Fréttablaðið - 19.04.2008, Qupperneq 26
26 19. apríl 2008 LAUGARDAGUR
UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,,
stjornmal@frettabladid.is nánar á visir.is
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs,
hefur lagt fram fyrirspurn á þingi til
forsætisráðherra um samskipti ríkisstjórn-
ar og Seðlabanka. Spyr hann hvernig þeim
samskiptum hafi verið háttað undanfarna
mánuði og vill vita hve margir fundir –
formlegir og óformlegir – hafi verið haldnir
og hvort bréf eða orðsendingar hafi gengið
á milli. Þá spyr hann hvort rétt sé að
ríkisstjórnin hafi fyrir nokkrum
mánuðum hafnað eða ekkert gert með
beiðni frá Seðlabankanum um að auka
gjaldeyrisvaraforðann.
„Ég spyr af gefnu tilefni
því það hefur verið þrálátur
orðrómur á kreiki um að
samskiptin séu ekki í lagi
og að ríkisstjórnin hafi
ekkert gert með ósk
bankans um að gjald-
eyrisvaraforðinn verði aukinn,“ sagði
Steingrímur í samtali við Fréttablaðið.
Hann kveðst ekki hafa staðfestar
heimildir fyrir að bankinn hafi óskað eftir
að gjaldeyrisvaraforðinn verði aukinn en
rétt sé að leyfa Geir H. Haarde að svara
þessum þráláta orðrómi.
Svars má vænta á næstunni.
BLESSAÐUR Oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn og formaður Framsóknarflokks-
ins hittust í Ráðhúsinu í Reykjavík í vikunni. Báðir brostu þeir breitt og vinkuðu.
Guðni Ágústsson var í Ráðhúsinu til að hitta Ólaf F. Magnússon borgarstjóra. Skærur
Ólafs og Óskars Bergssonar voru til umræðu og voru sverðin slíðruð. RÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég vil lýsa ánægju með að þetta frumvarp er
komið fram hér. Mér sýnist að það sé þesslegt að
óhætt sé að styðja það. Þó vil ég hafa einhvern
fyrirvara á því þar sem ég hef ekki kynnt mér
málið til hlítar.“
Valgerður Sverrisdóttir, Framsóknarflokki.
„.....................................................................................
.............“
Guðný Hrund Karlsdóttir Samfylkingunni.
Ljóst er að helsta ætlunarverk ríkisstjórnar Sjálf-
stæðisflokks og Samfylkingar hefur mistekist. Og
það hrapalega.
Strax í annarri línu stefnuyfirlýsingar stjórn-
arinnar segir að flokkarnir hafi einsett sér að
mynda frjálslynda umbótastjórn um kraftmikið
efnahagslíf. Ég endurtek: kraftmikið efnahagslíf.
Ekki nóg með það. Hvers vegna að stoppa við
að stefna að kraftmiklu efnahagslífi, hafa þau
Geir og Ingibjörg sjálfsagt sagt í góða veðrinu
á Þingvöllum í fyrra. Hvers vegna ekki að hafa
markmiðin skýr og háleit? Og það varð ofaná. Í Þingvallaskjalinu stendur:
„Eitt brýnasta verkefni nýrrar ríkisstjórnar er að tryggja stöðugleika í
efnahagslífinu í þágu heimila og atvinnulífs. Markmið hagstjórnarinnar
er að tryggja lága verðbólgu, lágt vaxtastig, betra jafnvægi í utanríkis-
viðskiptum, jafnan og öflugan hagvöxt og áframhaldandi trausta stöðu
ríkissjóðs.“
Þetta var á Þingvöllum 23. maí 2007.
Og hver er svo reyndin?
Ekki hefur verið jafnmikil verðbólga á Íslandi í næstum tuttugu ár.
Vextirnir eru svimandi háir.
Gríðarlegur halli er á vöruskiptum við útlönd.
Hagvöxtur er lítill og spárnar dræmar.
Tekjur ríkissjóðs munu dragast saman um milljarðatugi á næstu árum.
Já, og svo var það stöðugleikinn. Hvað er aftur stöðugleiki?
Ingibjörg Sólrún hefur nokkrum sinnum sagt að bróðurparti stefnumála
stjórnarinnar hafi þegar verið hrint í framkvæmd. Fyrirheitin um efnahags-
lífið eru ekki í þeim flokki. Vitaskuld er einungis tæpur fjórðungur kjörtíma-
bilsins að baki og ríkisstjórnin hefur svo sem tíma til að reyna að snúa
stöðunni sér - og þjóðinni - í hag. En þangað til það gerist verður hún
reglulega minnt á fyrirheitin fögru.
VIKA Í PÓLITÍK
BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON
Þingvöllum, vorið 2007
Ásta Möller, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, var á dögunum
kjörin í framkvæmdastjórn
Alþjóðaþingmannasambandsins.
Ásta lagði þýska þingkonu í
kosningu í landahópi vestrænna
lýðræðisríkja og er annar
Íslendingurinn til að setjast í
framkvæmdastjórnina. Geir H.
Haarde sat í stjórninni á árunum
1994-1998. Alþjóðaþingmanna-
sambandið var stofnað 1889 en
Alþingi varð aðili 1951.
Ásta kjörin í framkvæmdastjórn
ÁSTA MÖLLER OG MBEKI FORSETI
SUÐUR-AFRÍKU Þing Alþjóðaþing-
mannasambandsins fór fram í Suður-
Afríku í vikunni.
BJARGRÁÐASJÓÐUR
LAGÐUR NIÐUR
Bjargráðasjóður heyrir sögunni til,
verði frumvarp samgönguráðherra þar
um að lögum.
