Réttur - 01.07.1917, Blaðsíða 59
Þjóðjarðasala og landleiga
61
að sjá hvaða niðurstöðu yfirstandandi fasteignamat gef-
ur. Fyrsta mat er að sjálfsögðu erfiðast, en jafnframt
því, sem það gefur talsverða undirstöðu undir mat með
sérstöku tilliti til slíkrar skattabreytingar, þá skýrast smám-
saman- hugmyndir manna um skilyrðin fyrir góðri nið-
urstöðu á slíkum matsgerðum. Hefir sú orðið reynslan
annarsstaðar, þar sem slík möt hafa farið fram, að hið
félagsmyndaða landverð er hinn augljósasti og auðveld-
asti skattstofn sem hugsast katin, þegar á annað borð er
búið að átta sig á þeim grundvallarreglum, sem fram á
að fylgja. Hefi ég þar meðal annars fyrir mér eigin orð
eins manns úr yfirmatsnefnd þeirri, er fjallar um yfir-
standandi mat á öllum jarðeignum í Danmörku, einmitt
í þessu skyni. Er þaðan mikilla breytinga að vænta í
skattaskipulagi á næstu árum.
Pví er ekki að neita, að hér er um margt erfiðara að
framkvæma slíkt mat, en þó verður það ekki aðalþrösk-
uldur þessa máls, ef að líkindum lætur.
Jón Gauti Pétursson.