Fréttablaðið - 19.04.2008, Page 82

Fréttablaðið - 19.04.2008, Page 82
54 19. apríl 2008 LAUGARDAGUR utlit@frettabladid.is DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA Anna Margrét Björnsson Breskir hönnuðir fagna komandi sumri með alls kyns grænum tónum, allt frá smaragðslitu upp í fölan pistasíulit. Grænn litur hefur oft verið tengdur við frjósemi, galdra, álfa og jafnvel ill öfl, og það þarf ákveðið hugrekki til að klæðast honum. Æpandi grænar flíkur mátti meðal annars sjá hjá Paul Smith, Vivienne Westwood, Roksanda Ilincic og Armand Basi. - amb ÓVENJULEGUR LITUR Á BRESKU TÍSKUVIKUNNI VÆNT OG GRÆNT GAMALDAGS Skemmtilegur lífstykkiskjóll í sítrus- grænu frá Vivienne West- wood. OKKUR LANGAR Í … SEXÝ Hippastemn- ing hjá Vivienne Westwood þar sem hún blandar örstuttum buxum við grænar sokka- buxur og loðfeld. GRAFÍSKT Nútíma- legur grænn silkikjóll með kvartermum og svörtum renningum frá Roksanda Ilincic fyrir haust og vetur 2008. GRÆN BRYNJA Fallegur kjóll sem myndi sæma álfadrottningu frá Amanda Wakeley. GAMALDAGS Dömuleg og skemmtileg dragt í anda sjöunda áratugarins frá Armand Basi. ABSTRAKT Skemmtilegt blöðrupils í grænu og bleiku frá Armand Basi. Einhvern veginn hefur maður á tilfinningunni að allir hafi alltaf verið fallegir og smart til fara á öllum áratugunum til sirka 1970. Byrjun 20 aldar færði okkur „Charleston“-fatnað og karlmenn í hvítum smóking og á stríðsárum létu konur ekki sjá sig öðruvísi en vel greiddar með rauðan varalit og herramenn gengu ávallt með hatt. Síðasti stórfeng- legi tískuáratugurinn var svo hinn sjöundi þegar það virðist sem allir hafi verið svalir, í míníkjólum og stígvélum með túberað hár eða í jakkafötum og rúllukragabol með Martini glas í hönd. Undanfarinn áratug hefur fólk náttúrlega bara gengið í hverju sem er sem má að sjálfsögðu kallast stórkostlegt frelsi en er líka afsökun til þess að vera fáránlega illa til fara.Ég er bara hreint ekki viss um að meira frelsi sé gott fyrir heildarsvipinn og sé framtíð- ina í hillingum þegar allir eru töff og í stíl í sixtíslegum geimbúningum í Kubrick-anda. Tíska sem hefur tröllriðið öllu undanfarin fimm ár og virðist sprottin undan rökuðum handarkrikum fótboltastjarna eða sveittum gellum á MTV nær nú hápunkti sínum með evróvisjón-djóki sem varð að myndbandi og er nú auglýsing fyrir Símann. Vinkona mín sem hefur búið í Bandaríkjunum undanfarið ár hélt að þetta væri auglýsing fyrir sólbaðsstofuna SMART á Grensásvegi. Maður hefur jú auðvitað húmor fyrir þessu þangað til að smákrakkar landsins eru farnir að líta á þetta sem tískufyrirmyndir. Og ekki eru sjoppulegu erlendu stjörnurnar skárri. Já, ég segi ykkur það, stíll er greinilega á undanhaldi á þessum síðustu og verstu tímum. Sú eina sem fékk uppreisn æru frá mínum bæjardyrum er Amy Winehouse en ég sá hana á youtube um daginn að ramba um götur Lundúna með túberað hár sem hafði ekki verið greitt í sirka mánuð og eyeliner í sama ástandi. Þrátt fyrir öll sjúskheitin hugsaði ég með mér að hún væri að minnsta kosti frumleg, á svona skítugan Iggy Pop-legan hátt. Ég hefði frekar viljað sjá auglýsingu með henni. Meira frelsi, minni stíll > TÍSKUFRÉTTIR VIKUNNAR Sólgleraugu sumarsins Einn heitasti hönnuður nútímans, bítladóttirin Stella McCartney er nýbúin að skrifa undir samning við gleraugna- fyrirtækið Luxottica um að skapa nýja og spennandi sólgleraugnalínu undir nafni Stellu. Afrakstur samstarfsins mun því miður ekki sjást fyrr en vorið 2009 en skrifað hefur verið upp á samning til ellefu ára þannig að tísku- spekúlantar spá því að þetta verði sólgleraug- un sem allir vilja bera á nefinu næstu árin. Hressandi birki- skrúbb fyrir líka mann frá Weleda sem á að bana allri appels- inuhúð og gerir hana silkimjúka. Nærur fyrir alla daga vikunnar - á frönsku. Frá Fifi Chachnil og fást í Þremur hæðum, Laugavegi. Gullfallegan silkijakka í anda þriðja áratugar- ins eftir íslenska hönnuðinn Eygló. Fæst í Liborius, Laugavegi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.