Réttur - 01.10.1982, Page 55
Nexö og
Paul Robeson
1949.
útgáfufyrirtæki, sem gaf þetta stórmerka
rit út. — Þarna kemur svo margt fram,
sem menn voru búnir að gleyma, t.d. í
bréfinu til Ninu Krimovu í 3. bindi, nr.
744, 1951, er hann ræðir brottrekstur
Maxim Gorkis frá Bandaríkjunum í tíð
McCarthyismans.
Skyldi nokkurt íslenskt bókasafn eiga
þetta stórmerka rit? — Allt kom það út
á árunum 1969-1972.
Hitt stórræðið, sem Börge Houmann
hófst handa með, er þessu fyrra var lokið,
var ævisaga Nexös „Martin Andersen
Nexö og hans samtid 1869-1919“ heitir
fyrra bindið, sem kom út 1981 hjá
Gyldendal í stóru broti eins og bréfasafnið
og er rúmar 540 síður. Vonaðist Houmann
eftir að síðara bindið kæmist út 1982. Allt
er ritið prýtt fjölda mynda og að öllu leyti
unnið af slíkri vísindamennsku og snilli,
svo ekki sé talað um dugnaðinn, að
aðdáunarvert er. — Árið 1982 var Hou-
mann og gerður heiðursdoktor við háskól-
ann í Greifswald fyrir þessi miklu störf
sín varðandi ævi og rit Nexös. — Fyrirlest-
ur þann, er hann hélt, þegar hann tók á
móti þeirri nafnbót, kallaði hann „60 ár
með Martin Andersen Nexö“, því fyrst
kynntist hann skáldinu, er hann sem
sendill færði honum skeyti — og er ræða
þessi skemmtileg og fróðleg í senn.
Vonandi tekst Börge Houmann enn að
halda áfram því mikla verki, sem hann
hefur verið að vinna, þótt hár aldur færist
yfir þennan afreksmann á svo mörgurn
sviðum mannlegs lífs. E.O.
247