Réttur - 01.05.1932, Blaðsíða 17
lcosinn var formaður sendinefndarinnar, var kosinn
af verkalýð Isafjarðar á almennum fundi og kostað-
ur af bæjarstjórn kaupstaðarins, og Marteinn Björns-
son kosinn og mestmegnis kostaður af járniðnaðar-
mönnum Reykjavíkur.
Pólitískt voru nefndarmenn af öllum flokkum, 2
sjálfstæðismenn (3. og 9.), 1 framsóknarmaður (4.),
2 sosialdemokratar (2. og 7.), og 2 kommúnistar (8. og
10), hitt voru flokksleysingjar.
Áður en nefndin hélt á hafið kvaddi verkalýður
Reykjavíkur hana á fjölmennum fundi og eins voru
ræður haldnar við skipsfjöl, er haldið var af stað.
I Hamborg lá við að nokkrir nefndarmenn yrðu
höndum teknir, sökum ofsókna lögreglunnar gegn
róttækum verkalýð. I Berlín mætti nefndin á voldug-
um fundi, sem Rússlands-sendinefndir frá fjölmörg-
um löndum héldu með verkalýð Berlínarborgar. Var
-síðan haldið yfir Pólland til rússnesku landamær-
anna. Hófst þar 14. okt. förin um hið volduga nýja
ríki sósialismans. Skrifuðu nefndarmenn dagbækur
um förina og er heim kom var ritara nefndarinnar,
Marteini Björnssyni, falið að semja skýrslu nefndar-
innar og liggur hún nú fyrir í handriti. En kostnaðar-
ins vegna hefir ekki verið hægt að gefa þessa skýrslu
út enn. Hinsvegar hefir „Réttur“ góðfúslega fengið
að styðjast við þessa skýrslu í þessari litlu frásögn
sinni af förum sendinefndarinnar.
Um móttökurnar á landamærastöðinni, Negoreloje,
farast ritara nefndarinnar þannig orð:
„Þrátt fyrir að flokkurinn var orðinn þreyttur af
hinni löngu ferð í hörðum vögnum, var nú sem nýtt
líf færðist í hvert mannsbarn. Menn biðu með óþreyju
eftir að lestin staðnæmdist og leyft yrði að stíga af.
Eftir fáar mínútur stóðum við á rússneskri jörð, um-
kringdir af mörgum hundruðum verkamanna og
kvenna, sem safnast höfðu saman á járnbrautarstöð-
inni til að bjóða okkur velkomna. Síðan var gengið
í skrúðgöngu undir söng og hljóðfæraslætti til húss
þess, er aðal móttakan átti að fara fram í.
81