Fréttablaðið - 19.04.2008, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 19.04.2008, Blaðsíða 94
66 19. apríl 2008 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN LÁRÉTT 2. báru að 6. átt 8. frosts- kemmd 9. fálm 11. tveir eins 12. teygjudýr 14. rými 16. grískur bók- stafur 17. áþekk 18. kk nafn 20. í röð 21. svall. LÓÐRÉTT 1. egna 3. klafi 4. land í SA- Asíu 5. hár 7. blóðsuga 10. mál 13. eldur 15. tafl 16. samstæða 19. á fæti. LAUSN LÁRÉTT: 2. komu, 6. sv, 8. kal, 9. pat, 11. ll, 12. amaba, 14. pláss, 16. pí, 17. lík, 18. ari, 20. aá, 21. rall. LÓÐRÉTT: 1. espa, 3. ok, 4. malasía, 5. ull, 7. vampíra, 10. tal, 13. bál, 15. skák, 16. par, 19. il. „Fyrsti þátturinn verður sunnudaginn 11. maí, daginn eftir fyrsta leik,“ segir Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði KR í fótbolta, sem hefur lokið við gerð útvarpsþátta um hljómsveitina Ný dönsk. Verða þeir fimm talsins, klukkutími hver, og fluttir á Rás 2. Að sögn Gunnlaugs var aðdragandinn að þáttagerð- inni nokkuð langur. „Ég gerði útvarpsþátt um hljómsveitina í framhaldsskólaútvarpinu Blóminu á Akranesi 1995. Óli Palli, útvarpsmaður á Rás 2, var tæknimaður í þeim þætti og var að aðstoða gamla skólann sinn. Það hefur blundað lengi í mér að gera þetta almennilega í eitt skipti fyrir öll, og í desember síðastliðnum hitti ég hann að máli og hann hvatti mig til að taka slaginn,“ segir Gunnlaugur, sem sér ekki eftir því. „Þetta er búið að vera meiri vinna en ég ætlaði í fyrstu en það hefur verið ofsalega gaman að kafa svona djúpt ofan í þetta.“ Gunnlaugur tók viðtöl við meðlimi Ný danskr- ar auk aðila sem hafa komið við sögu á ferli hennar. Að auki nýtti hann sér gömul viðtöl við sveitina við gagnaöflun sína. „Þarna er að finna ýmislegt sem hefur ekki heyrst áður. Þarna eru til dæmis lög á ensku sem hafa heyrst lítið sem ekkert og aldrei komið út.“ Þrátt fyrir að vera mikill aðdáandi Ný danskrar segist Gunnlaugur ekki nota lög sveitarinnar til að koma sér í gírinn fyrir leiki. „En ég hef rætt um fótbolta við hljómborðsleikara sveitarinnar (Jón Ólafsson) sem er mikill Þróttari og fótbolta- áhugamaður. Hann býr rétt hjá mér í vesturbænum en ég held að hinir séu ekkert sérstaklega áhugasamir um knattspyrnu.“ - fb Fótboltamaður gerir útvarpsþætti GUNNLAUGUR JÓNSSON Fyrirliði KR hefur gert útvarpsþætti um hljómsveitina Ný dönsk. NÝ DÖNSK Hljómsveitin Ný dönsk er í miklu uppá- haldi hjá Gunnlaugi Jónssyni. „Já, það er rétt. Þetta lag er ekki spilað. En ég stjórna því ekki hvort ég er spilaður eða ekki. Þeir hljóta að vera fullfærir um að svara því, Óli Palli og þeir á Rás 2,“ segir Bubbi Morthens. Upp er komið sérkennilegt mál en einn vinsælasti tónlistarmaður landsins telur að hann sé ein- hverra hluta vegna kominn út í kuldann hjá Rás 2. Ný útgáfa Bubba og Björns Jörundar á lag- inu „Ég er kominn heim“ sem Óðinn Valdimarsson gerði vinsælt á 7. áratug síðustu aldar fær varla spilun að mati Bubba. Á meðan hljómar á Rás 2 lagið í útgáfu Sig- urðar Guðmundssonar sem betur er þekktur sem Siggi úr Hjálm- um. Það lag verður að finna á plötu hans sem væntanleg er 20. maí. „Já, stundum er þetta þannig að maður er ekki inni. Ég hef