Fréttablaðið - 19.04.2008, Blaðsíða 88
60 19. apríl 2008 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Toppbarátta N1-deildar kvenna í handbolta opnaðist upp á
gátt eftir að Valsstúlkur báru sigurorð af Framstúlkum í fyrra-
kvöld. Núna geta þrjú lið tölfræðilega orðið Íslandsmeistarar,
Fram, Valur og Stjarnan. Fram er sem fyrr á toppnum með 39
stig og á einn leik eftir gegn FH, þá kemur Valur með 36 stig
og á tvo leiki eftir og Stjarnan fylgir þar fast á eftir með 35
stig og á þrjá leiki eftir, en Valur og Stjarnan mætast einmitt
í lokaumferðinni 3. maí næstkomandi. Fram og Valur
þurfa bæði að klára sína leiki og treysta svo á önnur lið
til þess að vinna deildina en Stjarnan verður Íslands-
meistari sigri það þá þrjá leiki sem liðið á eftir, vegna
betri innbyrðis stöðu gegn Fram. Aðalsteinn Reynir
Eyjólfsson, þjálfari Stjörnunnar, var þó hinn rólegasti
yfir stöðu mála þegar Fréttablaðið heyrði hljóðið í
honum í gær.
„Við eigum þrjá erfiða leiki eftir og þurfum að vinna
þá alla til þess að vinna deildina, það er því enn langt
í land og ekkert í hendi enn. Það er því best að segja
sem allra minnst um þetta í augnablikinu,“ sagði
Aðalsteinn sem hrósar Stjörnustúlkunum í hástert fyrir framgöngu
þeirra í vetur.
„Það hefur náttúrulega mikið gengið á í herbúðum okkar í
vetur með banninu sem ég fór í og meiðslum lykilleik-
manna, og það er ánægjulegt að sjá hvernig stelpurnar
hafa þjappað sér saman og komið sér í þá stöðu að
vera enn með í baráttunni um titilinn. Þær hafa lagt
mikið á sig á æfingum og í leikjum, vonandi heldur
það bara áfram og við sjáum til hverju það skilar
okkur,“ sagði Aðalsteinn sem lendir í sérkennilegri
stöðu í dag þegar Stjarnan heimsækir Fylki, en hann
hefur samið við Árbæjarliðið til þriggja ára og tekur við
liðinu eftir tímabilið í ár.
„Það er vitanlega óþægileg staða að vera búinn að
semja við eitt félag og vera enn að starfa fyrir annað
þegar þau mætast en svona er þetta bara,“ sagði Aðal-
steinn, sem hvatti að lokum alla handboltaáhugamenn til
þess að mæta á völlinn og standa við bakið á sínum liðum
á lokasprettinum í deildinni.
AÐALSTEINN REYNIR EYJÓLFSSON: HELDUR RÓ SINNI ÞÓTT STJARNAN SÉ KOMIN Í BÍLSTJÓRASÆTI N1-DEILDAR KVENNA
Best að segja sem allra minnst í augnablikinu
> Átta liða úrslit Lengjubikars karla í dag
Tveir leikir fara fram í átta liða úrslitum Lengjubikars
karla í dag þegar KR og ÍA mætast í Kórnum í Kópa-
vogi kl. 14 og Fram fær FH í heimsókn á Framvöllinn
í Safamýrinni, og hefst sá leikur einnig
kl. 14. Undanúrslitaleikirnir verða svo
leiknir fimmtudaginn 24. apríl og
úrslitaleikurinn fimmtudaginn 1. maí.
FH varð deildarbikarmeistari í fyrra
annað árið í röð og í fjórða skiptið
á síðustu sex árum eftir 3-2
sigur gegn Val í framlengdum
úrslitaleik.
KÖRFUBOLTI Hlynur Bæringsson og
félagar í Snæfelli eru komnir í
þriðja sinn í lokaúrslitin á fimm
árum og líkt og í hin skiptin standa
Keflvíkingar í vegi fyrir þeim og
fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í
sögu félagsins.
„Við höfum ekki verið nógu
sterkir til þess að klára þetta und-
anfarin ár. Ég held að við séum
betri en við höfum verið þessi ár
sem við höfum verið að detta út,“
segir Hlynur, sem er klár í Kefl-
víkingana.
„Þó að við höfum unnið þá í
úrslitakeppninni í fyrra skipti sú
sería ekki jafn miklu máli og
þegar þeir unnu okkur. Ég hræðist
það þó ekkert að við höfum tapað
fyrir þeim tvisvar því það eru nýir
menn í báðum liðum,“ segir Hlyn-
ur en Snæfell tapaði báðum
úrslitaeinvígjunum 3-1 vorin 2004
og 2005.
