Réttur - 01.05.1932, Síða 3
hans er leyst upp og hann er fluttur í fangelsi af lög-
reglustjóranum í Reykjavík, án nokkurs dóms eða laga.
En ljótasta — og tíðasta myndin er eftir.
Heil verkamannafjölskylda er fyrirvaralaust tekin.
Rígefldir karlmenn látnir flytja dót hennar og henda
því um borð á skipi snemma morguns. Foreldrar og
börn aðskilin og flutt sitt í hverja áttina, komið niður
hér og hvar eftir því sem sveitarstjórn og yfirvöldum
þóknast.
Þessi dæmi eru mörg og þeim fjölgar nú með hverri
viku sem líður.
Hvað er að gerast?
Það er verið að meðhöndla fátæklinga á 20. öld eins
og þrælar hafa verið meðfarnir meðan þrælahald tíðk-
aðist. Það er verið að fara með lifandi, heilbrigðar
mannverur eins og skynlausar skepnur. Það er verið að
fótum troða hvern snefil af réttindum, sem talin eru
hverjum manni meðfædd, síðan franska byltingin varð
1793. Það er verið að slíta börn frá foreldrum, leysa
upp hvaða tryggðabönd, sem eru, taka menn nauðuga og
flytja þá næstum því í böndum þangað, sem hinir ríku
og voldugu í þjóðfélaginu heimta þá.
Það er verið að framkvæma þrælahald valdhafanna
í þjóðfélaginu á fátæklingunum, sem leitað hafa ásjár
„sinna kristilegu meðbræðra". Það er verið að gera hina
fátækustu réttlausa, útskúfaða úr mannlegu félagi,
brennimerkja þá, sem óæðri menn, sem valdhafarnir
geti ákveðið allt um, hvar þeir búi, hvað þeir borði,
hvort þeir fái að ala upp börnin sín. Það er verið að
svifta f]ölda manna öllu sem heitir persónulegt vald
yfir lifi sínu og athöfnum. — Það er verið að gera þá
að þrælum.
0g hvað hafa þeir til „saka“ unnið?
Þeir hafa unnið það til saka, að vera alla sína æfi
fátækir, að þræla baki brotnu fyrir smánarkaupi, með-
an auðmönnunum hefir þóknast að græða á þeim. Þeir
hafa drýgt þann glæp, að búa alla sína æfi í saggasöm-
67