verið áratugi í bransanum og hef tekið nokkra kollhnísa á ferlinum. Þannig að ég þekki það alveg. En, eins og þar stendur, þá veit ég ekki hvað veldur nú. Óli Palli ætti að vera manna líklegastur til að spila Bubba en ég hef orðið var við að lagið er nánast ekkert spilað á Rás 2,“ segir Bubbi. Og vill meina að hann sé ekki lengur „kominn heim“ á Rás 2 heldur út. „Bubbi hefur hringt í mig nokkrum sinnum og skilur ekkert í þessu. En ég veit ekki hvernig ég á að svara svona vitleysu. Þetta er einhver mesta paranoja sem ég hef heyrt,“ segir Ólafur Páll Gunnarsson, tónlistarstjóri Rásar 2. Til að gera illt verra týndist diskur- inn með lagi Bubba og Björns á Rás 2 tímabundið en fannst þó aftur. Óli Palli bendir á að sjálfur hafi hann verið úthrópaður, fengið ófá símtöl frá tón- listarmönnum þar sem hann er sakaður um að spila ekkert annað en Bubba. „Ég er gáttaður á Bubba en veit að hann meinar vel.“ Óli Palli útskýrir að þótt hann eigi að heita tón- listarstjóri og leggi drög að svo- nefndum „playlistum“ stöðvarinnar ráði stjórnendur þáttanna að 60 pró- sentum hvaða tónlist þeir spila í sínum þáttum. Og það sé rugl að útgáfa Bubba og Björns heyrist ekki á Rás 2: „Í fyrsta skipti í sögu Rásar 2 er sama lagið í mismun- andi útgáfum á playlista.“ Tónlist- arstjóri Rásar 2 segist reyndar hrifnari af útgáfu Sigga í Hjálm- um en hinnar útgáfunnar. Hún höfði meira til sín og þeir á Rás 2 hafi verið búnir að bíða þess um nokkurt skeið að fá lagið til spil- unar. Og Óli Palli sendir vini sínum Bubba, sem hann segist þó eiga svo mikið að þakka, tóninn: „Ég vil nota tækifærið og benda Bubba á að það er heilmikið að gerast í íslenskri og erlendri tón- list og hvetja hann til að mæta á tónleika. Því mér virðist hann ekki hafa áhuga á neinni tónlist nema sinni eigin og svo skjólstæð- inga sinna hverju sinni.“ jakob@frettabladid.is ÓLI PALLI: VEIT EKKI HVERNIG Á AÐ SVARA SVONA VITLEYSU Bubbi kominn út á Rás 2 SMELLURINN TEKINN UPP Bubbi Morthens skilur ekki í því hvers vegna útgáfa hans og Björns Jörunds á „Ég er kominn heim“ fær ekki spilun á Rás 2. Hér eru þeir félagar við upptökur á laginu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR ÓLI PALLI Er gáttað- ur á Bubba sínum og skilur ekki þessa paranoju. „Það hvín í tálknunum á einhverjum óróa- seggjum sem hafa mig fyrir rangri sök þykir mér,“ segir Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins. Gríðarleg ólga hefur verið á spjallsvæði Stangveiðifélags Reykja- víkur vegna þess að Guðni hefur valist til að vera heiðursgestur á árshátíð félagsins sem haldin verður 23. þessa mánaðar. Árshátíðin er ein af helstu póstum samkvæmislífsins á mörgum bæjum. „Þetta líkist helst því að Banda- ríkin heiðri Osama bin Laden,“ skrifar Jón Þór Júlíusson, einn helsti leigutaki íslenskra stangveiðiáa landsins. Margur hefur tekið í sama streng og Jón Þór og eru menn með ýmsar hugmyndir um að standa upp og ganga út þegar Guðni tekur til máls. Þótt Guðni sé ýmsu vanur segist hann varla hafa séð annað eins. „Að veiðimálum og veiðilöggjöf kom ég verulega sem ráðherra. Og sýndi alltaf íslenska laxinum og laxveiði- ám þá virðingu sem ég gat. Stundum er maður hafður fyrir rangri sök og við það verður að sitja. Mér er áskorun að fara á árshátíðina til þeirra. þetta er eins og að glíma við þann stóra,“ segir Guðni og ætlar ekki að láta þetta hafa áhrif á sig. Er ekki búinn að semja ræðuna heldur ætlar að gera það á staðnum enda einhver snjallasti tækifærisræðumaður landsins. „Þetta kemur mér á óvart því þótt ég viti að stangveiðimenn séu skapmenn og hafi skoðanir eru þeir sem ég þekki drenglundaðir. En misjafn er sauður í mörgu fé.