Réttur - 01.05.1932, Síða 35
II.
Það er engin tilvilj-
tin að flest skáld ver-
aldarinnar standa nú
við hlið kommúnism-
ans og sovétríkjanna
í úrslitabaráttunni við
auðvaldið. Það er eng-
in tilviljun að Romain
Rolland, — einhver
þroskaðasti og göfug-
asti fulltrúi, sem ein-
staklingshyggjan (ind-
ividualisminn) hefir
eignast — auk Goethes,
skuli nú í sambandi
við Amsterd’amþingið
fylkja sér eindregið
gegn auðvaldi og sósí-
aldemokrötum. Það er engin tilviljun að Henri Bar-
busse, Bernhard Shaw, Upton Sinclair, Theodor Dreiser,
Martin Andersen Nexö, Karen Michaelis skuli eindreg-
ið aðhyllast baráttu sovétríkjanna og verkalýðsins gegn
imperialismanum. Það var heldur engin tilviljun, að
Halldór Kiljan Laxness skyldi mæta sem fulltrúi ís-
lenzka verkalýðsins á þingi því, sem þessir brautryðj-
endur í heimsbókmenntunum höfðu forustu um —
heimsþinginu gegn stríði — í Amsterdam.
C'
Hvar sem sósíalisminn brýzt fram — og ekki hvað
sízt eftir að hann er búinn að sigra og sýna mátt sinn
og sanna tilverurétt sinn í miklum hluta heimsins —
þar dregur hann til sín sem segulsteinn flest-alla beztu
krafta, sem yfirstéttirnar eiga, ef þeir að einhverju
leyti unna þeim almennu hugsjónum mannkynsins, sem
borgarastéttin áður fyrr hafði á stefnuskrá sinni, en
sveik, eftir að hún náði völdum. Og jafnframt er sósí-
99