Réttur


Réttur - 01.10.1982, Page 41

Réttur - 01.10.1982, Page 41
Ragnar Árnason: Efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar og kjarabarátta launþega í þessari grein er ætlunin að fjalla um efnahagsáætlun ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsen frá því í ágúst sl. og leitast við að draga af henni viðeigandi lærdóm fyrir kjarabaráttu launþega. Til þess að svo megi verða er að minni hyggju nauðsynlegt að skoða þessi efnahagsáform með hliðsjón af þróun kjara- og efnahagsmála í landinu á undanförnum árum og þeirri umtalsverðu breytingu í þjóðfélagslegum valdahlutföllum, sem virðist hafa átt sér stað á sama tímbili. Ein af forsendum þess, að kjarabaráttan á komandi misserum skili þeim árangri, sem efni standa til, er, að launþegar geri sér skýra grein fyrir þeim þjóðfélagslegu aðstæðum, sem umræddar efnahagsráðstafanir spretta upp úr, og dæmi þær í því Ijósi. 1. Efnahagsleg og pólitísk forsaga Áttunda áratugnum má skipta í tvo hluta bæði í efnahagslegu og pólitísku tilliti. Á fyrri hluta tímabilsins var staða launþegahreyfingarinnar og hins pólitíska arms hennar tiltölulega sterk. Jafnframt voru efnahagsframfarir örar og lífskjör fóru hraðbatnandi. Á síðari hluta áratugs- ins snerist þetta við. Afl verkalýðshreyf- ingarinnar dvínaði en stjórnmálaleg áhrif atvinnurekenda jukust að sama skapi. Á efnahagssviðinu tók við tímabil stöðnun- ar bæði í framleiðslu og lífskjörum, sem stendur enn. Verður nú vikið nánar að þessum atriðum. Viðreisnartímabilið var mikil eldraun fyrir launþega. Á því 12 ára skeiði átti verkalýðshreyfingin í nær látlausum átök- um við fjandsamlegt ríkisvald, sem skirrð- 233

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.