Réttur - 01.06.1915, Page 41
- 47 -
teikn á himni um 1880, að vordagar nýrra tíma séu í vænd-
um. Sjálfstæðishreyfingar bygðar á félagsskap og samvinnu
fara þá að láta á sér bæra. Og þó að sumt af þeim verði
barnslegt fálm út í loftið, bera þær samt vottinn um vakn-
andi þörf í þessum efnum hjá þjóð vorri og annarsvegar
aðstöðu og hæfileika til umbóta í samvinnumálum. Pví hver
getur ætlast til þess, að einangruð þjóð sem vér, bæði út
á við og inn á við, kasti ham í þessu tilliti í einni svipan,
eins og konungsdóttir leyst úr álögum? En einmitt um
þessar mundir fer að bóla á þeim samvinnuhreyfingum, er
sumpart hafa farið forgörðum fyrir rás viðburðanna en
sumpart þróast fram á þennan dag og orðið að miklu liði.
Hér er það fyrst og fremst kaupfélagsskapurinn, sem um
er að ræða. F*ar varð alger breyting frá því sem áður var.
í stað þess að heimilin áður einangruðust í kaupstaðinn
með afurðir sínar handa kaupmanninum, sem allajafna var
danskur, tóku þau nú höndum saman til vörukaupa og
samábyrgðar á gjaldeyri fyrir vörurnar. Petta var að mestu
nýtt og merkilegt fyrirbrigði í sögu þessa lands.
En kaupfélagsskapurinn átti ervitt uppdráttar, enda var
það sízt að undra. íslenzk náttúruskilyrði vóru í eðli sínu
fjandsamleg slíku skipulagi, og stjórnarfar umliðinna alda
átti drjúgan þátt í að leggja stein í götu slíkrar nýbreytni.
Svo risu upp íslenzkir kaupmenn, sem í nafni sömu hug-
sjónar hvöttu menn til að aðhyllast sig. Almenningur, sem
nú átti að taka höndum saman, var því á milli margra elda.
Og raunin varð sú með alltof marga, að þeir létu glæstan
stundarhag leiða sig í gönur. Áföll samábyrgðarinnar í
kaupfélagsskapnum hröktu þá út af þeirri leið, sem þeir
höfðu kosið, og leiddu þá að nýju að náðardyrum kaup-
mannanna. Og í mörgum tilfellum var þetta ekki láandi.
Viðskifti kaupfélaganna sem keppinauta við kaupmenn hafa
lengstum verið of einhliða. Ef viðskiftamanninn bar upp á
sker með lofaðan gjaldeyri, þá varð hann, — eftir eðli kaup-
félagsviðskiftanna, — að hætta verzlun við félagið, eða þá
að öðrum kosti eitra viðskiftalíf félagsins með skuldaverzl-
un, Hér var snurðan og snöggi bletturinn. Ef kaupfélagið