Fréttablaðið - 19.04.2008, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 19. apríl 2008 11
SÝRLAND, AP Jimmy Carter, fyrrverandi
Bandaríkjaforseti, hitti í gær Khaled
Mashaal, leiðtoga palestínsku Hamas-
hreyfingarinnar, í Damaskus, höfuðborg
Sýrlands, þar sem hann býr í útlegð.
Bæði Bandaríkjastjórn og Ísraelsstjórn
hafa gagnrýnt þetta framtak Carters, sem
lætur þó hvorug stjórnvöldin segja sér fyrir
verkum.
„Það er ekki hægt að gera samkomulag,
sem ákveðnir aðilar þurfa að eiga hlut að, án
þess að ræða við þá aðila til þess að gera
samkomulagið að veruleika,“ sagði Carter í
Egyptalandi á fimmtudag. Hann segir
nauðsynlegt að ræða við Hamas ef friðar-
samningar milli Ísraela og Palestínumanna
eiga að geta gengið upp. Hamas-samtökin
sigruðu í þingkosningum Palestínumanna í
byrjun árs 2006 og eftir hörð átök við Fatah-
hreyfinguna tóku þau völd á Gaza-svæðinu
en hafa verið áhrifalaus á Vesturbakkanum.
Bandaríkjastjórn vill ekkert vita af fundi
Carters með fulltrúum Hamas, þetta sé
alfarið einkaframtak forsetans fyrrverandi.
Ísraelsstjórn hefur heldur ekkert viljað hafa
saman við Hamas að sælda, segir samtökin
ekkert annað en hryðjuverkasamtök sem
beri ábyrgð á mannránum og sjálfsmorðs-
árásum.
- gb
Fyrrverandi Bandaríkjaforseti sætir gagnrýni ríkisstjórna Bandaríkjanna og Ísraels:
Carter ræddi við leiðtoga Hamas
CARTER Í KAÍRÓ Fyrrverandi Bandaríkjaforseti færði rök
fyrir því að ræða yrði við Hamas.
NORDICPHOTOS/AFP
FÉLAGSMÁL Atvinnubílstjórar og
einyrkjar hafa stofnað með sér
félagið Samstöðu og er því ætlað
að standa vörð um hagsmuni
stéttarinnar. Nokkur fjöldi var á
stofnfundinum og ýmsum var
heitt í hamsi þegar mótmæli
undangenginna vikna bar á góma.
Jón Gunnar Margeirsson var
kjörinn formaður félagsins. Hann
segir næg verkefni fram undan
og þó að mótmælin séu mönnum
ofarlega í huga hafi þau ekki
verið kveikjan að stofnun
samtakanna. „Nei við höfum rætt
þetta um nokkra hríð. Það hefur
vantað hagsmunagæslusamtök
fyrir okkur og nú hefur verið
bætt úr því,“ segir Jón. - kóp
Hagsmunafélag bílstjóra:
Bílstjórar stofna
til Samstöðu
ÞUNGT HUGSI Fundarmenn voru þungt
hugsi, enda brennur margt á þeim.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Fimm teknir undir áhrifum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði fimm ökumenn fyrir ölvunar-
akstur í fyrrinótt. Þá var einn öku-
maður stöðvaður fyrir að aka undir
áhrifum lyfja.
Einn stútur á Suðurlandi
Lögreglan á Selfossi tók ökumann
fyrir ölvunarakstur á Biskupstungna-
braut í gærmorgun. Var hann fluttur á
lögreglustöð til skýrslu- og sýnatöku
en sleppt að því loknu.
LÖGREGLUFRÉTTIR
STJÓRNMÁL Staðbundin átök í
Austur-Evrópu þar sem Rússland
á hagsmuna að gæta er heiti á
erindi sem Göran Lenmarker,
þingmaður og formaður utanrík-
ismálanefndar sænska þingsins,
flytur á fundi Samtaka um
vestræna samvinnu og Varð-
bergs í Skála á Hótel Sögu á
mánu daginn.
Lenmaker hefur mikið beitt sér
í friðsamlegum sáttalausnum og
hefur gert það að forgangsverk-
efni að vinna að framtíðarlausn í
ríkjadeilum innan Evrópu. Auk
þess leggur hann áherslu á aukin
mannréttindi, baráttu gegn
glæpastarfsemi milli ríkja og
traust kosningaeftirlit. Fyrirlest-
ur hans hefst klukkan 18 og
stendur til klukkan 19.30. - ovd
Átök í Austur-Evrópu:
Hagsmunir
Rússlands
Vinningur í hverri viku
ELDUR Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins var kallað að togara í
Hafnarfjarðarhöfn laust fyrir
miðnætti á fimmtudagskvöldið
þar sem eldur var laus í vélarúmi
skipsins.
Kom eldurinn upp við ljósavél
skipsins en unnið hefur verið að
viðgerðum á skipinu. Greiðlega
gekk að slökkva eldinn en nokkuð
fjölmennt lið var sent á vettvang
þar sem erfitt er að eiga við eld í
skipum. Þrír menn voru um borð
þegar eldurinn kom upp og
komust þeir sjálfir frá borði um
leið og eldvarnarkerfi skipsins
fór í gang. Einhverjar skemmdir
urðu, mestar vegna reyks. - ovd
Eldvarnakerfið fór í gang:
Eldur kom upp
í ljósvél togara