Réttur - 01.07.1930, Blaðsíða 55
Rjettur] ALÞJÓÐASAMHJÁLP VERKALÝÐSINS 271
unnar með því að lækka kaup hennar. Þar af leiða
kaupdeilur og sennilega verkföll, sem einasta nauðvörn
verkalýðsins.
Það má því ekki seinna vera, að ASV er stofnað hér
á landi. Verkefnin eru mýmörg og knýjandi þörf að
hefjast handa. Félaginu hefir verið vel tekið og það
hefir þegar sýnt gagnsemi sína. Nú er bráðnauðsynlegt
að stofna sem víðast deildir, og að öll verklýðsfélög
gangi í ASV sem heild. Fjárhagslega kostar það þau
ekkert teljandi, 10 aura af meðlim á ári, en félagslega
er það þýðingarmikið, að samúðin og samvinnan sé
sem víðtækust og öflugust.
Ingólfur Jónsson.
Log
fyrir Alþjóðasamhjálp verkalýðsins,
íslandsdeildina.
1. grein.
Félagið heitir Alþjóðasamhjálp verkalýðsins, ís-
landsdeildin, og skammstafast: A. S. V. íslandsdeildin
(A. S. V. í.).
2. grein.
Félagið er deild úr alþjóðasamhjálp verkalýðsins og
lýtur lögum þess. Hlutverk þess er sem segir í lögum
ulþjóðasamhjálparinnar: að hjálpa eftir megni allstað-
ar. þar sem almenn hætta er á ferðum fyrir alþýðu,
hvort sem sú hætta er hungursneyð, stjórnarfarslegt
eða annað þjóðfélagslegt böl. Og þar sem alþýðuveldið
íússneska er öflugasta stoð og stytta alþýðu um heim
allan, leitast A. S. V. í. við af fremsta megni að styðja