Réttur


Réttur - 01.05.1932, Síða 51

Réttur - 01.05.1932, Síða 51
þekkt utan fámenns vinahóps og munu brátt gleymast, þegar þeir vinir eru dánir. Eg veit ekki hvað er aðdá- unarverðara: hin ótakmarkaða sjálfsfórn hinna fáu eða hin mörgu smádæmi um fórnfýsi fjöldans". — „Sannleikurinn er sá, að ef eg —svo eg bara tali um það, sem eg þekki persónulega, — hefði ritað dagbók um þetta í síðustu 24 ár og skrifað niður alla þá sjálfs- afneitun og fórnfýsi, sem eg hefi kynnst, þá myndu lesendur þeirrar dagbókar, sífelt hafa orðið „hetjuskap- ur“ á vörunum“. — Eg þekki sjálfur mörg dæmi álíka hetjuskapar frá verklýðsbaráttunni á Akureyri og Siglufirði og þau skortir heldur ekki annars staðar, hvorki í Reykjavík né smáþorpunum, eins og Keflavík, Blönduósi, eða þar sem ofsóknirnar eru að taka á sig opinberari blæ. Það, að umgangast árum saman verkamenn og konur þeirra, sem eiga í stríði við hina ógurlegustu fátækt, þjást af sífeldu heilsuleysi, eru hötuð af yfirvöldunum, útilokuð frá vinnu af atvinnurekendunum, flæmd á sveitina, með því smá saman að murka burt hverja smáatvinnu, sem þau hafa haft, — og standa samt fremst í hverju ein- asta verkfalli, taka þátt í hverjum slag, eggja við kosn- ingar aðra til að kjósa, þegar þau eru útilokuð sjálf, undirbúa fundi hvert einasta kvöld að heita má, þjást oft og tíðum af sulti og illri aðbúð við þetta verk, og mæla samt aldrei æðru orði né láta bilbug á sér finna. — Það hefir sýnt mér og sannað, að sósíalistisk verk- lýðshreyfing Islands á hetjur til, sem ekki myndu held- ur bila, þó byssukjaftar gynu við þeim og nú þegar hafa horfst í augu við harðvítugra en þeir eru. Og þessir menn hafa sjálfir enga hugmynd um hetjuskap sinn — og það sannar hann hvað bezt. En þennan verkalýð er ekki að finna í kring um kjötkatla Útvegsbankans og British Petroleum. Hann stendur í baráttunni í og með Kommúnistaflokki Is- lands, þeim flokki, þar sem stéttabarátta verkalýðsins 115

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.