„Þeir voru með frábært lið, voru
líka bæði árin með heilsteyptara
lið og búnir að spila lengur saman.
Mér finnst það vera okkar helsti
kostur í dag. Nú erum við búnir að
vera lengi saman,” segir Hlynur.
Snæfell hefur komist í alla úrslita-
leiki í vetur og á möguleika á að
vinna þrefalt þrátt fyrir að liðið
hafi aðeins endað í fimmta sæti í
deildinni. „Við erum búnir að klára
marga stóra leiki í vetur,“ segir
Hlynur en til þess að vinna titilinn
þarf liðið að vinna í Keflavík, sem
tókst ekki 2004 eða 2005. „Auðvit-
að þurfum við að vinna á útivelli
en heimaleikina okkar verðum við
að klára. Við megum ekki treysta á
það að þurfa að vinna fleiri en einn
leik í Keflavík. Það var það sem
klikkaði á móti KR í fyrra því það
var ekki seinasti leikurinn sem
klikkaði heldur var það fjórði leik-
urinn hérna heima,“ segir Hlynur
en KR vann þá með 24 stigum í
Hólminum og síðan í framlengingu
í oddaleiknum í DHL-höllinni.
Hlynur var frábær í undanúr-
slitaeinvíginu á móti Grindavík og
tók meðal annars 37 fráköstum
meira en næsti maður. „Ég var
sáttur með mig í einvíginu á móti
Grindavík og það var mjög gott
hjá okkur að vinna Grindavík 3-1
því það er hörkugott lið,“ segir
Hlynur.
Hann var ekki eins sáttur við
þau ummæli Friðriks Ragnars-
sonar, þjálfara Grindavíkur, að
hann kæmist upp með meira en
aðrir. „Ég var mjög ósáttur við
þessi ummæli hjá Frikka því ég
legg mikla vinnu í það að spila
góða vörn og reyni að forðast
villuvandræði. Ég er nú ekkert
brjálaður yfir þessu en fannst
hann bara hafa hlaupið á sig. Ég
viðurkenni það samt alveg að ég
var sár að heyra svona áður en
við förum að spila í lokaúrslitun-
um. Auðvitað tek ég á því en þetta
stenst engin rök því ekki var ég í
villuvandræðum með landsliðinu
og ekki í Hollandi. Það eru þá allir
dómarar heimsins að reyna að
halda mér inni á vellinum,“ sagði
Hlynur í léttum tón.
Hlynur býst við skemmtilegum
leikjum á móti Keflavík. „Press-
an er á öllum því það er enginn
skandall þótt annað hvort liðið
tapi þessarri seríu. Þessi sería
gæti farið 3-0 fyrir hvort liðið en
eins gæti hún farið 3-2 fyrir hvort
liðið. Hún verður heldur ekki búin
þó að við vinnum fyrstu tvo eða
að þeir vinni fyrstu tvo,“ segir
Hlynur og bætir við:
„Við erum sæmilega rólegir
fyrir leikinn á morgun og vitum
að þessi sería er ekkert að fara að
klárast á morgun sama hvernig
fer. Þetta voru allt góðir leikir við
þá í vetur en ég held að þeir hafi
allir unnist á 2 til 3 stigum. Við
vorum klaufar að tapa fyrir þeim
hérna heima fyrir áramót. Þetta
voru mjög skemmtilegir leikir
eins og alltaf á móti Keflavík og
þeir voru allir jafnir fram á sein-
ustu sekúndu,“ segir Hlynur.
Hann segist vera búinn að bíða
lengi eftir að handleika Íslands-
meistarabikarinn.
„Mig langar mikið að vinna
þennan titil og finnst vera kom-
inn tími á það. Ég er búinn að
leggja mikið á mig í gegnum tíð-
ina eins og við allir í Snæfellslið-
inu. Ég er orðinn virkilega hungr-
aður í titilinn,“ sagði Hlynur að
lokum.
Fyrsti leikur Keflavíkur og
Snæfells fer fram klukkan 16 í
dag í Toyota-höllinni í Keflavík.
ooj@frettabladid.is
Orðinn virkilega hungraður í titilinn
Hlynur Bæringsson á enn eftir að verða Íslandsmeistari í körfubolta. Þessi frábæri leikmaður fær nú þriðja
tækifærið til þess að spila um titilinn ásamt félögum sínum í Snæfelli þegar þeir glíma enn á ný við Kefl-
víkinga. Fyrsti leikur úrslitaeinvígisins fer fram í Toyota-höllinni í Keflavík klukkan 16 í dag.
