Réttur


Réttur - 01.05.1932, Side 4

Réttur - 01.05.1932, Side 4
um kjallaraíbúðum eða illum þakherbergjum. Þeir hafa þjást og liðið af fátækt og neyð. Þeir hafa farið á mis við flestöll þau gæði, sem lífið hefir að bjóða. Þeir hafa pínst atvinnulausir af áhyggjunum fyrir morgun- deginum og soltið heilu hungri, áður en þeir loksins létu undan og leituðu til sveitarinnar. Og síðan hafa þeir þolað allar svívirðingar fátækrafulltrúa og frekra skrif- stofumanna, unz þjóðfélagið kórónar eymd þeirra með sveitarflutningnum, tortímingu síðustu leifanna af persónufrelsi þeirra. Þessir menn hafa ekki stolið miljónum, rænt ekkjur og munaðarleysingja, gefið falsaða reikninga, framið sviksamleg gjaldþrot né þegið mútur af erlendum auð- félögum, — enda myndu þeir þá í hávegum hafðir og settir í hefðarsæti. Þeirra glæpur er — fátæktin, neyð- in, skorturinn. Þess vegna er þeim hegnt svo þungt með svifti persónulegs frelsis. Hvað á þetta lengi að ganga? Er allt, sem barist hefir verið fyrir mannúð í heim- inum, unnið fyrir gíg — hvað ísland 20. aldarinnar snertir ? Er þetta árangurinn af 1000 ára boðun réttlætis og bróðurkærleika á íslandi? Hvar eru nú þeir, sem einhverntíman hafa þorað að hefja rödd sína gegn þeim, sem níðast á smælingjun- um, á þeim varnarlausu í þjóðfélaginu? Hvar er nú, sá, er forðum reit söguna „Vistaskifti“ í „Smælingjum“, og lýsti átakanlegast þjáningum „sveit- arómagans“ og níðingsskap valdhafanna. Hví þegir hann nú? Er engin mannúð, engin tilfinning lengur til í ís- lenzku miðstéttunum, að þær skuli láta þessar svívirð- ingar viðgangast mótmælalaust? Hvar eru nú arftakar og aðdáendur Gests Pálssonar og Þorsteins Erlingssonar, andstæðingar hræsninnar og forvígismenn smælingjanna, til að afhjúpa og húð- 68

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.