Réttur


Réttur - 01.10.1982, Blaðsíða 18

Réttur - 01.10.1982, Blaðsíða 18
var henni um aö boða kristinn sið þeim þjóðum sem hún þröngdi undir veldi sitt, enda hefur skattpeningur goldist að jöfnu kristi og keisara víðast hvar þar sem vestrænir landstjórnarmenn hafa sælst til ríkja í öðrum heimsálfum. Eitthvað virðist drottningu hafa orðið ágengt við þetta trúboð í Kákasuslöndum; a.m.k. taldist sendimönnum hennar svo til að í héruðum Osseta hefði hver maður látið skírast sex sinnum, enda goldinn gullpen- ingur fyrir hverja dýfu og skyrta að baugþaki. Allt fyrir það virðist hvorugur siðurinn hafa verið ræktur af mikilli guðrækni. Hjá kristnum mönnum þótti skjaldan koma að sök þótt sveit yrði prestlaus nokkra mannsaldra, eða biskupslaust svo öldum skipti; og líkt var múslimum farið að sínu leyti. Fólk hélt áfram að blóta þau goð sem fylgt höfðu ætt og kynkvísl frá örófi alda, og rækti gaumgæfilega fornan heið- inn sið þó það játti hinum suðrænu trúarbrögðum til málamynda. Það munar lítið um nýtt goð þar sem mörg eru fyrir, auðvelt að leggja helga menn og guðsvini að jöfnu við álfa og haugbúa; Pétur postuli hefur t.d. brugðið sér í gerfi alansks fljótaguðs og kallast Donbettyr, Vatnspétur. Hjá Ossetum virðast dagar kristins dóms nú vera taldir, en heiðnar venjur og heiðin goð halda enn virðingu sinni; höfundur þessara lína hefur verið við ossetisk blót sem framin voru að fornum sið og af tiginmannlegri alvöru. Hvarvetna í Kákasusfjöllum eru enn færðar fórnir hollum vættum, þeim sem búa í eikum eða hólum eða lindum elíegar öðrum stöðum í náttúrunni. Hefur um öll þessi fræði verið samið ógrynni af bókum og ritgerðum bæði innanlands og utan. Hér hefur að vísu verið fariö hratt yfir sögu, og einsætt að margt vantar í það sem heyrir til fullkominnar frásagnar. Og reyndar er oft erfitt að átta sig á hvað satt er í kákasiskum fornfræðum — fornöld lýkur hér í raun réttri ekki fyrr en í tíð langafa þeirra sem nú lifa. Ritaðar heimild- ir eru fáar, öngvar innlendar, og flestar í brotum sem torvelt er að setja saman í eina heild. Stórkostlegar framfarir hafa orðið í fornleifavísindum síðasta manns- aldur, og eins í málfræði og rannsóknum á þjóðsögum, munnmælum og fornurn skáldskap; en ekki er vinnandi vegur einum manni að vita skil á því öllu. Kákasusþjóðir eiga allar sammerkt um það að þeim er afar annt um sögu sína og þjóðlega menningu; ossetiska málfræðin sem kom út í tveimur bindum á árunum 1963—69, og ossetisk orðsifjabók V. I. Abaéfs þar sem enn á eftir að reka á smiðshöggið, eru m.a. til sannindamerkis um það; — bækur að vísu sem íslendingar, gömul fræðaþjóð, eiga enn öngvar þvílík- ar. En ekki er þá alltaf verið að draga úr ágætisverkum forfeðranna, og þurfa sam- landar mínir ekki um langan veg að leita líkra dæma. Nú gerast þeir atburðir seint á 18du öld að íslömsk rétttrúnaðarstefna verður fátækum fjallabændum í Kákasus sú hugsjón sem þeir beita fyrir sig í baráttu við kúgara sína innlenda og erlenda, og þá nágrenndarmenn aðra sem þeir þóttust eiga heiftir að gjalda. Stuttu eftir 1780 tókst tsétsénskum trúarleiðtoga, Sjeik Mansúr, að safna liði um öll norðurfjöllin en þó einkanlega í Tsétséníu og Dagestan, landinu við Kaspíhaf, og hefja „heilagt stríð“ gegn Rússum. Mansúr, eða Úsj- úrma eins og hann hét í heimkynnum sínum í fyrstunni, var fátækur og mennt- unarlaus hirðingi, en virðist á fullorðins- aldri hafa komist í kunningsskap við andleg bræðralög eða sambönd heilagra 210
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.