Fréttablaðið - 19.04.2008, Page 44
● heimili&hönnun
Í
dag þykir verulega smart að vera meðvitaður um matarmenn-
ingu. Gæða sér á staðbundnum árstíðabundnum réttum, vera svo-
lítið kúltíveraður, rækta eigin matjurtir og sérpanta trufflur úr
sælkeraverslunum.
Skápar heimilanna svigna undan rándýrum flöskum af balsamed-
iki, dökku súkkulaði, hummus og lífrænum sultum. Það þykir bara
sjálfsagt og svalt að borga sex hundruð-kall fyrir þrjár litlar lífræn-
ar perur. Við erum loksins orðin heimsborgarar og höfum kvatt dauð-
leiðinlegt gráleitt mataræði íslenska sveitavargsins. Þetta er inni,
þetta er dýrt og alveg svoleiðis glænýtt af nálinni. Eða hvað?
Æskuheimili mitt ómaði af mat frá morgni
til kvölds. Ef ég man rétt vorum við fjórar
kynslóðir undir sama þaki á tímabili. Örugg-
lega tólf ef ekki tuttugu í mat þegar mest var.
Björg í bú kom héðan og þaðan. Afabræður
komu með nýveiddan fiskinn, rennt var í sveit-
ina eftir skinku og reyktum laxi. Kartöflurn-
ar komu lífrænar ásamt staðbundnum rabar-
baranum úr garðinum. Skyrið var selt í lausu
án aspartam og enginn hafði nokkru sinni
þekkt þá endemis vitleysu að kaupa sér vatn.
Brauðið var heimabakað allan ársins hring
og kleinurnar ultu af einskærri ást úr pottin-
um. Veisluhöld og hátíðir kölluðu á gríðarlegan
undirbúning. Það glamraði í hrærivél og sleifum fram á nótt. Kjall-
ari og skúr svignuðu undan kynstrum matar og ég var alltaf södd og
sæl.
Þegar haustið gekk í garð í allri sinni dýrð var sjálf sláturnálin
dregin fram. Garnið var síðan hægt að nota í fuglafit. Eldhúsið fyllt-
ist af konum með fangið fullt af vömbum sem báru með sér undar-
legan keim. Í Kaupfélaginu var síðan hægt að troða nokkrum stað-
bundnum sauðum í frystihólf sem komu sér vel fram á vorið. Sama
hvað fyrir mig var sett, mér fannst það allt jafn dásamlegt. Ýsa og
hrogn, hjörtu og lifur. Svið, hrossakjöt, gráfíkjur og skyr. Lifrar-
pylsa, epli, rabarbari og lúða.
Maturinn var gerður af hreinræktuðum kærleika sem ég reyni
stundum að leika eftir í eigin eldhúsi. Jafnvel með því að skrifa
„Ást“ og „Kærleikur“ á ýmsar krukkur og bauka.
Af skrifum mínum mætti halda að ég væri að minnast daga minna
í torfkofa við strendur Íslands snemma á síðustu öld. Hins vegar er
ég aðeins rétt um þrítugt og deili þessum minningum með jafnöldr-
um og jafnvel yngra fólki. Ég hef gert mitt besta til að verða smart
og kúltíveruð húsfreyja. Ég verð bara aldrei jafnsvöl og fólkið sem
fæddi mig í æsku. Þau ráku sitt eigið heilsuhús, kölluðu þetta bara
hversdagsleikann og hann bara var déskoti góður svona líka stað-
bundinn, lífrænn og fínn.
Staðbundin húsfreyja
● Forsíðumynd: Mynd tók Halla Harðardóttir í got-
neska hverfinu í Barcelona. Útgáfufélag: 365 miðlar ehf.,
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Roald
Eyvindsson roald@frettabladid.is, Emilía Örlygsdóttir
emilia@frettabladid.is Auglýsingar: Ámundi Ámundason
s. 517 5724 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@
frettabladid.is.