“ Jón Þór segist í samtali við Fréttablaðið hvergi leyna skoðunum sínum og Guðni sé ekki sinn maður, hafi staðið sig illa sem landbúnaðarráðherra í málefnum stangveiðimanna. „Hann á það ekki skilið að vera heiðursgestur. En ég hvet þó alla til að mæta. Ég hef farið frá því ég hafði aldur til. Í mörgæsarbúningnum. Og læt Guðna ekki eyðileggja það fyrir mér.“ - jbg Heiðursgesturinn Guðni fær kaldar kveðjur GUÐNI ÁGÚSTSSON Hefur oft komist í hann krappan en aldrei séð annað eins og óróaseggina í Stangveiði- félagi Reykjavíkur. Ingvi Hrafn Jónsson sjónvarps- stjóri talar frá Flórída í gegnum netið á stöð sinni ÍNN. Hann furðar sig á því að flugfreyjur skuli velta verkfalli fyrir sér í miðri kreppu en einhvern veginn veltu menn því fyrir sér hvort það gæti verið af því að fljótlega þarf Ingvi Hrafn sjálfur að fljúga heim á leið eins og aðrir farfuglar. Og Ingvi Hrafn er reyndar væntan- legur á sunnudag en sagan segir að hann hafi að undanförnu dansað á sundlaugarbökkum á Flórída milli pistla á ÍNN því kvikmyndafyrirtækið True North mun vera að íhuga að kaupa sig inn í sjónvarpsstöðina. Í True North er meðal annars Leifur Dagfinnsson, æskufélagi Björgólfs Thors Björgólfssonar, og sjá menn fyrir sér vax- andi fjölmiðlaveldi með fulltingi hans í gegnum ÍNN-ið hans Ingva Hrafns sem nýverið kom stöðinni á fót með lágmarkskostnaði eða um 25 millj- ónum króna. Ýmsum þótti það sérkennilegt kompaní sem stakk sér inn á Næsta bar að kvöldi fimmtudags. Voru þar komin Jón Baldvin Hannibals- son ásamt Bryndísi konu sinni Schram og dóttur þeirra Kolfinnu Baldvinsdóttur auk svo Grétars Mars Jónssonar alþingismanns og Sverris Stormskers, tónlistar- manns og ólíkindatóls. En þegar nánar er að gáð eiga þau ýmislegt sameiginlegt og voru að koma af velheppnuðum tónleikum FTT til heiðurs Gunnari Þórðarsyni. Ekki aðeins er að tónlistin sameini fimm- enningana heldur eru þau skoðana- systkin í pólitíkinni. - jbg FRÉTTIR AF FÓLKI JÓN ÞÓR Guðni á ekki skilið að vera heiðursgestur segir Jón Þór sem hvetur þó alla til að mæta á árshátíðina. Margrét Gaua Magnúsdóttir Aldur: 31 árs. Starf: Bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Fjölskylda: Bjarnabæj- arpakkið samanstendur af Davíð Arnari Stefáns- syni, háskólanema og eiginmanni, dætrunum Björk, tíu ára og Rósu, 20 mánaða, hundi og tveimur köttum. Foreldrar: Magnús Kjartansson tónlistarmaður og Sigríður K. Odds- dóttir flugfreyja. Búseta: Bjarnabær á Suðurgötu í Hafnarfirði. Stjörnumerki: Sporðdreki og fædd á ári drekans. Margrét Gaua mun rjúfa þögnina og flytja lagið Sólarsömbu ásamt föður sínum, Magnúsi Kjartanssyni, í fyrsta sinn í tuttugu ár í vikunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.