Réttur - 01.07.1930, Síða 47
Rjettur]
MARXISMINN
2fi3
verkalýðsins gagnvart húsbændum og meisturum, tengir hann
saman í sameig'inlegri hugsun um mótstöðu, — tengir hann í
bandalag.... Svo skapast flokkar úr samböndum, er fyrst voru
einangruð, en gagnvart hinu sísameinaða auðmag-ni skiftir enn
meira máli að halda uppi félagsskapnum en laununum. í þessari
baráttu, sem er hrein borgarastyrjöld, sameinast og þroskast öll
öfl fyrir komandi úrslitahríð. Þegar bandalagið er komið á þetta
stig, fær það pólitískt eðli«.
Hér getur að líta stefnuskrá um högun hinnar at-
vinnulegu baráttu og verklýðshreyfingarnar nokkra
áratugi fram í tímann, stefnuskrá um hið langa undir-
búningstímabil, sem á að þroska krafta öreiganna
»fyrir komandi orrahríð«. Við þetta skyldu bornar
saman hinar mörgu tilvísanir Marx og Engels til ensku
verklýðshreyfingarinnar. Þar benda þeir á hvernig vel-
megun iðnaðarins skapar tilraunir til að »kaupa verka-
lýðinn« (»Bréfaviðskifti« 1. bindi, bls. 136) og leiða
hann frá stéttarbaráttunni og hvernig velmegun þessi
yfirleitt »spillir« verkalýðnum. Þeir benda á hvernig
enski verkalýðurinn »verður borgaralegur, svo að þessi
þjóð, (þ. e. Englendingar), sem er borgaralegust allra
þjóða, virðist ætla að komast á það stig, að eiga auk
borgarastéttarinnar borgaralegan aðal og borgaraleg-
an verkalýð« (II. bindi, bís. 290). Þeir sýna oss hvernig
»hinn byltingasinnaði kraftur« eimist burt úr verka-
lýðnum og hvernig þess verður að bíða um lengri eða
skemmri tíma, að enski verkalýðurinn geti losað sig
við þessa borgaralegu smittun. Þeir sýna oss hversu
ensku verkalýðshreyfinguna skorti algerlega »eldmóð
frumkristninnar« (1866 III. bindi, bls. 305) og hvernig
ensku verkalýðsforingjarnir verða einskonar »blend-
ingur« milli hinna róttæku borgara og verkalýðsins
(Um Holylake IV. bindi, bls. 209) og hvernig »the Bri-
tish workingman (enski verkamaðurinn) vilja eigi
fara lengra, vegna einokunaraðstöðu Englands, svo
lengi sem hún eigi verður rofin (IV. bindi 433). Hög-
un hinnar atvinnulegu baráttu í sambandi við almenn-