Réttur - 01.05.1932, Side 29
Félagar! Við erum sannfærðir um að þið hafið nú
þegar lagt traustan grundvöll að sósíalismanum, sem
er leiðin að lokatakmarki baráttu okkar, kommúnism-
anum. Þetta veit alheimsauðvaldið og reynir þess-
voo-na á allan hátt að leyna sannleikanum um yfir-
burði hins nýja skipulags, fyrir verkalýðnum. Breiðir
út hinar svívirðilegustu lvo-ar og hervæðist af alefli
gegn hinu unga verklýðsríki.
Lygarnar um Sovétríkin eru sagðar í þeim tilgangi
að tæla verlcalýðinn til þátttöku í hinni fyrirhuguðu
innrás auðvaldsherjanna í Sovét-Rússland.
Sosialdemokratar styðja auðvaldið í þessum stríðs-
undirbúningi, bæði beinlínis eins og mensévika rétt-
arhöldin í vor afhjúpuðu og óbeinlínis með því að taka
þátt í rógburðinum og blaðal.vgunum um Sovétríkin.
íslenzku sosialdemokratarnir eiea sinn þátt í þessu.
Sum blöð þeirra hafa samþykkt lygarnar með þögn
sinni.
Félagar! Við munum, er heim kemur, gera allt, sem
í okkar valdi stendur til þess, að útbreiða sannleikann
um Sovétríkin og hnekkja öllum lygum um þau. Við
vitum, að eining verkalýðsins undir forustu Kommún-
istaflokksins, er skilyrði fyrir sigri sósialismans, og að
stríð gegn Sovétríkjunum er stríð gegn öreigalýð al-
heimsins.
Lifú Sovétlýðveldin rússnesku.
Lifi alræði öreiganna.
Lifi heimsbyltingin.
Gísli Sigurðsson, Siglufirði.
Jón Jónsson, Bjarnastöðum, Mývatnssveit.
Kristján Júlíusson, Húsavík.
Baldvin Björnsson, Vestmannaeyjum.
Elín Guðmundsdóttir, Reykjavík.
Þórður Benediktsson, Vestmannaeyjum.
ísleifur Sigurjónsson, Reykjavík.
Kjartan Jóhannsson, Reykjavík.
Jens Hólmgeirsson, Tungu, Isafirði.
Marteinn Björnsson, Reykjavík.
Heim til Islands kom nefndin 6. des. Tók hún strax
til óspilltra málanna að kynna þeim verkalýð, er hana
hafði sent, árangurinn af för sinni. Voru haldnir fyr-
irlestrar af nefndarmönnum í Vestmannaeyjum og
93