi.“
Útbúnað er hægt að fá leigðan
hjá Fjallakofanum í Hafnarfirði.
Námskeiðið, sem fer fram 24.-27.
apríl, hentar bæði fyrir byrjendur
og lengra komna. Sjá nánari upp-
lýsingar á www.fi.is og www.skida-
dalur.is. - vg/rh
Fjallaskíðamennska
nýtur vaxandi vinsælda
Jökull Bergmann vill leyfa
erlendum fjallaskíðaiðkend-
um að njóta Tröllaskagans í
Skíðadal.
MYND/GUÐMUNDUR TÓMASSON
Hertz Car Rental
Flugvallarvegi
101 Reykjavik, Iceland
hertz@hertz.is
Tel. +354 522 44 00
Fax. +354 522 44 01 www.hertz.is
Bókaðu bílinn fyrir 1. maí á
www.hertz.is og fáðu 1000 vildarpunkta
hjá Vildarklúbbi Icelandair.
Tilboðið gildir til 1. maí.
Hertz hefur yfi r 7600 afgreiðslustaði í 146 löndum.
Nú er rétti tíminn til þess að undirbúa
næsta veiðitímabil. Veiðikortið veitir aðgang að
rúmlega 30 vatnasvæðum vítt og breitt um landið
fyrir aðeins 5000 kr. Frí heimsending þegar verslað
er beint á www.veidikortid.is
Tryggðu þér Veiðikortið í tíma!
Á að veiða
í sumar?
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
Eyðimerkur, grænir frumskógar, hrikalegt fjallalandslag Patagóníu í suðri og
fjölþjóðleg menning Santiago og Buenos Aires eru meðal þess helsta sem ber fyrir
augu í þessari ótrúlegu tveggja vikna hópferð um Chile og Argentínu.
Hópurinn þræðir sig jafnt og þétt í gegnum hvern heiminn á fætur öðrum. Frá höfuðborg
Chile, Santiago, er haldið til borgarinnar Mendoza sem er við rætur Andes-fjalla. Þar verður
m.a. farið í vínsmökkun og Iguazú fossarnir skoðaðir áður en haldið er til höfuðborgar
Argentínu, Buenos Aires, evrópskustu borg Suður-Ameríku. Þaðan er svo haldið aftur til
Santiago. Að lokum gistir hópurinn fjórar nætur á „Chilesku Rivíerunni“ Viña Del Mar.
Ótrúlegt landslag, ótal skoðunarferðir og mikill tími til að drekka í sig fjölbreytta menningu
beggja landa. Komdu með okkur í ævintýri á suðurenda Suður-Ameríku!
Verð frá: kr. 527.900,-
á mann í tvíbýli
Fararstjóri: Elísabet Brand
14. - 30. október
Innifalið: Sjá nánar á www.uu.is
Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald
2.500 kr. fyrir hvern farþega.
ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~
SÍMI 585 4000 ~ FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS
Argentína
og Chile
Ævintýri á enda veraldar