Réttur - 01.05.1932, Blaðsíða 30
Reykjavík 2, fyrir troðfullum húsum. Síðan af einstök-
um nefndarmönnum í Hafnarfirði, ísafirði, Siglufirði,
Akureyri, Húsavík og í Þingeyjarsýslu. Auk þess héltj
formaður nefndarinnar klukkutíma erindi í útvarpið, er
vakti hina mestu eftirtekt út uni allt land, og var mjög
merkilegt, sakir ágæts framsetnings og fróðleiks, en
hafði þó fyrst og fremst mikil áhrif sökum þess, að
kunnugt var um pólitíska andstöðu Jens við kommún-
ismann, en erindið hinsvegar alls staðar lofsamlegt um
ástandið í Sovétríkjunum.
Ein af afleiðingum sendinefndarinnar var sú, að
stofnað var „Sovétvinafélag íslands“ 24. sept. 1932 í
Reykjavík. Er tilgangur þess, að kynna mönnum sann-
leikann um ástandið í Sovétríkjunum, verja það fyrir
árásum og óhróðri andstæðinganna og koma á betra
menningarlegu sambandi við þau en hingað til hefir ver-
ið. Mun þetta félag einnig hafa með sendifarir að gera
framvegis. í stjórn þess eru: Kristinn Andrésson, mag.
art., formaður, Sveinbjörn Sigurjónsson, Björn Franz-
son, Haukur Björnsson og Sigurður Einarsson. Geta
menn, er óska eftir ýmsum upplýsingum, snúið sér til
þessa félags.
Vináttuböndin milli verkalýðs íslands, sem nú heyir
sína hörðu baráttu, og hins sigri hrósandi verkalýðs
Sovétríkjanna, tengjast nú betur með hverju árinu.
Takmarkið er að gera þau órjúfandi.
NÚ HRYNJA
Nú hrynja þær hallir, sem byggðum við, börn.
Sjá! þá bölvun er von okkar sló.
Miljónir hungra, því viðnám og vörn
er mót valdi hins ríka ei nóg.
Vér sókn megum hefja og svifta þá rétt,
er svelta hina kúguðu stétt.
94