Réttur - 01.06.1915, Blaðsíða 44
- 50 -
og kostnaðar en áður. Við þessu er eigi unnt að sporna.
Rás viðburðanna hefir knúið fram þessar breytingar, og
fólkið, bæði til lands og sjávar, getur bezt borið vitni um,
hversu daglegar annir hafa aukizt á seinni tímum. Kröfur
daglega lífsins aukast svo mjög, að heimiliskostnaðurinn
er ekki líkur sem áður. Vinnufólksekla í sveitunum þrengir
svo að bændum, að ervitt reynist að vinna upp jarðirnar.
Sjávarútvegurinn, bæði þorskafli og síidveiði, dregur fólkið
til sín með háu kaupgjaldi um stundarsakir. Aðalatvinnu-
vegir þjóðarinnar togast á um vinnukraftinn og standa á
öndverðum meiði. Dýrtíð þjakar þjóðinni, einkum dag-
launamönnum og þeim, sem á föstum launum lifa. Alstað-
ar kemur fram misvægi, sem margar samtaka hendur í rétta
átt þarf til að jafna. Skilyrðin í baráttu lífsins hafa breyzt
að miklum mun frá því sem áður var. Og allar þær breyt-
ingar miða að því að gera einstaklinginn háðari samlífi og
samvinnu við aðra heldur en áður. Mælt er, að þjóðin
kæmist af í fyrri daga með því laginu, að hver baukaði
útaf fyrir sig. Nú kemst hún það ekki lengur, —nú er henni
að verða Iífsnauðsyn á samvinnu í öllum greinum.
Samvinnuskilyrðin eru því að batna hjá oss fyrir rás við-
burðanna, þrátt fyrir Strjálbygðina og einangrun þá, sem
landshættir valda. Og þar við bætist svo eitt mikilsvert at-
riði, er sízt má gleyma. Stórþjóðirnar skiftast í stéttir. F*ar
er auðmannastéttin voldugust og iðnaðurinn sá konungur,
sem menn lúta lægst. F*ar klóast örbirgð og auður, og er
ójafn skinnaleikur. Ægilegt djúp í aðbúð og háttum er
staðfest milli stéttanna og hagsmunir beggja rekast á. F*ar
er því um harða baráttu að tefla en eigi samvinnu. F*ó er
sigurvonin alltaf hæpin fyrir verkmannastéttina, meðan bar-
izt er beint á móti. Bezt reynist verkamönnum að stofna
öflugan félagsskap í því skyni að ná í sínar hendur vélum
og framleiðslutækjum og gerast með þeim hætti keppinaut-
ar auðvaldsins. F*ar mætast stál á miðri leið. Og þó ererv-
itt um siíkar framkvæmdir. Pví ofurmagn auðvaldsins er svo
víðtækt og angalangt, að áhrif þess gilda svo að segja á
öllum sviðum þjóðlífsins.