Réttur


Réttur - 01.10.1975, Qupperneq 2

Réttur - 01.10.1975, Qupperneq 2
íslenska útgerðarmenn til tylgis við sig og reisn og stórhugur nýsköpunar leysti lágkúru Coca-cola-stjórnarinnar af hólmi. Island þarf að losna við þessa ríkisstjórn. Hún íþyngir alþýðu með dýrtíð og launalækkunum, skerðingu réttarbóta og æ þyngri álögum, en hyglir sínum vildarvinum með skattfríðindum og gengislækkunum og viðheldur öllu þeirra óhófs- og eyðslu-bákni. Hún er undirgefnin sjálf við erlenda auð- hringa, hvort þeir heita Alusuisse, Unilever eða annað, lætur þá ræna þjóð- ina og auðlindir hennar, en að alþýðu snýr hún með blíðmælgi hræsninnar, meðan hún lætur staðreyndir tala máli hörkunnar: 25—40% launaskerð- ing. Það þarf ríkisstjórn, sem þorir að stjórna íslandi sem einni efnahagslegri heild, slíkt er skilyrði fyrir efnahagslegu sjálfstæði landsins og þarmeð öruggri og góðri lífsafkomu almennings, — við stöndum andspænis þeirri úlfahjörð auðhringa, sem hinn svokallaði ,,frjálsi markaður" Vesturlanda er — og verðum að geta varið okkur. Það þarf ríkisstjórn, sem kennir gráð- ugum auðhringum Natolanda virðingu fyrir lífi og rétti smáþjóðar og tillit til framtíðarlífs í legi og á láði. Nú — 25. nóv. — þegar ,,bandamenn“ vorir senda Nato-herskip gegn is- landi, þá reynir á að setja því stórveldabandalagi úrslitakosti til að venja það endanlega af yfirgangi sínum. Og það þora engin Nato-þý. o ,,Réttur“ birtir að þessu sinni, auk ýmislegs annars efnis ekki síst í sam- bandi við kvennahreyfinguna, línurit um þróun kaupgetu meðaltaxta Dags- brúnar frá 1944 til '75, á bls. 242, er Hjalti Kristgeirsson hefur reiknað út og Þorsteinn Óskarsson teiknað. Er fróðlegt að sjá þar öfugþróunina frá há- punktinum í tíð vinstri stjórnarinnar. Jafnframt viljum við vísa til fyrri skrifa um þróun þessa: I 2. og 3. hefti yfirstandandi árgangs bls. 90—94 og bls. 188, ennfremur ,,Þrjú myndrit" í árg. 1974 bls. 151 og áfram, svo og í árg. 1969 um kaupmátt tímakaups í 25 ár, bls. 70. o*o Á næsta ári, 1976, eru liðin 60 ár síðan ,,Réttur“ hóf göngu sína, en Þór- ólfur í Baldursheimi dagsetti „formála" sinn að útgáfu ritsins 1. des. 1915 á Akureyri. Ennfremur eru liðin næsta haust 50 ár síðan marxistar tóku við ,,Rétti" og hafa stjórnað honum síðan. Tekjur „Réttar" eftir breytinguna 1967 hafa nægt til að greiða setningu, prentun og pappír, nema nú 1975. Þá hefur hann safnað skuldum, af því áskriftarverð var of lágt. Verður að hækka það verulega á næsta ári til þess að tryggja útkomu hans. Það væri verðugt að minnast þessara tímamóta í sögu Réttar með því að hefja verulega sókn í söfnun nýrra áskrifenda. Heitir „Réttur" á alla sósíal- ista og aðra velunnara sína að duga honum nú vel.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.