Bjargráðasjóður var stofnaður 1913
í þeim tilgangi að koma til hjálpar
landsmönnum í hallæri eða til að
afstýra því, eins og segir í greinar-
gerð. Í lögum um sjóðinn er hallæri
skilgreint svo að sveitarfélag verði
svo illa statt að það megni ekki af
eigin rammleik að forða mönnum og
skepnum við harðrétti eða felli.
Í greinargerðinni segir einnig að
skyldur til að mæta áföllum hafi verið
lagðar á herðar annarra, til dæmis
með lögum um félagsþjónustu,
Viðlagatryggingu Íslands, Trygginga-
sjóði sjálfstætt starfandi einstaklinga
og Atvinnuleysistryggingasjóði. Því sé
ekki lengur þörf fyrir starfsemina.
Erla Ósk Ásgeirsdóttir,
varaþingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, segir mikilvægt
að íslensk stjórnvöld mót-
mæli mannréttindabrotum
kínverskra stjórnvalda og
verði ekki við opnun og
setningu Ólympíuleikanna
í Peking í ágúst. Hún bjó í
Peking og sá sjálf hvernig
stjórnvöld brjóta á fólki í
skjóli leikanna.
Erla tók sæti á Alþingi í vikunni og
lét það verða sitt fyrsta verk að
spyrja flokkssystur sína, Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttur mennta-
málaráðherra, hvort hún hefði
endurskoðað fyrri ákvörðun um að
vera við setningu Ólympíuleik-
anna. Svarið var einfalt; það hefur
ráðherrann ekki gert.
„Ég spurði hana vegna þess að
við, ungir sjálfstæðismenn, erum
talsmenn þess að þegnar njóti
borgaralegra og stjórnmálalegra
réttinda,“ segir Erla Ósk, sem er
formaður Heimdallar, félags ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Þó að svarið hafi ekki verið það
sem Erla vonaðist eftir telur hún
baráttuna ekki vonlausa. „Ég bað
hana að endurskoða ákvörðun sína
og vona að hún breyti um afstöðu
á endanum. En ég bað hana jafn-
framt – kjósi hún að fara – að ræða
þá mannréttindamál við kínverska
ráðamenn og hún sagðist tilbúin
að skoða það. Við stígum þá eitt
skref í rétt átt,“ segir Erla, sem
telur að Íslendingar sem þjóð eigi
ekki að gefa afslátt af kröfum um
mannréttindi annarra.
Það vafðist ekki fyrir Erlu að
gagnrýna ráðherra eigin flokks.
„Mér fannst mjög eðlilegt að taka
þetta upp enda höfum við dýr-
mætt frelsi til að gagnrýna eigið
forystufólk. Þó að spurningin
kunni að hafa verið erfið fagnaði
Þorgerður henni og svaraði af
fullri hreinskilni eins og alvöru
stjórnmálamenn gera.“
Fyrirspurnin kom í kjölfar
nýlegrar ályktunar Sambands
ungra sjálfstæðismanna þar sem
stjórnmálamenn eru hvattir til að
sniðganga opnunar- og lokunar-
hátíð Ólympíuleikanna og sýna
þannig andstöðu við meðferð kín-
verskra stjórnvalda á þegnum
sínum. „Í Kína ríkir alræðisstjórn
sem skeytir litlu um mannréttindi
og velferð íbúa sinna,“ segir í
ályktuninni og enn fremur að
aðgerðirnar gegn Tíbet að undan-
förnu sýni hversu rangt það hafi
verið hjá Alþjóða Ólympíunefnd-
inni að velja Peking sem mótsstað
leikanna.
Erla bjó í Peking fyrir nokkrum
árum og vann í íslenska sendiráð-
inu þar í borg. Þá sá hún sjálf
hvernig kínversk stjórnvöld nýttu
sér leikana til að brjóta á þegnum
sínum. „Stjórnvöld hafa gengið
ansi hart fram. Mér virtist til
dæmis að heimilislausir hefðu
verið fluttir úr miðborginni og svo
sá ég eitt hverfið jafnað við jörðu.
Þar voru íbúðarhús merkt með
tákni um að þau ætti að rífa og
fólki gert að flytja í burtu.“ Erla
segir að það hafi verið mögnuð
lífsreynsla að búa í milljónaborg-
inni. Hún hafi haft ákveðnar hug-
myndir um lífið þar áður en hún
hélt utan en upplifunin hafi bæði
verið jákvæð og neikvæð. „Kín-
verjar eru yndislegt fólk upp til
hópa en það kom mér á óvart
hvernig kommúnisminn er alls-
ráðandi í þjóðlífinu. Landið er
stórbrotið eins og saga þess og
menning en þjóðin hefur þurft að
þola margt og verið kúguð af ráða-
mönnum sínum.“
Það er skoðun Erlu að íslensk
stjórnvöld eigi að beita öllum
ráðum til að gera kínverskum yfir-
völdum ljóst að mannréttindabrot
þeirra verði ekki liðin. Táknræn og
öflug mótmæli felist í að vera ekki
við setningu Ólympíuleikanna.
Sá hvernig brotið er á fólki
í skjóli Ólympíuleikanna
ERLA ÓSK ÁSGEIRSDÓTTIR „Mér fannst mjög eðlilegt að taka þetta upp enda höfum
við dýrmætt frelsi til að gagnrýna eigin forystufólk. Þó spurningin kunni að hafa verið
erfið fagnaði Þorgerður henni og svaraði af fullri hreinskilni eins og alvöru stjórn-
málamenn gera.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Þrálátur orðrómur á kreiki
Viltu skjól á veröndina?
www.markisur.com og www.markisur.is
Veðrið verður ekkert vandamál
Hrein fjárfesting ehf, Dalbraut 3, 105 Reykjavík
Upplýsingar í síma 567 7773 og 893 6337 um kvöld og helgar