Réttur - 01.05.1932, Page 12
réttvísi auðvaldsins að bráð, alveg án tillits til stjórn-
málaskoðana þeirra eða pólitískra flokka, Hún hefir
nú, eftir 10 ára starf, um 10 miljónir einstakra með-
lima, auk þeirra meðlima, sem gengið hafa í hana í
félagshópum. Þetta sýnir öðru betur, að hér er um fé-
lagsskap að ræða, sem fullnægir knýjandi nauðsyn,
enda getur engum dulizt það, sem þekkir borgaralegt
réttarfar nú á tímum, stéttahlutdrægni þess og grimmd-
aræði. Menn vita það ekki almennt, að í sumum helztu
„menningarlöndum“ borgarastéttarinnar eru viðhafðar
„réttarfars“-aðferðir, sem að miskunnarleysi og dýrs-
leik standa ekki að baki trúvillingarannsóknum ka-
þólsku kirkjunnar á miðöldum, enda þegja dagblöð og
tímarit borgaranna auðvitað vandlega um allt slíkt,
nema rétt einstaka sinnum, þegar réttarfarshneykslin
ganga himninum hærra, svo að hin heiðarlegustu þeirra
sjá sér ekki annað fært en að taka til máls. Þessi þögn
og yfirhilming réttarfarssvívirðinganna er ekki síður
einkenni á sósíaldemokratisku dagblöðunum en öðrum
borgaralegum blöðum, enda þótt ofsóknunum sé ekki
síður beitt gegn hinum sósíaldemokratisku verkamönn-
um en öðrum verkalýð, sem ekki vill beygja sig und-
ir svipuna.
í löndum fasismans, svo sem Póllandi, Rúmeníu,
Búlgaríu o. s. frv., tíðkast hrein og bein miðalda með-
ferð á pólitískum föngum, sérstaklega þó byltingasinn-
uðum verkamönnum. Þeir eru sveltir, húðstrýktir, bein-
brotnir, brenndir með glóandi járnum, það eru brotn-
ar úr þeim tennurnar, rifnar af þeim neglurnar o. s.
frv., o. s. frv. I fyrirmyndarlandi auðvaldsins, Banda-
ríkjunum, er sama máli að gegna. Menn eru þar pynd-
aðir og drepnir án dóms og laga fyrir þátttöku í hinni
byltingasinnuðu hreyfingu; algengt er það t. d., að
þjóðernisóðir skrílshópar, sem æstir hafa verið upp af
auðvaldsblöðunum, taki svertingja og hengi þá eða
drepi á annan hátt fyrir litlar eða engar sakir, án
þess að dómstólarnir skeyti um að koma ábyrgð á
76