ÚRSLITASTUND Hlynur Bæringsson og félagar í Snæfelli mæta nú Keflvíkingum.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÖRFUBOLTI Sigurður Ingimundarson, þjálfari
Keflvíkinga, getur orðið fyrsti þjálf-
arinn til þess að gera lið fimm
sinnum að Íslandsmeisturum
eftir úrslitakeppni þegar Kefl-
víkingar mæta Snæfelli í lokaúr-
slitunum um titilinn.
Sigurður er nú mættur í
sjötta sinn með sitt lið í
lokaúrslitin og hefur
unnið titilinn í fjögur af
fimm skiptum. Vinni
Keflavík þá þrjá leiki
sem þarf til að vinna
Íslandsmeistaratitilinn
nær Sigurður jafnframt
að jafna met Friðriks Inga Rúnars-
sonar yfir flesta sigurleiki í úrslita-
keppni en fyrir leikinn hefur Frið-
rik Ingi stjórnað liðum til sigurs í
58 leikjum á móti 55 sigrum hjá
Sigurði.
Sigurður vann titilinn strax á
sínu fyrsta ári sem þjálfari karla-
liðs Keflavíkur en liðið vann
þá Grindavík 3-0 í úrslitum
árið 1997. Tveimur árum
síðar vann Keflavík 3-2 sigur
á Njarðvíkingum í lokaúr-
slitunum en í bæði þessi
skipti var Friðrik Ingi Rún-
arsson þjálfari andstæð-
inganna. Sigurður og læri-
sveinar hans áttu hins
vegar engin svör árið 2002
við Njarðvíkingum, sem
unnu þá í þremur leikjum.
Árið eftir vann Keflavík aftur á móti 3-0
sigur á Grindavík í úrslitunum og enn á ný
hafði Sigurður betur gegn Friðriki Inga Rún-
arssyni sem þjálfaði þá Grindavík. Sigurður
tók sér í kjölfarið eitt ár í hlé á meðan Falur
Harðarson og Guðjón Skúlason gerðu þá Kefl-
víkinga að Íslandsmeisturum. Sigurður kom
aftur árið eftir og vann þá titilinn eftir 3-1
sigur á Snæfelli í úrslitunum.
Það er ekki hægt að kvarta yfir sigurhlut-
falli liða Sigurðar í lokaúrslitunum en lið hans
hafa unnið 12 af 18 leikjum.
Keflavíkurliðið hefur fallið út úr undanúr-
slitum (2006) og átta liða úrslitum (2007) síð-
ustu tvö árin en er nú komið í lokaúrslitin í
þrettánda sinn í sögu félagsins.
Vinni Keflavík Íslandsmeistaratitilinn verð-
ur það 30. titill karla eða kvenna undir stjórn
Sigurðar hjá Keflavík. Hann hefur þjálfað 8
Íslandsmeistara, 6 bikarmeistara, 10 deildar-
meistara og 5 fyrirtækjabikarmeistara. - óój
Siguður Ingimundarson, Þjálfari Keflavíkur, getur jafnað eitt met og bætt annað í lokaúrslitunum:
Sigurður afar sigursæll í lokaúrslitum
ÞEKKIR ÞETTA VEL Sigurður
Ingimundarson veit manna
best hvað þarf til að gera
lið að Íslandsmeisturum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Í gær birtist ítarlegt
viðtal við Veigar Pál Gunnarsson
hjá Stabæk á norska netmiðlinum
Nettavisen þar sem landsliðsmað-
urinn talar um að tímabilið í ár
gæti verið hans síðasta í treyju
norska liðsins.
„Það hafa njósnarar frá í það
minnsta fjórum liðum í ensku
úrvalsdeildinni og einhverjum
liðum frá Ítalíu komið og horft á
mig spila. Ég hef hins vegar alltaf
verið svo stressaður þegar ég
heyri af þessu að ég hef yfirleitt
leikið frekar illa í þeim leikjum
þannig að ég reyni að vera ekkert
að spá allt of mikið í þetta. Ég
væri samt til í að fá að reyna mig
í annarri deild og það kemur í ljós
hvenær það verður, kannski eftir
næsta tímabil,“ sagði Veigar Páll
sem hefur skorað 48 mörk í 97
leikjum fyrir Stabæk. - óþ
Veigar Páll Gunnarsson:
Gæti farið eftir
þetta tímabil
NÁ VEL SAMAN Veigar Páll og Daniel
Nannskog þykja ná einstaklega vel
saman með Stabæk. STABÆK/NANI