Réttur - 01.01.1975, Síða 29
HETJUR ALÞÝÐUNNAR
í PORTUGAL
Þegar alþýða Portúgals er að hrista af sér fjötra fasismans eftir 48 ára kúgun og
þjáningar, er hollt um leið og fylgst er með því, sem nú er að gerast, að lita til baka
og draga upp mynd af þeim skelfingum, sem ekki síst kommúnistarnir urðu að þola,
og gera sér grein fyrir hvernig það stál var hert, sem nú brýtur fasismann á bak
aftur og býður auðhringum byrginn.
Hér fara á eftir tvær svipmyndir: önnur úr lífi konu einnar, sem þátt tók í leynibarátt-
unni og fyrr var frá sagt i „Rétti“, hin úr fangelsisvist foringja Kommúnistaflokksins,
Alvaro Cunhal og þriggja félaga hans.
I.
MARGARIDA TENGARRINHA
Fyrir tíu árum birti ég grein eftir Mar-
garulu Tengarrinhu (í „Rétti" 1. hefti 1965)
og ritaði að henni nokkur inngangsorð. Eg
sagði þar frá því að ég hefði nýlega hitt
portúgalskan kommúnista, er setið hafði 20
ár í fangelsi þar. Ég sagði frá konum, er árum
saman hafa dvalið í dýflissum fasismans þar
fyrir kommúnistiska starfsemi, jafnvel fætt
börn sín þar. Og ég kynti með nokkrum orð-
um greinarhöfund, sem var ekkja portúgalska
myndhöggvarans ogg kommúnistans José
Dias Coelho. Hann var myrmr af leynilög-
reglu Salazars 19- desember 1961 á göm í
Lissabon.
Bæði höfðu þau hjónin starfað á laun fyrir
andspyrnuhreyfinguna í Portúgal, og að ósk
forustu kommúnistaflokksins helgað sig hinu
leynilegta starfi að fullu frá árinu 1953. I
slíku starfi urðu þau að hverfa sjónum nán-
ustu skyldmenna. Coelho sá aldrei foreldra
sína afmr eftir að þetta leynistarf hófst og
við elstu dóttur sína, sex ára gamla, urðu
þau að skilja árið 1959- List sína gat hann
ekki stundað framar, en ritaði hinsvegar bók:
„Andspyrnuhreyfingin í Portúgal" og teikn-
aði margar myndir er birtar voru í leyniblöð-
um hreyfingarinnar. Grein Margaridu bar
fyrirsögnina „Og þó að ég mcetti velja á ný
— kysi ég sömu leið'' — ljóðlínur eftir
franska skáldið og kommúnistann Aragon.
Öll andar þessi smtta grein þeim eldmóði,
er einkennir miljónir kommúnista, sem berj-
ast um allan heim gegn harðstjórn og arð-
ráni auðvalds og fasisma þess.
Nú þegar alþýða Portúgals hefur hrist af
sér hlekki fasismans og Kommúnistaflokkur
landsins er orðinn einn af sterkusm stoðum
hins unga lýðræðis þar, þá gladdi það mig
mikið að sjá í ausmrþýsku blaði „Horisont,"
að Margarida Tengarrinba hefur lifað allar
ofsóknirnar af og berst nú í broddi fylkingar
portúgalskrar alþýðu fyrir frelsi hennar.
29