Réttur - 01.05.1932, Blaðsíða 59
Vestmanaeyja treysti fyrst og fremst á sjálfan sig og
myndaði öfluga samfylking án tillits til pólitískra
.skoðana. Yar megin-þorri verkalýðsins fenginn í virkt
starf með þátttöku í verkfallsnefndum, verkfallsvörð-
um o. s. frv. Sýndi verkfall þetta áþreifanlega, að
vinna má verkföll á krepputímum, ef nógu vel er að
farið með undirbúning málsins, sambandið milli þeirra
sem hlut eiga að máli treyst nógu vel, verkalýðurinn
sjálfur fenginn til þátttöku í stjórn baráttunnar, og
forustan sé örugg og einbeitt í deilunni.
Atvinnuleysisbaráttan og júlídeilumar.
Eftir vertíðina versnuðu kjör hins atvinnulausa
verkalýðs í Reykjavík um allan helming. Samtímis
hófust deilur um kaupgjald við síldarvinnu á Siglu-
firði, fyrst og fremst við ríkisbræðsluna, og svo við
Kveldúlf, um togarakaupgjaldið á síldveiðum. Meðan
á öllum þessum deilum stöð, fór ekkert af sunnlenzk-
um verkalýð norður, og óx nú reiðin yfir kauplækk-
unartilraunum atvinnurekenda og neitun erindreka
þeirra í bæjarstjórninni að hafast nokkuð að. Yoru
það auðvitað samantekin ráð til að kúga með sultar-
svipunni verkalýðinn til undanhalds.
Samsteypustjómin kallar aftur málshöfðanir.
Hin nýja samsteypustjóm hafði svo auk þessa bætt
gráu ofan á svart með því að afturkalla málshöfðanir
gegn bankastjórum íslandsbanka og reyndi þannig að
kæfa niður hneykslismál burgeisanna út af miljóna-
braski og fjársukki þeirra á sama tíma, sem verkalýð-
urinn er sveltur til undirgefni. Þótti nú kasta tólfun-
um um ósvífni hinnar nýju stjórnar og er launaárásin
bættist ofan á, fyrst og fremst í bræðslu ríkisins sjálfs,
•opnuðust augu fjölda manna fyrir því, hve einhlítt
verkfæri burgeisastéttarinnar nú fór með völdin. Að
sama skapi hugði nú erlenda auðvaldið, einkum „Æg-
ir“ í Krossanesi, gott til glóðarinnar, er svo vinveitt-
ur valdsmaður settist í ráðherrastól, sem Magnús Guð-
mundsson.
Harðvítug deila á Siglufirði.
Á Siglufirði urðu viðtökurnar við launaárásinni
skarpastar. Þar var verkalýðurinn einna róttækastur!
í landinu. Að vísu hafði stjóm sósíaldemokrata þar,
123