Réttur - 01.07.1917, Page 18
20
Réttur
Eg get hugsað mér, að G. eigi enn eptir að skrifa og
fræða fólk um, hvernig heppilegast verði byggðir sveita-
bæir í orðsins gömlu merkingu. íslenzk alþýða má vera
honum þakklát, ef hann vill beita sínum góðu gáfum í
þarfir svo góðs málefnis, en hvað sem því líður, þá á
liann þegar margfaldar þakkir skilið fyrir þá bók, er hann,
hefur skrifað og sem eg hef reynt að lýsa í þessari grein.
Fáir munu þeir vera, sem hugsa öllu meira enn Guðm.
H. um að bæta kjör íslenzkrar alþýðu á ýmsan hátt.
Finnst mér því ömurlegt að hugsa til þess, að þessi sama
íslenzka alþýða (þ. e. a. s. húnvetnski hiuti hennar) skuli
ekki betur kunna að meta manngildi slíks þjóðþrifafröm-
uðs og G. H. er, að hún synjar honum aðgöngu að
þingsæti og varnar honum að vinna sjálfri sér gagn. —
Pað var ef til vill gott fyrir G. H. sjálfan, að hann fékk
að sitja í næði heima, starfandi þar í kyrþey, skreppandi
við og við yfir í Menntabúrið, sem liggur andspænis húsi
hans í Hverfisgötu. Þar veit eg að hann unir sér vel við
að grúska í bókum og afla sér meiri fróðleiks.
. Steingrímur Mutthíasson.
A