Réttur - 01.05.1932, Side 18
Þegar sendinefndarmenn höfðu komið farangri sín-
um undir þak, var sest að tedrykkju. Á meðan setið
var yfir borðum voru margar ræður fluttar af hálfu
Rússa, sem allar gengu út á það, að bjóða okkur vel-
komin til Sovét-Rússlands; jafnframt var skorað á
okkur að taka vel eftir öllu því, sem við sæum á ferð
okkar gegnum landið, og að setja vel á okkur það,
sem okkur kynni að þykja ábótavant við fyrirkomu-
lagið og láta síðan álit okkar í ljósi, á fundum með
verkamönnum, þegar tækifæri gæfist.
Á eftir ræðuhöldunum hófust þegar fjörugar sam-
ræður, sem öðru hverju voru rofnar af hinum þrótt-
mikla söng æskulýðsins rússneska, sem reyndi á allan
hátt að gera okkur dvölina sem ánægjulegasta, enda
urðum við brátt eins og heima hjá okkur, í þessum
glaðværa og vingiarnlega hóp.
Hér hittum við Islendingarnir hinn ágæta túlk okk-
ar, Jens Figved frá Eskifirði, sem er búsettur í
Moskva. Hann var sendur á járnbrautarstöðina til
að taka á móti okkur. Kl. um tíu kom lest sú er flytja
átti okkur til Moskva“.
15. okt kom nefndin til Moskva. Veitti stjórn fag-
félaganna henni virðulegar móttökur. Bjó nefndin á
hótel „Evrópa“, og var henni strax sýnt hið markverð-
asta í borginni, en um kvöldið haldið áfram suður á
bóginn til Stalingrad (áður Zarisyn). — Þar skoðaði
nefndin þann 18.—19. okt. hina frægu dráttarvélaverk-
smiðju ,,Traktorstroj“, þar sem vinna 14.000 menn. —
Vinnutíminn er þar 7 tímar á dag og hvíld 5. hvern dag.
Meðallaun 80 kopekar (1.60 gullkr.) um tímann. 80%
verkamanna eru faglærðir. „Eldhús" verksmiðjunnar
getur framleitt 30.000 miðdegisverði á dag, og vinna
1.300 manns við matarframleiðsluna. í borðsalnum geta
matast 10.000 manns á dag. Kostaði fæðið á dag 90
kopeka, en 30 kopeka einstakar máltíðir. Dáðist nefnd-
in mjög að mikilleik þessarar sósíalistisku verksmiðju,
einkum þó að klúbbhúsi og sér í lagi yfirráðum og kjör-
um verkalýðsins við hana.
Ennfremur sá nefndin hinn nýja bæ Biggetovka, þar
sem er raforkuverið fyrir Stalingrad, 15.000 hestafla
82