Réttur - 01.07.1930, Blaðsíða 18
234
STRAUMHVÖRF
[Rjettur
kommúnismann, þegar á þarf að halda, og »þrælalög-
in« bresku, sem Macdonaldstjórn ensku sosialdemo-
kratanna beitir eftir að íhaldið hefur komið þeim á, —
þau eru hvortveggja valin til að tryggja heimalöndin,
meðan stríðið er háð á landamærunum eða eystra við
Rússland.
Og þar sem auðvaldinu þykir mikið á ríða, skirrist
það ekki við að grípa til annara eins ráða og þeirra að
útrýma heilum kynslóðum byltingarmanna og verka-
lýðs, svo sem gert hefur verið í Búlgaríu, Rúmeníu og
ítalíu.
Hámarkinu nær stríðsundirbúningurinn í samningum
um hernaðarbandalag og í því að byrgja árásarríkin að
vopnum.
Samningar um hernaðarbandalag eru nú þegar gerð-
ir milli Póllands og Rúmeníu, Póllands og Frakklands.
Póllands og Tscheckoslowakíu, Frakklands og Rúm-
eníu, Englands og Eystrasaltslandanna o. fl. 1 samn-
ingum Frakka og Pólverja, skuldbindur Frakkland sig
til að byrgja Pólland að vopnum, tryggja með flota
sínum vopnaflutning til Póllands og ef nauðsynlegt sje
að senda her til hjálpar. Ennfremur skuldbindur
Frakkland sig til að segja Þýskalandi stríð á hendur
og ráðast á það, ef það blandi sjer í deilu Rússa og Pól-
verja. Og eftir þessu eru hinir samningarnir.
Af vopnum og hergögnum hefur allur aragrúi verið
fluttur inn til landamæraríkja RB. T. d. hefur Pólland
á árunum 1923—29 fengið frá Frakklandi 150000
byssur, 5000 vjelbyssur, ca. 1000 fallbyssur, ]/2 miljón
skota, 2000 flugvjelar, 25 tanka og fleira.
Vígbúnaður auðvaldsríkjanna gegn Rússlandi sjest
best ef hann er borinn saman við rauða herinn.
Herir auðvaldsríkjanna sem að Rússlandi liggja eru
á friðartímum: