Réttur - 01.01.1975, Page 56
Og það er eitt af meginskilyrðunum fyrir sósial-
ískri umbyltingu á Islandi að sú barátta verði sig-
ursæl.
I allri þessari baráttu og samfylkingu gegn af-
leiðingum auðvaldsins, þarf flokkurinn ævinlega að
hafa ríkt í huga að rekja þær til upphafsins, sýna
fram á tengsl afleiðinga og orsaka, og beina
þannig samfyikingunni, eftir því sem auðið er,
inn á sósíaliskar brautir. Við látum enga sam-
fylkingu binda hendur okkar í þessum efnum og
lýsum því yfir í hreinskilni frá upphafi vega, enda
þótt við leggjum mikla áherslu á að ná sem við-
tækustu samstarfi í þessum efnum við hvern sem
er, e nnig ákveðna andstæðinga sósíalismans.
Ég hef reynt að stikla á stóru. En ég held þó,
að ég hafi drepið á það, sem skiptir mestu máli
í stjórnlist islenskra sósialista.
Kirkjubær í Vestmannaeyjum
Bær Þorbjarnar Guðjónssonar. Fór undir hraun í eldgosinu 1973.
56