Réttur - 01.07.1930, Qupperneq 9
Rjettur]
STRAUMHVÖRF
225
Englandi yfir 2. í Póllandi, Austurríki og fleiri Mið-
Evrðpu löndum er atvinnuleysið ennþá geigvænlegra,
alt að þriðjungur verkalýðsins, sem unnið hefur í iðn-
aðinum, er atvinnulaus. Alls eru í iðnaðarlöndunum um
17 miljónir atvinnulausra, og þar með ca. 80 miljónir
manna sviftar lífsmöguleikum, ofurseldar hungri og
kulda.
Verkalýðurinn atvinnulaus — og vinnutækin (verk-
smiðjur, námur etc.) ekki notuð að hálfu leyti — og
neyð yfir alt — það er ástandið, sem eignarrjettur auð-
mannanna á framleiðslutækjunum hefur leitt af sjer,
— það er árangurinn af öllu endurbótafálmi og við-
reisnartilraunum borgaraflokkanna, að sosialdemo-
krötum meðtöldum, á síðasta áratug.
Þetta er uppbygging auðvaldsins.
Hjer er dómur reynslunnar.
Atvinnuþrómn RB.
Á meðan heimskreppan hrjáir auðvaldsheiminn, um-
skapar alþýða ráðstjórnarbandaríkjanna (RB) at-
vinnulíf sitt á grundvelli kommúnismans. Framkvæmd
5 ára áætlunarinnar, sem lýst var að nokkru í 1. hefti
»Rjettar« á að verða prófsteinninn á hið nýja skipu-
lag. Skulu nú greindar nokkrar tölur í viðbót við það,
sem þá var nefnt, til að sýna hvernig gengur.
Framleiðslumagn alls stóriðnaðar RB mun á fyrstu
2 árum áætlunarinnar vaxa um 59%, þar sem 5 ára á-
fetlunin »aðeins« gerði ráð fyrir 43% aukningu. Vöxt-
Ur þungavöruiðnaðarins nemur 88%, en áætlunin var
•58%. Vjelsmíðaiðnaðurinn vex um 250% (5 ára áætl-
>■11011 bjóst við 171%), og verður t. d. framleiðsla land-
búnaðarvjela í ár sexföld á við fyrir stríð.
Eftir 5 ára áætluninni átti á 2 fyrstu árunum að
^ggja 4 miljarða rúbla (= 8000 miljónir króna) í ný
fyrirtæki, en það verða 6 milja/röir.