Fréttablaðið - 19.04.2008, Side 63

Fréttablaðið - 19.04.2008, Side 63
LAUGARDAGUR 19. apríl 2008 35 Kínverjar eru stolt þjóð og val ólympíunefndarinnar á Peking hreyfði mjög við þjóðarstoltinu. Kristín Aranka Þorsteinsdóttir hefur búið í borginni í sjö ár. Hún hefur fylgst með undirbúningi leikanna, enda varla hægt að komast hjá því. Hún segir að strax daginn eftir að valið var tilkynnt hafi mátt sjá fjölda manns með derhúfur merktar Peking 2008. „Þetta er stórt mál hér, fyrsta stóra alþjóðlega samkoman og þetta á greinilega að koma Kína á kortið. Hér snýst allt um leikana,“ segir Kristín. Hún segir mótmælin á Vesturlöndum hafa verið nokkuð í fréttum í Kína. „Já, bæði hefur verið sagt frá þeim í opin- berum fjölmiðlum og svo hefur fjöldi Kínverja náttúrulega aðgang að netinu. Fólk hér upplifir þetta sem árás á Kína og þetta hefur frekar styrkt samheldni Kínverja en að vekja þá til umhugsunar um þau málefni sem mótmælt er. Almenningur hér er frekar sár út í mótmælendur.“ SÁRNA MÓTMÆLI VESTURLANDABÚA KRISTÍN ARANKA ÞORSTEINSDÓTTIR Ekki eru til mörg skjalfest dæmi um að mótmæli við Ólympíuleika hafi haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir viðkomandi. Frægasta dæmið um slíkt er líklega ástralski spretthlauparinn Peter Norman. Hann er á frægri ljósmynd, sem birtist hér á síðunni, þar sem þeir Tommie Smith og John Carlos heilsa að sið Svörtu hlébarðanna í Mexíkó 1968. Norman, sem er í algjört aukahlutverki á myndinni, átti eftir að súpa seyðið af atvikinu. Þeir Carlos og Smith áttu fyrir höndum farsælan feril í ameríska fótbolt- anum, þótt þeir hafi sætt hótunum frá einstaklingum. Norman lýsti yfir stuðningi við atvikið og aðstoðaði þá Carlos og Smith í hvívetna. Þegar til kastanna kom voru þeir bara með eitt hanskapar og það var Norman sem stakk upp á í bríaríi að annar hefði hanska á hægri hendi en hinn vinstri. Venjan er sú að heilsa með hanska á krepptum hægri hnefa. Norman sendi hvítum samlöndum sínum tóninn og sakaði þá um yfir- gang gegn öðrum þjóðflokkum. Ástr- alska ólympíusambandið tók á málinu af hörku og Norman var meinað að keppa á Ólympíuleikunum 1972. Þessi silfurverð- launahafi naut eftir atvikið sannmælis sem íþróttamaður og er flestum gleymdum í dag; ólíkt þeim Carlos og Smith sem urður hetjur. SEYÐIÐ SOPIÐ Ævintýrið er hafið Útilegumaðurinn er sérverslun með allt sem þú þarft til ferðalagsins, hjólhýsi, fellihýsi, pallhýsi, húsbíla, fylgihluti og margt fleira. Fossháls 5-9 110 Reykjavík Sími 551 5600 Fax 551 5601 www.utilegumadurinn.is Opið allar helgar 12-16 á virkum dögum 10-18 Polar hjólhýsi Sérhönnuð fyrir norðlægar slóðir. Evrópskar þrýstibremsur, galvaníseruð grind, iDC stöðugleikakerfi og ríkulegur staðalbúnaður. 19˝ LCD skjár Séstakur vínkælir DVD spilari 44mm einangrun -40 °C iDC stöðugleikakerfi iDC Fjöðrun f. ísl. aðstæður Vatn tengt heitt/kalt CD spilari/ útvarp Upphitaðar lúxusdýnur 12 cm Rockwood fellihýsi Sérstaklega löguð að íslenskum aðstæðum með galvaníseraðri grind, fjöðrum fyrir akstur á erfiðum vegum og upphituðum lúxusdýnum. Evrópskar þrýstibremsur Evrópskar þrýstibremsur Vesturlandsvegur B&L Nesti Grjótháls Fossháls H ér eru m við

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.