HEIMILISHALD
RUT HERMANNSDÓTTIR
Sama hvað fyrir
mig var sett mér
fannst það allt jafn
dásamlegt. Ýsa og
hrogn, hjörtu og
lifur. Svið, hrossa-
kjöt, gráfíkjur og
skyr. Lifrarpylsa,
epli, rabarbari og
lúða.
„Ég á það til að taka vinnuna með
mér heim og þá finnst mér gott að
koma mér fyrir í leðurstól sem ég
keypti í Öndvegi. Hann er mjög
þægilegur og þar er gott að sitja
með ferðatölvuna,“ segir Örn
Smári Gíslason.
„Ég smíðaði svo krossviðar-
plötu undir tölvuna sem ég skorða
á milli hárra armanna á stólnum en
þá losna ég við að sitja með tölv-
una funheita í kjöltunni,“ bætir
hann við. Á breiða armana leggur
hann síðan frá sér minnisbók og
kaffibolla og þarf lítið annað.
Örn Smári hefur auga fyrir um-
hverfi sínu og þó að hann vilji ekki
hafa allt klippt og skorið í kring-
um sig þá leggur hann upp úr því
að umhverfið sé stílhreint.
Hann hefur sankað að sér tölu-
vert af samtímalist og á veggnum
fyrir ofan stólinn er langt verk
eftir listakonuna Guðrún Oyahals.
Á tekk-skenknum fyrir neðan
eru svokallaðar dellur úr postul-
íni eftir Laufeyju Jensdóttur. „Þó
að þær séu úr postulíni þá eru þær
grófar og skemmtilegar og það
kemur sérstaklega vel út að setja í
þær sprittkerti,“ segir Örn Smári.
Í gluggakistunni er svo hvítur vasi
með bláum blómum sem Örn og
konan hans keyptu á Spáni.
Örn Smári, sem starfar sjálf-
stætt og er með vinnustofu á Korp-
úlfsstöðum, hannar meðal ann-
ars merki, umbúðir og gerir aug-
lýsingar sem hafa vakið athygli.
Hann á til að mynda heiðurinn að
mjólku-merkinu og lagði upp með
umbúðalínu fyrir Himneska holl-
ustu sem margir þekkja.
Upp á síðkastið hefur hann
verið að teikna frímerki og er um
þessar mundir að glíma við Frið-
arsúluna en það merki kemur út í
kringum 9. október þegar kveikt
verður á súlunni í Viðey á ný.
Þá hefur hann komið að hönn-
un persónulegra frímerkja í sam-
starfi við Póstinn og koma þau
út með vorinu. Hugmyndin með
þeim er sú að fólk geti fengið frí-
merkjaarkir með myndum úr fjöl-
skyldualbúminu. - ve
Þægilegur griðastaður
● Grafíska hönnuðinum Erni Smára Gíslasyni finnst gott að láta líða úr sér í þægilegum-
leðurstól í stofunni og er hann þar með helstu nauðsynjar við höndina.
Örn Smári Gíslason grafískur hönnuður heima í stofu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
● BORÐBÚNAÐUR Þetta bollastell frá franska
framleiðandanum Bernardaud myndi sóma sér vel
í kaffiboði hjá Lísu í Undralandi. Öllu er snúið á
hvolf og höldur settar á ólíklegustu staði.
Fyrirtækið, sem framleiðir skartgripi,
húsgögn og gjafavöru leikur sér óspart með
gyllingu og þá helst í borðbúnaði sem oftar en
ekki hefur yfir sér höfðinglegt yfirbragð.
Sjá nánar á http://www.bernardaud.fr
Húseigendur!
Aukið þægindin og
lækkið hitunarkostnaðinn
með ECL stjórnstöð á hitakerfið
Kynnið ykkur kosti og verð
ECL stjórnstöðvarinnar frá Danfoss
ECL stjórnstöðvar fyrir hitakerfi
Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins
19. APRÍL 2008 LAUGARDAGUR2