Fréttablaðið - 19.04.2008, Page 84
56 19. apríl 2008 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Talið er að söngkonan Madonna
fái rúman milljarð króna fyrir að
koma fram á einum tónleikum í
Dubai í nóvember. Einnig stendur
til að hún syngi í einkaveislu á
meðan á dvöl hennar stendur í
arabaríkinu. Fær hún væntanlega
einnig dágóða summu fyrir þá
tónleika.
Nýjasta plata Madonnu, sem
hinn sjóðheiti Timbaland stjórn-
aði upptökum á, er væntanleg í
búðir 28. apríl. Fyrsta smáskífu-
lag hennar, 4 Minutes, hefur að
undanförnu verið mikið spilað við
góðar undirtektir. Þar syngur hún
dúett með popparanum Justin
Timberlake.
Milljarður
fyrir tónleika
MADONNA Söngkonan Madonna fær
rúman milljarð króna fyrir að koma fram
á tónleikum í Dubai.
> AUDREY OG CHANEL
Audrey Tautou, þekkt úr myndinni
Amelie, fer nú með hlutverk Coco
Chanel í myndinni Coco Avante
Chanel. Hún mun þar að auki leika
í nýrri auglýsingu fyrir hið sögulega
ilmvatn Chanel no5. Leikstjóri verð-
ur Jean-Pierre Jeunet, sem leikstýrði
einmitt Amelie, en þau feta þannig í
fótspor Nicole Kidman og Baz Luhr-
man sem gerðu sams konar aug-
lýsingu eftir að kvikmyndin
Moulin Rouge sló í gegn.
Þýska leikkonan Diane
Kruger hefur verið ráðin
í aðalkvenhlutverk kvik-
myndarinnar Run for
Her Life sem Baltasar
Kormákur hyggst leikstýra
í Bandaríkjunum. Gerð
myndarinnar kostar tíu
milljónir dollara.
Diane Kruger verður í aðalhlut-
verki í Hollywoodmynd leikstjór-
ans Baltasars Kormáks. Kruger
mun þar leika á móti Dermot Mul-
roney, en eins og Fréttablaðið
hefur greint frá fjallar kvikmynd-
in um líffærasölu milli Bandaríkj-
anna og Mexíkó. Áætlað er að
tökur hefjist þann 20. maí en kostn-
aður við gerð hennar er tæplega
tíu milljónir dollara. Það þykir
ekki há upphæð á amerískan mæli-
kvarða enda segir Baltasar að
þetta eigi að vera tryllir í ætt við
Mýrina en ekki eitthvað Holly-
wood-skrímsli.
Baltasar var að vonum ánægður
með að hafa klófest leikkonuna
Kruger. „Hún er rísandi stjarna í
þessum kvikmyndaheimi, var auð-
vitað valin í hlutverk Helenu fögru
í stórmyndinni Troy á móti Brad
Pitt og Orlando Bloom,“ segir Balt-
asar sem var staddur í Los Angel-
es þegar Fréttablaðið náði tali af
honum. Leitin að Helenu tók drjúga
stund á sínum tíma, enda átti unn-
usta Parísar að vera hið fegursta
fljóð sem heimurinn hafði litið.
Baltasar viðurkennir að Diane sé
vissulega vel að hlutverkinu komin
en hún komist aldrei nálægt fyrsta
sætinu í sínum huga. „Hún er mjög
glæsileg en ekki síður góð leik-
kona og það fer ekkert alltaf
saman,“ bætir Baltasar við. Meðal
annarra hlutverka Kruger má
nefna National Treassure-mynd-
irnar tvær þar sem hún lék á móti
Nicolas Cage.
Leikstjórinn hefur verið á stans-
lausum þönum undanfarnar vikur
við að finna hentuga tökustaði.
Hann kom meðal annars við í land-
mæraborginni Juárez en þar hefur
ríkt hálfgert stjórnleysi að undan-
förnu vegna átaka vopnaðra glæpa-
hringja. Auk þess hefur lögreglan
árangurslaust reynt að hafa upp á
morðingjum á yfir fimm hundruð
konum sem hafa verið myrtar á
grimmilegan hátt undanfarin tíu
ár. „Mig langar að taka upp þarna
þrátt fyrir ástandið. Þetta er eitt-
hvað tryggingamál en framleið-
endurnir eru að reyna að leysa
það,“ segir Baltasar sem einnig
hefur verið töluvert í Santa Fe.
Íslenski leikstjórinn verður með
70 manna tökulið þegar tökurnar
hefjast og að hans sögn er byrjað
að byggja leikmynd fyrir mynd-
ina. Hann er um þessar mundir að
fara yfir handritið með handrita-
sérfræðinginum John Claflin en
hann er hálfgerður handritalæknir
hjá stóru kvikmyndaverunum.
„Vélin er farin í gang og það eru
óneitanlega spennandi tímar fram
undan,“ segir Baltasar.
freyrgigja@frettabladid.is
Baltasar leikstýrir Helenu fögru
HELENA FAGRA Diane Kruger sló fyrst í
gegn sem Helena af Tróju í kvikmynd-
inni Troy.
SPENNTUR Baltasar Kormákur segir boltann farinn að rúlla en tökur á Run for Her
Life hefjast í lok maí.
Framtíð Hollywood-skiltisins víðfræga gæti verið í hættu.
Fyrirtækið Fox River Financial Services, sem er í Chicago,
setti nýlega á sölu lóð sem liggur bak við og vinstra megin
við H-ið í skiltinu. Hún er alls um 56 hektarar, og selst á 22
milljónir dollara. Los Angeles-búar óttast nú að kaupandi
lóðarinnar muni nýta hana undir íbúðarhúsnæði sem muni
þar með spilla póstkortslegu útsýninu. Þar að auki gæti
landsvæðið, sem er vinsælt hjá fjallgöngugörpum og
túristum, verið lokað almennri umferð.
Borgarfulltrúinn Tom LaBonge fer fyrir þeim sem
mótmæla sölunni. „Þetta er Eiffel-turninn okkar. Þarna er
Hollywood-skiltið. Þarna er víðátta. Og það er allt sem er
þarna. Þetta tilheyrir okkur og ætti að tilheyra okkur,“
segir hann.
Landsvæðið var áður í eigu milljarðamæringsins
heitna Howard Hughes, en fyrirtækið frá Chicago festi
kaup á því árið 2002 fyrir 1,7 milljónir dollara. Ef
kaupandi finnst ætti fyrirtækið því að græða á tá og
fingri.
Hollywood-skiltið í hættu
BÚIÐ Á BAK VIÐ H-IÐ Landsvæðið sem nú er til sölu liggur á bak við og
vinstra megin við H-ið í Hollywoodskiltinu.
Sextíu og þrír útskriftar-
nemendur Listaháskóla Ís-
lands sýna verk sín á Kjar-
valsstöðum næstu daga.
Sýningin stendur yfir til
1. maí og er hin fjölbreytt-
asta, þar sem nemendum
úr arkitektúr, vöruhönnun,
myndlist, grafískri hönnun
og fatahönnun er stefnt
saman.
Úr öllum áttum
RINGULREYÐI Rakel Jónsdóttir hannaði
verkið Ringulreyði.
KRUNNI Ragnheiður Margeirsdóttir á
heiðurinn af hönnun Krunna.
VERZLUN GUÐBRANDAR Guðbrandur
Bragason við verk sitt á sýningunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM