Fréttablaðið - 19.04.2008, Síða 78
50 19. apríl 2008 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Kl. 14
Sýning á verkum Jóns Laxdal
Halldórssonar verður opnuð í Jónas
Viðar Gallery, Listagilinu á
Akureyri, í dag kl. 14. Sýndir verða
hlutir gerðir úr bókum, pappa, gleri
og þaksaumi, en sýningin hefur
hlotið nafnið Fáeinir fortitlar og
bók eftir Mann. Þessi áhugaverða
sýning Jóns stendur til 11. maí
næstkomandi.
Sýning á verkum myndlistar-
mannsins Birgis Andréssonar
verður opnuð í galleríinu i8 að
Klapparstíg 33 í dag kl. 17. Birgir,
sem var fæddur árið 1955, lést síð-
astliðið haust langt fyrir aldur
fram, aðeins 52 ára að aldri. Hann
var í fremstu röð íslenskra sam-
tímalistamanna og var sérlega
afkastamikill í sínu starfi. Birgir
stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskólann frá 1973 til 1977.
Eftir það hélt hann til Hollands
þar sem hann stundaði nám við
Jan van Eyck Akademie í
Maastricht. Á ferli sínum sýndi
hann víða um heim og var meðal
annars fulltrúi Íslands á Feneyja-
tvíæringnum árið 1995. Jafnframt
var haldin stór yfirlitssýning á
verkum hans í Listasafni Íslands
árið 2006. Á sýningunni sem verð-
ur opnuð í i8 í dag eru verk sem
Birgir hafði nýverið lokið við eða
var að vinna að þegar hann lést.
Sýningin stendur til 9. maí. - vþ
Síðustu verk Birgis
BIRGIR ANDRÉSSON MYNDLISTARMAÐUR i8 stendur fyrir sýningu á síðustu verkun-
um sem hann vann.
Málþing um varðveislu og breytingar á kirkjum
verður haldið í Keflavíkurkirkju snemma í dag
á milli kl. 10 og 13. Það eru Kjalarnespróf-
astsdæmi og Keflavíkurkirkja sem standa að
þinginu, en þar verður velt upp ýmsum hlutum
sem tengjast endurbyggingum og breytingum
á kirkjuhúsum.
Aðalfyrirlesari er dr. Matthias Ludwig. Hann
er guðfræðingur að mennt, en hefur einnig lagt
stund á nám í byggingarverkfræði og listasögu
og er því vel kunnugur þeim fræðisviðum sem
þingið tekur til. Hann hefur starfað við kirkju-
byggingarstofnun þýsku mótmælendakirkn-
anna við Filippsháskólann í Marburg og sem
ráðgjafi á sviði kirkjubygginga og kirkjulistar.
Aðrir fyrirlesarar á þinginu eru dr. Gunnar
Kristjánsson, prófastur í Kjalarnesprófastsdæmi,
Þorsteinn Gunnarsson arkitekt, Ólöf Nordal
myndlistarkona, Árni Sigfússon bæjarstjóri,
Erla Guðmundsdóttir æskulýðsfulltrúi, Hákon
Leifsson organisti og Sigurjón Pétursson
framkvæmdastjóri. Af þessari talningu er ljóst
að fengist verður við umræðuefnið frá mörgum
sjónarhornum, en slík nálgun er sannarlega til
eftirbreytni.
Viðfangsefni málþingsins er fyrst og fremst
að halda til haga sjónarmiðum varðandi
varðveislu og breytingar á eldri kirkjuhúsum.
Þar koma til listrænar áherslur, stefna í frið-
unarmálum, þarfir staðarins, staða kirkjunnar
í samfélaginu og fjárhagsleg sjónarmið. Allir
sem taka til máls hafa mikla reynslu á sínu
sviði og hafa unnið að málefninu um lengri og
skemmri tíma. Að auki verður hugað sérstak-
lega að aðstæðum safnaðarins í Keflavík og
kirkjuhúsinu þar. Byggingarsaga og hugmynda-
fræði Keflavíkurkirkju verður til umfjöllunar í
máli og myndum og fyrirhugaðar endurbætur á
kirkjunni kynntar. - vþ
Mörg sjónarhorn á varðveislu
og breytingar kirkjuhúsa
KEFLAVÍKURKIRKJA Hýsir málþing um varðveislu
og breytingar á kirkjubyggingum í dag.
Það verður svo sannarlega stuð hjá
Sinfóníuhljómsveit Íslands í dag
þegar lög og stef úr frægum og
frábærum bíómyndum verða flutt.
Tónleikarnir eru liður í Tónsprotaröð-
inni, fjölskyldutónleikaröð Sinfóníu-
hljómsveitarinnar. Þeir fara fram í
Háskólabíói, hefjast kl. 14 og eru um
klukkustundar langir.
Meðal þess sem verður leikið er hin
sígilda tónlist Johns Williams úr
Stjörnustríðskvikmyndunum sem
dregur upp ævintýralegar myndir af
hetjum í himingeimnum, geisla-
sverðum og baráttu góðs og ills.
Tónlist Johns Williams á líka sinn
þátt í að gera Harry Potter-
myndirnar að þeirri upplifun sem
þær eru og því verður svítan
Töfraveröld Harrys Potter á
dagskrá. Og þótt Mission:
Impossible-myndirnar falli seint í
barnaefnisflokkinn er kynningar-
stef Lalos Schifrin bara of flott til að
sleppa því.
Söngleikjadívan Kim Criswell, sem kom fram
með hljómsveitinni á tónleikum á fimmtudags-
kvöld, lætur einnig til sín taka í dag og syngur
nokkur lög úr söngva- og fjölskyldumyndum á
borð við Mary Poppins og Galdrakarlinum í
Oz.
Að vanda mun trúðurinn Barbara sjá til
þess að áhorfendur njóti
tónlistarinnar til hins ítrasta
með sínum einstöku kynning-
um og útlistunum á innihaldi
verkanna.
Bíófjör í Háskólabíói er tilvalið tækifæri fyrir
alla fjölskylduna til þess að njóta tónlistarveislu
hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands.
- vþ
TRÚÐURINN BARBARA Kynnir
Sinfóníuhljómsveit Íslands af sinni
alkunnu snilld.
Bíófjör fyrir fjölskylduna