Réttur - 01.07.1930, Síða 3
Straumhvörf.
Með ári því, sem nú er að líða, gerast tvímælalaust
einhver hin mestu straumhvörf í atvinnu- og stjórn-
málaþróun heimsins síðan 1917. Rúman áratug hafa
nú auðvaldsheimurinn og ráðstjórnarríkin staðið hlið
við hlið, skörp barátta verið háð innan beggja, barátta
um stefnu þróunarinnar.
í auðvaldsheiminum hefur verið um það barist að
endurreisa auðvaldsskipulagið eins fast og traust í
sessi, og það var fyrir heimsstyrjöldina síðustu. Allir
kraftar borgarastjettarinnar hafa beinst að þessu
marki — og alstaðar hefur auðvaldsskipulag Banda-
ríkja Norður-Ameríku verið fyrirmyndin, sem kept
var að. Með festu þeirri, er að nokkru var sköpuð á ár-
unum 1925—27, myndaðist sú trú hjá fjölmörgum auð-
valdssinnum að auðvaldsskipulagið væri virkilega búið
að yfirvinna »stríðskreppuna«, það ætti enn þá langt
þróunarskeið framundan sjer og væri enganveginn
endanlega komið á hnignunarstigið eins og kommúnist-
ar hjeldu fram. Þessa trú á þróunarmöguleika auð-
valdsins aðhyltust sosialdemokratar allra landa einnig
og höguðu sjer samkvæmt því. Þessi trú borgaraflokk-
anna, einnig hinna sosialdemokratisku, beið nú dóms
reynslunnar — og hans var beðið með eftirvæntingu
mikilli.
í ráðstjórnarlýðveldunum hefur alþýðan háð hetju-
lega baráttu, til að reisa við iðnað og atvinnu alla, sem
4 ára heimsstríð og 3 ára borgarastríð höfðu lagt í
15*